Morgunblaðið - 13.03.1979, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.03.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979 11 Þjóðleikhúsid: íslenski dansflokkur- inn. Ballett: Tófuskinnið. Danshöfundur: Marjo Kuusela. Tónlist: Ingor Stravinsky. Gestaleikur: Ballett: Fávitar. Danshöfundur: Tommi Kitti. Tónlist: Tchaikovsky, Bach, Lobos, Prokofiev, Skrjapin og fleiri. Á fimmtudagskvöldið þ. 8. mars frumsýndi íslenski dansflokkurinn nýjan ballett sem finnski dans- höfundurinn Marjo Kuusela hefur samlö sérstaklega fyrir flokkinn. Kuusela er okkur aö góöu kunn frá því aö hún kom hingað fyrir rúmu ári meö Raatikko-dansflokknum og sýndu hér ballettinn Sölku Völku. Þessi nýi ballett er byggður á sögu Guðmundar G. Hagalíns, „Tófu- skinninu", en handritið samdi Eino Tusminen. Tónlistin er eftir Igor Stravinsky. Ballettinn fjallar um einn eiginleika mannsins, ágirndina. Ástin spilar auðvitað líka inn í. Sagan segir frá bónda nokkrum sem á enga ósk heitari en að eignast tófuskinn. Þar í sveitinni þótti enginn maður með mönnum nema hann ætti slíkt skinn. Sem sagt, nokkurs konar stöðutákn. Þegar tjaldiö er dregið frá sjáum við bóndann á refaveiðum ásamt tveim hundum sínum. Við sjáum einnig tófunni bregöa fyrir öðru hverju. Tófan lendir að lokum í gildru bónd- ans. Hann heldur nú heimleiöis með tófuskinniö í poka. Heima bíður fjölskyldan aðframkomin af langvar- andi matarskorti. Tekur bóndi nú mikla ástfóstri viö tófuskinnið og List- dans- sýning gætir þess eins og sjáaldur auga síns. Hann vill ekki láta það fyrir nokkurn pening þrátt fyrir að kona hans og börn þjáist af hungri. Fer svo að lokum að bóndi missir bæði tófuskinnið og fjölskylduna. í hlutverki bóndans var Örn Guðmundsson. Var bæði leikur og dans Arnar mjög góður. Má segja að Örn haf| slegiö í gegn í þessum ballett. Ásdís Magnúsdóttir dansaöi hlutverk tófunnar á þann hátt sem henni einni er eiginlegt, með öðrum orðum framúrskarandi vel. Samdans þeirra Arnar og Ásdísar var mjög góður og á köflum afbragðs góður. Auðséö var að þetta atriði var mjög vel æft. Aftur á móti voru hundarnir sem þær Guörún Pálsdóttir og Kristín Björnsdóttir dönsuöi ekki eins vel samæfðir. Að öðru leyti dönsuöu hvor um sig alveg prýðilega. Sú sem mest komá óvart var Helga Bernhard í hlutverki hinnar þreyttu og þjáöu eiginkonu bóndans. Helga sýndi ekki aðeins góöan og öruggan dans eftir Helgu Hannesdóttur lœkni Áhrif útivirmu mæóra á börnin er fyrst og fremst undir því komin hversu náið samband barns og móöur er, meðan á sam- veru þeirra stendur, — að afloknum vinnudegi, áöur en haldiö er í vinnu eða á frídögum. nota börnin sem bitbein vegna óánægju sinnar og reiði og jafnvel vanrækja börn sín, ým- ist með því að sinna þeim ekki eða refsa þeim líkamlega af minnsta tilefni. En hvers vegna vilja mæður vinna utan heimilis, þar sem heimavinna mæðra með t.d. 3 eða fleiri börn er fullt starf að flestra mati. Álitið er að úti- vinnandi mæður jafnt sem úti- vinnandi feður fái betur full- nægt félagsþörf sinni með vinnu utan heimilis. Einnig er vinna utan heimilis álitin draga úr einmanaleik og leiða foreldra og eykur sjálfsálit þeirra og bætir fjárhagsafkomu fjölskyldunnar. Á undanförnum árum hefur víða erlendis verið lögð áhersla á að vinnustaður útivinnandi mæðra og feðra veiti þeim jafn- framt kost á dagvistun eða leikskóladvöl barna þeirra á sama stað og atvinna er, til að auðvelda foreldrum og börnum að hittast á matmálstímum í sameiginlegu mötuneyti vinnu- staðar og dagvistunarstofnunar. Einnig auðveldar þetta fyrir- komulag mæðrum kornabarna að gefa börnum sínum brjósta- mjólk umfram 3ja mánaða fæð- ingarfrí. Allvíða hafa atvinnu- staðir gjörsamlega útilokað for- eldra frá því að rækja foreldra- hlutverk sitt meðan á vinnu stendur, en þetta á því miður ekki aðeins við um vinnustaði, því sumir foreldrar og þá sér- staklega feður eru jafnvel leikn- ir í að útiloka börn sín, þó þeir séu heima og innan um þau að afloknum vinnudegi. En feður geta þrátt fyrir það einnig hjálpað útivinnandi mæðrum og eiginkonum sérstaklega eftir að fæðing er nýafstaðin. Eiginmað- ur getur gert það með því að hvetja konu sína til að halda áfram vinnu eftir nýafstaðna fæðingu