Morgunn


Morgunn - 01.06.1946, Side 70

Morgunn - 01.06.1946, Side 70
60 MORGUNN er hérna", svöruðu þau og ýttu mér fram. Faðir minn kyssti mig, hélt mér svo frá sér og sagði: „Þú hefur staðið þig ágætlega, Flóra“. Hann dró mig að sér aftur, kyssti mig blíðlega, rak upp fagnaðarhlátur, og þá vaknaði ég“. J. A. þýddi. Undralækn&iinn Parish. Ný bók. Eins og öllum er kunnugt, eru jafnan til menn, sem hafa meðfædda tilhneigingu til lækninga og hæfileika til að framkvæma þær, svo að gagni verði, þótt þeir hafi ekki lært neitt. Allir kannast við nærfærna menn, sem kallað er, víða í sveitum, sem verið hafa til mikillar hjálpar bæði fyrir menn og skepnur. En flestir munu þeir þó eftir föng- um afla sér nokkurrar þekkingar, þótt þeir, í hálfniðrandi merkingu séu kallaðir skottulæknar, einkum þeir, sem fást við mannalækningar. Ein sérstök tegund lækna eru þó þeir, sem kallað- ir eru lækningamiðlar. Það eru menn, sem hafa mið- ilshæfileika, og ein gáfa þeirra, ef til vill aðalgáfan, er lækningagáfan, og árangur hennar virðist þá fremur sprott- inn af andlegum áhrifum án þess að nein líkamleg öfl eða aðferðir komi þar til greina. Það er þá ein af þeim and- legu náðargáfum, sem Páll postuli telur í I. Kor. bréfi, enda þessar lækningar oft nefndar andlegar lækningar. Oft er það, að þessir miðlar hafa í upphafi ekki neina tilhneig- ingu í þessa átt og það kemur þeim sjálfum á óvart, þegar þeir allt í einu verða þess vísir, að þeir séu fæddir með lækningagáfu, og þeim er sagt það af stjórnendum handan að, að þeim sé ætlað hlutverk að vinna með henni; ekki

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.