Morgunblaðið - 13.03.1979, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
60. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgnnblaðsins.
Lið Amins
umkringt
Nairobi, 12. marz. Reuter. AP.
Útlagar írá Uganda sögðu í
dag að uppreisnarmenn sem
Tanzaniumenn styðja hefðu
umkringt liðsafla Idi Amins
forseta eftir gagnsókn sem
hann gerði og einangrað hann
frá Kampala. Jafnframt stóðu
hryðjuverkamenn fyrir
sprengjuárásum í höfuðborginni
og víðar.
Heimildarmennirnir segja að
lið Amins hafi verið umkringt
eftir undanhald sem lið and-
stæðinga forsetans greip til, til
þess að bæta vigstöðu sína á
veginum til Masaka lengra í
suðri er þeir tóku fyrr í bardög-
unum.
Þeir segja að lið uppreisnar-
manna hafi skipt sér í þrjá
flokka. Þegar miðflokkurinn
hörfaði eftir veginum til þess að
lokka liðsafla Amins á eftir sér
sóttu fylkingararmarnir fram
beggja vegna vegarins. Þeir
mættust að baki stjórnarher-
sveitanna þannig að þær voru
einangraðar frá höfuðborginni.
Jorúsalem, 12. marz. AP. Reuter.
JIMMY Carter forseti ákvað í dag að fresta heimferð sinni um einn dag og fer á
morgun til Kaíró til að gefa Anwar Sadat forseta skýrslu um þriggja daga viðræður
sínar í Jerúsalem um friðarsamning ísraelsmanna og Egypta.
í ræðu í ísraelska þinginu,
Knesset: „Við höfum ekki enn
sigrazt að fullu á vandanum. Þjóð-
irnar eru fúsar að fallast á frið.
Léiðtogarnir hafa ekki sannað enn
að við séum fúsir að fallast á
frið...“
Talsmaður forsetans, Jody
Powell, sagði að Carter mundi
hitta Sadat á Kaíró-flugvelli á leið
sinni heim til Bandaríkjanna.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
verður í fylgd með Carter forseta.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra Israels, sagði að „mikill
árangur“ hefði náðst á síðasta
samningafundi Carters og ísra-
elskra ráðherra. En hann sagði, að
enn væru óleyst nokkur vandamál
en stöðugt væri unnið að því að
reyna að leysa þau.
ísraelskir heimildarmenn sögðu
að fjögur mál væru óleyst og í
sumum þeirra þyrfti að fá svör frá
Egyptum við tillögum Israels-
manna.
flugvöllur var lokaður í dag, um-
ferð um hann bönnuð í fjóra tíma
og rauðut dregill lá upp að flugvél
Carters forseta ef svo færi að hann
ákvæði að fara.
I dag átti Carter fund með
ísraelsku stjórninni og sagði síðan
Powell blaðafulltrúi var tregur
til að segja hvað hefði áunnizt í
ferð Carters og sagði að ekki væri
hægt að mynda sér endanlega
skoðun fyrr en rætt hefði verið við
Sadat. En hann sagði að færri
vandamál væru óleyst en áður en
forsetinn fór frá Washington í
ferð sína til Kaíró og Jerúsalem í
síðustu viku.
Hann sagði að miðað við það bil
sem hefði verið milli Israelsmanna
og Egypta í upphafi samningavið-
ræðnanna væri sáralítið bil eftir.
En hann sagði að síðasti spölurinn
væri erfiður.
Carter átti að fara heimleiðis
frá ísrael síðdegis í dag en hélt
áfram viðræðum sínum þegar ljóst
varð að ferð hans hafði ekki borið
þann árangur sem hann hafði
vonazt eftir. Carter vonaði að
hann gæti tryggt samkomulag um
friðarsamning á grundvelli ólíkra
tillagna og gagntilboða sem hafa
komið fram. Tillögur hans hafa
ekki verið kunngerðar.
Begin snæðir morgunverð með
Carter á morgun og forsetinn fer
frá ísrael á hádegi. Ben Gurion
bimamynd AP
Jimmy Carter forseti klappar fyrir Menachem Begin, forsætisráð-
herra eftir ræðu hans í ísraelska þinginu, Knesset, í gær. Gripið var
nokkrum sinnum fram í fyrir Begin og hann var sakaður um að
svíkja málstað Israels.
Ollum skólum í
Víetnam lokað
Bangkok, 12. marz. AP. Reuter.
VÍETNAMAR tilkynntu í dag að frá og með fimmtudegi yrðu nánast
allir borgarar að gegna einhverjum herskyldustörfum sem eru liður í
herútboðsáætlun sem miðar að'því að hrinda árás Kfnverja.