en á því tímabili eru margar konur óöruggar og óákveðnar varðandi útivinnu þeirra. Á slíkri stund hjálpar það móður að heyra frá eigin- manni, að hann meti ekki síður þá, að hún haldi áfram að vinna utan heimilis, ekki aðeins vegna peninganna, heldur fyrst og fremst svo að henni sjálfri komi til með að líða betur og hún verði ánægðari. Flestar mæður kysu vafalaust á þeim tíma vinnu lÆ daginn eða sjaldnar fyrir 2—5 æviár barnsins, ef slíkir atvinnumöguleikar væru fyrir hendi og fjárhagur fjöl- skyldunnar leyfði. Það er ekki síður þýðingarmikið fyrir feður að vinna nálægt gæslu barna sinna en fyrir mæður og hvetja ber feður til að heimsækja börn sín meðan á gæslu eða dagvist- un stendur, t.d. í matar- eða kaffihléum eða þegar önnur tækifæri gefast. Foreldrar ættu ekki að hika við að tjá atvinnurekendum sínum áhyggjur þeirra og þarfir vegna barna sinn meðan á vinnu stendur og fara fram á frí ef þörf krefur, sem foreldrar geta síðan aftur unnið upp annað- hvort seinna samdægurs eða næstu daga. Stuðla ber að því að foreldrar gætu tekið börn sín oftar með sér á vinnustaði, þannig að börnin fengju betri upplýsingar um vinnu foreldra og sérstaklega, hvar foreldrar eru, þegar þeir eru fjarverandi frá börnum sínum og hvers eðlis atvinna þeirra er. Þrátt fyrir útivinnu foreldra er mergur málsins sá, að for- eldrahlutverkið er ekki síður mikilvægt og gefandi en úti- vinna hvers og eins. heldur einnig mikinn og sterkan skapgeröarleik. Hún á áreiöanlega mikla framtíð fyrir sér í þessum Kuusela-dansstíl. Dætur bóndans og aðrir þorpsbúar voru dansaöir af meðlimum íslenska dansflokksins og nemendum Listdansskóla Þjóöleik- hússins. Öll gerðu þau hlutverkum sínum mjög góð skil. Sérstaka athygli vöktu tvær litlar tátur, þær Helena H. Markan og Sigríður Olsen. Hlutverk Jóns var í höndum Jónasar Tryggva- sonar, nýliðans í hópnum. Hlutverkiö er ekki stórt en Jónas skilaöi því rnjög vel. Björn Sveinsson og Ólafur Ólafsson voru einnig í litlum hlutverk- um en inntu þau vel af hendi. í heild er ballettlnn mjög vel unninn en alltaf er hægt að finna eitthvaö sem ekki er nógu gott. í Brúökaupsenunni er það prósessian sem er ekki mjög vel æfö. Eg held þetta lagaöist ef dansarnir hlustuöu betur á tónlistina. Annars er það ótrúlegt hvaö Kuuselu hefur tekist að laða fram það besta í hverjum og einum á ekki lengri tíma. Leikmynd og búninga gerði Sigur- jón Jóhannesson. Hvorttveggja er mjög einfalt og látlaust og fellur vel aö efni ballettsins. Ballettinn Fávitar er gerður eftir sögu Dostoyevskis, „Fávitinn", og er hér um að ræða fimm persónu- gervinga. Gestur kvöldsins finnski listdansarinn, samdi þennan ballett í tilefni að keppni danshöfunda sem Samband finnskra listdansara efndi til. Verkið hlaut fyrstu verðlaun. Þeir sem sáu Tommi Kitti dansa hlutverk Jóhanns Bogesens, Guðmunds og Kvíajukka í Sölku Völku vissu að þeir áttu von á fyrsta eftir IRMY TOFT flokks sýningu. Eins og áður sagði er hér um fimm persónugervinga að ræða og dansar Tommi Kitti hvern og einn þeirra af hárfínni nákvæmni og skilningi. Hver hreyfing nær alveg fram í fingurgóma, hver sin og taug virkjuð. Þvílík innlifun, þvílík túlkun. Tommi Kitti hlýtur að vera einn snjallasti listdansari sem hefur heim- sótt okkur íslendinga og vona ég að hann eigi eftir aö gleðja okkur með list sinni um ókomna framtíð. Kristín Björnsdóttir kom einnig fram í Fávitunum. Bar hún inn spjöld sem kynntu atriðin. Ég er hrædd um að kynningin hafi farið ofan garð og neðan hjá mörgum því þetta var allt á finnsku. Það hefði nú ekki verið mikið verk aö snara þessu á íslensku. Tónlistin var meöal annars eftir Tchaikovsky, Bach, Villa Lobos, Prokofiev o.fl. Því miður var bara hálft hús, en auövitaö má skrifa það á reikning veðurguðanna því þeir voru í hinu versta skapi á fimmtudagskvöldið. Áhorfendur fögnuðu listamönnum ákaft og voru þeir kallaöir fram hvað eftir annað. Að lokum vil ég óska dansflokkn- um til hamingju með virkilega góða oq vandaöa sýningu. Irmy Toft. Fæst í næstu búö. WIPP EXPRESS í allan handþvott Enn eitt úrvalsefniö frá Henkel. m Freyöandi þvottaefni í allan handþvott Þægilegt, handhægt, fer vel meö hendurnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.