Frjáls verslun - 01.03.2005, Qupperneq 57
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5 57
„Við stefnum markvisst að því að breyta
þessu og höfum gert það á undanförnum
árum. Ímynd Pepsi er nú allt önnur en hún
var fyrir þremur árum og í viðhorfskönn-
unum kemur fram að yngri aldurshópar
hallast í auknum mæli að Pepsi. Í sumum
aldurshópum vilja jafnvel fleiri Pepsi en
Coke. Í Appelsíninu njótum við þess oft að
þegar beðið er um appelsín er sagt að „bara“
sé til Fanta. En þetta er langtímamarkmið.
Allar framleiðsluvörur okkar eru fyrsta
flokks og því markmiði verður aldrei fórnað.
Gæði eru í öndvegi hjá fyrirtækinu og allt
sem við gerum þarf að standast gæði og
á það jafnt við um vörur okkar, þjónustu,
símsvörun, aksturslag á merktum bílum,
útskrift reikninga og innheimtu. Allt sem
gert er þarf að vera fyrsta flokks og rétt gert
frá upphafi til enda.
Til að lifa þarf fyrirtækið að vaxa hraðar
en samkeppnisaðilar. Þannig höfum við t.d.
aukið markaðshlutdeild Tuborg um 27%
milli ára. Stefnt er að því að 10% af framlegð
fyrirtækisins komi frá nýjum vörum, þ.e.
innri vexti. Auknum vaxtarhraða náum við
m.a. með framsæknum vinnubrögðum og
vöruþróun. Við leitum hagkvæmustu leiða
í innkaupum, framleiðslu og fjárfestingum
og sýnum heiðarleika í hvívetna, gætum
m.a. trúnaðar í meðhöndlun upplýsinga,
höfum hugrekki til þess að taka á van-
damálum áður en þau verða of stór og eins
er nauðsynlegt að viðurkenna mistök.“
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, útskrifaðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskóla Íslands 1992. Næstu
ár var hann í ýmsum störfum, rak m.a. kvik-
myndahúsið Regnbogann, var markaðsstjóri
hjá Almenna bókafélaginu og aðstoðar-
forstjóri hjá Lýsi en fór þá til framhalds-
náms í Rotterdam School of Management
í Hollandi og tók þar MBA-gráðu árið 2002.
Sem hluta af náminu tók hann eina önn á
Indlandi, en áhugi Andra beindist þá mjög
að viðskiptum við Asíu. Þaðan lá leiðin til
G O S D R Y K K J A M A R K A Ð U R I N N
SKIPTA UM FORSTJÓRAERKIFJENDUR
Árni Stefánsson,
nýr forstjóri Vífilfells.