Morgunblaðið - 13.03.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
„Treystum samstöðu
og vináttu við vestræn-
ar lýðræðisþjóðir”
9
Avarp Guðmundar H. Garðarssonar við
setningu ráðstefnu SVS 10. marz sl. —
Atlantshafsbandalagið — Friður í 30 ár
Ég býð ykkur velkomna til þess-
arar ráðstefnu, sem samtök um
vestræna samvinnu efna til í tilefni
þess, að um þessar mundir eru 30
ár liðin frá stofnun Norð-
ur-Atlantshafsbandalagsins.
Bandalag þetta var stofnað til þess
að halda uppi friði og reglu í
heiminum, og þá fyrst og fremst á
því heimssvæði, sem ríki þess taka
yfir.
Segja má, að það hafi tekizt í
stórum dráttum, hvað yfirráða-
svæði Atlantshafsbandalagsrikj-
anna sjálfra áhrærir. Nokkrir inn-
byrðis hagsmunaárekstrar hafa átt
sér stað á þessu 30 ára tímabili. Er
það i sjálfu sér skiljanlegt, þegar
haft er í huga, að bandalagið er
myndað af 15 ríkjum með tæplega
600 milljónir íbúa. Sérhvert banda-
lagsríki á sér ákveðna forsögu,
hagsmuni og hefðir, sem við
ákveðnar kringumstæður getur
verið efitt að aðlaga hagsmunum
annarra aðildarríkja og heildar-
innar, svo öllum líki. Er þetta
alþekkt fyrirbrigði í samskiptum
einstaklinga og stétta í lýðræðis-
ríkjum.
En þegar litið er yfir tímabilið í
heild — 30 ár — sést, að aðildar-
ríkjunum hefur tekizt að leysa
innbyrðis ágreining og treysta frið
og frelsi þeirra þjóða, sem mynda
Atlantshafsbandalagið. Framsókn
og frekari valdataka kommúnista í
Evrópu var stöðvuð við stofnun
Atlantshafsbandalagsins 4. apríl
1949.
Undir öruggri forustu Bjarna
Benediktssonar, þáverandi utan-
ríkisráðherra, sameinuðust lýðræð-
isfiokkarnir þrír, Alþýðuflokkur-
inn, Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn um það á
Alþingi, 30. marz 1949, að Island
skyldi gerast stofnaðili að Atlants-
hafsbandalaginu.
Þegar umræður fóru fram um
þessi mál á Alþingi í marz 1949,
sýna ummæli Bjarn_ Benediktsson-
ar glöggt mikla framsýní og djúpan
skilning á framtíðarhagsmunum og
öryggi íslenzku þjóðarinnar í vá-
lyndum heimi, þegar hann segir:
„Meginþorri íslendinga er stað-
ráðin í að taka þátt í þessum
Þetta voru orð að sönnu.
Þá sem nú sameinast lýðræðis-
flokkarnir þrír um þessa stefnu í
varnar- og öryggismálum.
Þessi ráðstefna er liður í því að
árétta þessa samstöðu sem skiptir
sköpum fyrir frelsi og sjálfstæði
íslenzku þjóðarinnar.
Við höfum fengið hina færustu
menn úr röðum stjórnmálamanna,
embættis- og blaðamanna ásamt
sagnfræðingi til að fjalla um þessi
mál. Þeir munu ræða um fortíð,
nútíð og framtíð. Framlag þeirra
og ykkar í mótun og framkvæmd
stefnu Islands í varnar- og öryggis-
málum er mikilsvert. Þá er það
hlutverk okkar að sjá til þess að
þjóðin haldi vöku sinni í þessum
efnum. Andvaraleysi í utanríkis- og
varnarmálum er vatn á myllu
þeirra, sem vilja vestrænt borgara-
legt lýðræði feigt.
Minnugir þessa stöndum við vörð
um þjóðlegar hefðir og hefðbundið
þingræði,
Samtímis treystum við samstöðu
og vináttu við vestrænar lýðræðis-
þjóðir.
Að svo mæltu segi ég þessa
ráðstefnu Samtaka um vestræna
samvinnu — Atlantshafsbandalag-
ið — friður í 30 ár — setta.
Björn Bjarnason:
Ráðstefnan sýndi
og staðfesti samstöðu
lýðræðisflokkanna
„ÞÁTTTAKA var mjög góð og
góður rómur var gerður að máli
manna,“ sagði Björn Bjarnason,
skrifstofustjóri, en hann stjórnaði
ráðstefnu Samtaka um vestræna
samvinnu, sem haldin var um helg-
ina.
Björn sagði, að flutt hefðu verið
fróðleg erindi, sem ætlunin væri að
gefa út sérstaklega síðar. „Ráðstefn-
an sýndi samstöðu þeirra þriggja
flokka, sem ávallt hafa stutt aðildina
að Atlantshafsbandalaginu. Flokk-
arnir sýndu samstöðu og staðfestu,"
sagði Björn Bjarnason.
Guómundur H. Garðarsson:
Umræðumar voru hafn-
ar yfir allt dægurþras
„RÁÐSTEFNAN tókst mjög vel og
þar voru fluttar frábærar fram-
söguræður,“ sagði Guðmundur H.
Garðarsson, formaður Samtaka um
vestræna samvinnu, f samtali við
Morgunblaðið í gær. „Umræður
voru góðar og gagnlegar, svo sem
vera ber, þegar fjallað er um utan-
rfkismál. Einkenndust umræður
manna af raunsæi og skilningi á
þessum málum.“
Guðmundur kvað þá menn, sem
tekið hefðu til máls, hafa rætt
varnarmálin og aðild íslands að
Atlantshafsbandalaginu með þeim
hætti, að umræðurnar hefðu verið
hafnar yfir allt dægurþras, án til-
finningavellu. Þannig sagði hann að
ætti að ræða þessi mál og þannig
væri það gert meðal annarra þjóða.
Frá ráðstefnu Samtaka um vestræna samvinnu: Frá vinstri Magnús Þórðarson, framkvæmdastjóri,
Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður, Einar Ágústsson, alþingismaður, Guðmundur H. Garðarsson,
formaður Samtaka um vestræna samvinnu, Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, og Björn Bjarnason
ráðstefnustjóri. í ræðustól er Benedikt Gröndal utanríkisráðherra. _ ljísib: ói.k.m.
Séð yfir ráðstefnusalinn.
Hermann Bridde gefandi ræðupúltsins ásamt Guðmundi H. Garðars-
syni, formanni stjórnar Samtaka um vestræna samvinnu, við gjöfina,
sem er úr völdum palisander og völdu fslenzku birki.
Gaf vandað
ræðupúlt
HINN 9. marz síðastliðinn gaf
Hermann Bridde, bakarameistari,
Samtökum um vestræna sam-
vinnu og Varðbergi ræðupúlt að
gjöf með þeirri ósk að félögin
notuðu það á fundum, þegar fjall-
að væri um málefni Atlantshafs-
bandalagsins.
Ræðupúltið er smíðað af Guð-
mundi Ó. Eggertssyni, formanni
prófnefndar í húsgagnasmíði, úr
völdum palisander. Sveinn Ólafs-
son myndskeri skar merkið í valið
íslenzkt birki. Með þeirri ósk, að
takast mætti að auka skilning
landsmanna á Atlantshafsbanda-
laginu og að það kæmi að góðum
notum á fundum, afhenti Hermann
Bridde púltið stjórn Samtaka um
vestræna samvinnu.