Morgunblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
21
TVl nrrtnnhTrtíSííS
\) v{n t p
r-^í - rr—r~—r f. r «-»
j3/Í/y7; fví it*
Ji*.<4 l \ j„ i, * sw' ÍL*f
Fer hópur
íþróttaíólks
til Kanada
ÍÞRÓTTAFÓLKI á íslandi stendur til boða að íara til Kanada,
nánar tiltekið til Manitoba á sumri komanda. Hér er um að ræða
hóp íþróttafólks eða nokkuð á annað hundrað manns. Frá þessu
er greint í blaðinu Lögberg — Heimskringla fyrir skömmu.
bað er Jón Ásgeirsson fyrrverandi íþróttafréttamaður ríkisút-
varpsins og núverandi ritstjóri Lögbergs — Heimskringlu sem
hefur átt veg og vanda að skipuleggja og undirbúa ferð þessa.
Undirbúningur í þessu samhandi hefur staðið alllengi og nú er
svo komið, að Iþróttasamband Manitoba og íslendingadagsnefnd-
in hafa sameinast um að annast móttöku hópsins og greiðir
íþróttasambandið allan kostnað af dvöl fólksins ytra. Gert er ráð
fyrir að þátttakendur greiði fargjöld sín sjálfir.
Þetta kostaboð hefur ekki enn verið kynnt opinberlega hér, en
vafalaust verður því fagnað. Hér er einstakt tækifæri fyrir íslensk
ungmenni að kynnast Kanada. Nýja íslandi og fólkinu sem þar
býr, og um leið að styrkja vináttusambönd milli þjóðanna.
Gert er ráð fyrir að íþróttafólki úr mörgum mismunandi
greinum verði boðið, piltum, stúlkum, konum og körlum.
Megintilgangurinn með ferðinni er að etja kappi við jafnaldra
sína, auk þess sem stuðlað er að gagnkvæmum samskiptum
unglingana á margvíslegan hátt og er sú reynsla ómetanleg.
Verði úr þessari fyrirhuguðu för íþróttafólks frá íslandi þá
verður það í fyrsta skipti sem svo fjölmennur hópur fer frá
íslandi til annars lands í keppnisferð. _ j,r
Sóðaskapur
ÞAÐ VAKTI mikla athygli þeirra sem voru svo ólánsamir að sjá
til, þegar ÍR og Fylkir léku í Höllinni á laugardaginn, að Bjarni
Bessason snaraði sér þá eitt sinn að hliðarlínunni og tók þar
gúlsopa af svaladrykknum sem á ÍR-bekknum var. Það er ekkert í
sjálfu sér athugavert við að væta kverkarnar, en þegar spýjan
gekk út úr honum á gólfið fyrir allra augum hneyksluðust
margir, enda á ferðinni forkastanlegur sóðaskapur í piltinum.
Það er jafnan mikil umferð áhorfenda og leikmanna við
hliðarlinurnar og því stórhættulegt að vera þarna á vappi, því að
fyrir utan sóðaskapinn af þessu, er þetta hin versta slysagildra.
Máttu liðsstjórar og varamenn ÍR-inga láta sig hafa það að þrífa
upp pollinn og þeir gerðu vel ef þeir hefðu með sér lítinn kopp
framvegis, sem Bjarni gæti notað til hráka sinna.
Margir til
Stiörnunnar
• Magnús Teitsson ...aftur
stjörnuna?
3. DEILDARLIÐI Stjörnunnar
í Garðabæ hefur nú borist
mikill og góður liðsauki fyrir
komandi knattspyrnuvertíð.
Það eru þeir Guðmundur
Yngvason. Magnús Teitsson og
Þorvaldur Þórðarson sem hafa
gengið til liðs við félagið. Eftir
því sem Mbl. kemst næst, hafa
bæði Guðmundur og Þorvaldur
þegar gengið frá sfnum félaga-
skiptum, en eitthvert minni
háttar formsatriði mun enn
vera óklárt með félagaskipti
Magnúsar.
Þeir þremenningarnir eru
allir fyrrverandi leikmenn með
Stjörnunni, en hafa á síðustu
árum freistað gæfunnar hjá
öðrum liðum. Guðmundur iék
eitt keppnistímabil með KR og
síðan lá leiðin til Þróttar á
Neskaupstað. Guðmundur var
einnig leikmaður með Faxa-
flóaúrvalinu fræga á sinum
tíma. Magnús Teitsson hefur
leikið knattspyrnu með FH
síðustu knattspyrnuvertíðir og
sama er að segja um Þorvald.
Þeir Guðmundur og Magnús
eru sterkir miðvallarspilarar,
en Þorvaldur er markvörður.
- gg-
rr *f\t
SÆNSKU fréttastofunni TT barst bréf þetta í hendurnar fyrir
skömmu. Á myndinni má sjá Björn Borg, tennissnillinginn í
einkennisbúningi ísraelska hersins. Hann gerði það að gamni sinu
að láta mynda sig á þennan hátt fyrir skömmu.
En það tóku þessu ekki allir sem gríni, því að einhver rauða
herdeildin dæmdi Björn umsvifalaust til dauða, eins og sést á
myndinni. Það er ekki öll vitleysan eins.
