Skírnir - 01.01.1911, Page 88
88
Frá útlöndum.
átti bráðlega að koma saman, og munu verkfallsmenn hafa treysfr
því, að þar ætti stjórnin erfiða aðstöðu, ef hún greiddi eigi fram
úr málinu.
En stjórnin brást illa við og var hörð í horn að taka. Briand
yfirráðherra hafði þar forgönguna. Hanu lýsti því yfir, að þetta
væri ekki venjulegt verkfall, heldur uppreisn, og samkvæmt þeirri
kenningu lét hann handtaka forsprakka verkfallsmanua og kasta
þeim í fangelsi. Sömuleiðis lót hann refsa þeim harðlega, er sann-
ir urðu að sök um það, að þeir hefðu gert spellvirki á járnbraut-
unum. Þá verkfallsmenn, er herskyldir voru, lét hann kalla til!
herþjónustu og skipaði síðan, að þeir væru sem herskyldir menn
settir í járnbrautavinnu. Fói þá svo, að verkfallsmenn gugnuðu
bráðlega, einkum af því að margir forvígismeunirnir voru fangels-
aðir, og tóku þá margir aftur upp vinnuna, svo að verkfallið stóð'
eigi nema fáa daga. En samt er talið, að mikið tjón hafi af þvf
hlotist.
Briand þótti koma mjög röggsamlega fram 1 þessu máli, og
sagt er, að hann hafi haft í því fullkomið fylgi Fallieres’ forseta.
En foringjar verkfallsmanna þóttust hart leiknir og ólögum
beittir af stjórninni. Og þegar þingið kom saman, komu þar fram
talsmenn þeirra og gerðu harða atreið að stjórninni, einkum Jaurés,
foringi og málsvari jafnaðarmannaflokksins á þingi. Briand hélt
því fram, að hér hefði verið um uppreisn að ræða, en ekki verk-
fall, og bar sakir á hluttakendurna fyrir spellvirkin, er þeir hefðu
unnið. Hefði því stjórnin orðið að láta hart mæta hörðu. Stóð
rifrildi um þetta yfir í þinginu í marga daga, og varð úr svo
mikill gauragangur, að jafnað er til Boulongershreyfingarinnar og
Dreyfusmálsins. Briand heimtaði traustsyfirlýsingu þingsins og
viðurkenningu fyrir framgöngu sína og fekk þetta, með 329 atkv.
gegn 183. En það voru íhaldsflokkar þingsiris, sem gerðu þann
mikla mun því þarna studdu þeir stjórnina, þótt þeir annars séu
henni andvígir.
Flokkaskiftingin í þinginu er þessi: Socialradíkali flokkurinn
150, radíkali flokkurinn 110, vinstri þjóðveldismenn 80, »óliáðir«
socialdemókratar 30, meðalhófsflokkurinn 75, hægrimenn 65 og
socialdemokratar eða jafnaðarmenn 75. Fjórir fyrstnefndu flokkarn-
ir mynduðu áður stjórnarfylkinguna, og var það álitlegur meiri-
hluti, 370 atkv., ekki sízt þar sem hinir þrír flokkarnir voru inn-
byrðis andvígir. Fimti og sjötti flokkurinn eru íhaldsflokkar