Aðsúgur að ráðamanni
eftir mótmæli kvenna
Teheran. 12. marz. Reuter
IIERSKÁAR kvenréttindakonur. ein þeirra vopnuð skambyssu og önnur
vopnuð hnífi, réðust í dag á bifrcið yfirmanns íranska útvarpsins, Sadcgh
Ghotzadeh, að sögn útvarpsstöðvarinnar „Rödd byltingarinnar“.
Samkvæmt tilskipun frá Pham
Van Dong forsætisráðherra verður
öllum skólum og æðri mennta-
stofnunum lokað í tvær eða þrjár
vikur svo að allir geti lært fljótt að
beita vopnum til varnar Víetnam.
Jafnframt segja vestrænir sér-
fræðingar að brottflutningur Kín-
verja frá Víetnam haldi áfram
þótt hann gangi hægt. Víetnamar
hafa ekki minnzt á brottflutning-
inn undanfarna daga og lagt
áherzlu á að bardagarnir haldi
áfram og sakað Kínverja um
ódæðisverk.
Kínverska fréttastofan Nýja
Kína sakaði Víetnama í dag um
skotárásir á Kínverja á undan-
haldinu og áreitni og sagði frá
kröftugum gagnárásum Kínverja
á Víetnama.
I Peking vekur athygli forystu-
grein í Alþýðudagblaðinu sem
þykir bera vott um ágreining í
forystu flokksins, meðal annars
vegna ákvörðunar sem virðist hafa
verið tekin um að afnema ákvarð-
anir sem mótast af maoisma og
hafa verið í gildi síðan 1957.
Nokkrir ráðamenn virðast hafa
sætt gagnrýni, þar á meðal Wang
Tung-hsing, varaformaður flokks-
ins.
Nokkrum klukkustundum áður
hafði stormasömum mótmælaað-
gerðum þúsunda kvenna lokið með
ofbeldi þegar múhameðskir
rétttrúarmenn köstuðu grjóti að
hópferðabíl sem flutti nokkrar af
mótmælakonunum frá miðborginni.
Byltingarútvarpið sagði að hópur
kvenna hefði ráðizt á bíl Ghotbzadeh
útvarpsstjóra þegar hann kom
akandi að aðalstöðvum sjónvarpsins.
Kona nokkur dró upp skambyssu
úr handtösku sinni og önnur dró upp
hníf og þær reyndu að ráðast á einn
af vörðum Ghotbzadehs. Bíllinn
skemmdist mikið en engin slys urðu
á fólki.
Utvarpið sagði að byltingarmenn
hefðu skotið út í loftið og konurnar
hefðu flúið í tveimur bifreiðum.
Þúsundir kvenna, sem vildu mót-
mæla því að íslömskum lögum er
stöðugt strangar fylgt eftir, hrópuðu
„Dauði yfir Ghotbzadeh" á útifundi
sem þær héldu við Teheran-háskóla.
Þær sökuðu útvarpsstjórann um að
bera hvað mesta ábyrgð á hinu
íslamska yfirbragði írönsku
byltingarinnar.
Andstæðingar mótmælakvenn-
anna sökuðu konurnar um að taka
þátt í bandarísku samsæri og kváðu
þær útsendara leynilögreglunnar
Savak og kommúnista.
íranskar konur mótmæla skerðingu á réttindum sínum í Teheran.
Skyndi-
fundur
París, 12. marz. Reuter.
VALERY Giscard d'Estaing
forseti boðaði þingið í dag til
skyndifundar á miðvikudag til
að ra*ða atvinnuleysið í Frakk-
landi.
Þessi ráðstöfun fylgir í kjöl-
far margra vikna harðra mót-
mæla stálverkamanna gegn
áformum ríkisstjórnarinnar
um að endurskipuleggja iðnað-
inn og segja rúmlega 21.000 upp
vinnu fyrir árslok 1981.
Nú þegar eru 1.350.000 at-
vinnulausir. Flokkur gaullista,
stærsti stjórnarflokkurinn, og
stjórnarandstaðan sameinuð-
ust um að krefjast skyndifund-
arins.
í iðnaðarbænum Denain í
Norður-Frakklandi átti óeirða-
lögreglan í höggi við stálverka-
menn sem notuðu jarðýtur til
að reyna að ryðjast inn í lög-
reglustöð bæjarins í síðustu
viku. Atburðirnir minntu á
stúdentauppreisnina í maí
1968.
Carter frestar
heimferð sinni