Margir eru þó á þeirri skoðun, að dauðadómur þessi sé gabb og
það sé engin rauð herdeild í Danmörku, þaðan sem bréfið var
sent. A.m.k. er Björn Borg í fullu fjöri, en fleiri lögreglumenn en
venja er til fylgdust þó gaumgæfilega með siðasta leik kappans
sem fram fór í Randers í Danmörku, en það var sýningarleikur
við John McEnroe.
Enski bikarinn:
Liverpool gegn
Manchester Utd?
BIJIÐ er að draga í undanúrslitum ensku og skosku bikarkeppn-
innar þó að ýmsum viðureignum síðustu umferðar sé enn ekki
lokið vegna tafa og jafntefla. Liverpool er eina liðið sem heíur
þegar tryggt sér rétt í undanúrslitum. þegar þetta er ritað.
Liverpool leikur síðan annaðhvort gegn Manchester Utd eða
Tottenham og verður það stórleikur, hvort liðið sem áfram kcmst.
Arsenal. Southampton eða WBA mætir síðan Úlfunum eða
Shrewsbury. Vinni Manchester Utd Tottenham. verður viðureign
liðsins gegn Liverpool endurtekning á úrslitaleiknum í keppninni
árið 1977. Þá keppti Liverpool að þrennunni, meistaratigninni,
bikarnum og Evrópubikarnum. Það eina sem gekk liðinu úr
greipum, var FA-bikarinn. MU vann nefnilega óvæntan sigur í
úrslitaleiknum, 2—1.
í skozku bikarkeppninni verður það hlutskipti annað hvort
Celtic eða Aberdeen að leika gegn Hibernian, en Partich Thistle
og Rangers mætast í hinum leik undanúrslitanna. Báðir leikirnir
fara fram á Hampden Park í Glasgow, svo og úrslitaieikurinn
sjálfur.
Sextugur Reykvíkingur
vann 848.500 í
getraununum
í 29. leikviku kom fram einn seðill með 12 réttum og átti
liann sextugur vélstjóri úr Reykjavík. Hlýtur hann kr.
848.500.- fyrir sinn 4 raða seðil. Með 11 rétta voru 1 seðlar og
vinningur á hvern kr. 90.900.-.
Vegna tafanna, sem orðið hafa á bikarkeppninni ensku, var
ekki ha>gt að notast við leiki úr 8-liða úrslitum þeirrar keppni
á laugardag. Þegar seðillinn fór í prentun. voru aðeins fyrir
hendi 9 leikir í 1. og 2. deild og var fyllt upp með 3 leikjum úr
3. deild, en hvað um það, allir leikirnir gátu farið fram.
Þróttur
sigraói
ÞRÓTTUR sigraði Mími í 1.
deiid íslandsmótsins í blaki
á iaugardaginn með 3 hrin-
um gegn 1. Þróttur mætti
ákveðinn til leiks og komst í
5—0 í fyrstu hrinunni en þá
lifnaði yfir Mímismönnum
og tókst þeim að vinna hana
15—11. Áðra hrinuna unnu
Þróttarar auðveldlega
15—5 og skorti Mímismenn
þá alla ákveðni. Þriðju og
fjórðu hrinuna unnu Þrótt-
arar einnig, 15 16—9 og
15—3, og áttu þá Jason og
Böðvar mjög góðan leik, en
það sem Mími skorti var
hávörn því hún sást varla
hjá þeim í ieiknum.
Víkingur tryggði sér end-
anlega sæti í 1. deild með
öruggum sigri yfir Breiða-
bliki í 2. deild karla. Víking-
ur á að vísu enn eftir að
leika gegn Fram,- en félagið
má tapa þeim leik, en vinna
samt sigur í mótinu. Víking-
ur vann 3—0, hrinurnar
fóru 15—9, 15—6 og síðan
algert burst, 15—2.
G.Á.
FH-Haukar
TVEIR stórleikir fara fram
í 1. deild íslandsmótsins í
handbolta í kvöld. Einn í
karlaflokki og hinn í
kvennaflokki. Þetta eru
stórleikir Hafnarfjarðar,
viðureignir FH og Hauka.
Kvennaliðin eigast við
klukkan 20.00 og kariarnir
keppa síðan strax á eftir.
Þetta er í fimmta skiptið
sem FH og Haukar eigast
við í karlaflokki í vetur og
staðan til þessa er 2—2. Það
er annað í húfi og það er
hvar liðin hafna endaniega í
deildinni. Bæði liðin virðast
í báðum fiokkum, hafa
tapað af lestinni um Islands-
meistaratitilinn og keppa
því að því að vera framar
hinu í deildinni. Það verður
því ekkert gefið eftir.
ÍR
UMFN
ÍR og Njarðvík leiða í
kvöld saman hesta sína í
undanúrslitum bikarkeppni
KKÍ og hefst leikurinif
klukkan 20.00. Fer leikur-
inn fram í íþróttahúsi llaga-
skólans. Lið þessi hafa í
vetur marga hildi háð og þá
ekki alla vinsamlega. Vafa-
lítið verður hér um jafna og
spennandi viðureign að
ræða.
Handbolta
skóli
Handhoitaleikssambandi
(slands hefur borizt boð um
að senda nemendur á
Júgóslavneska hand-
holtaskólann. Boðið er fyrir
þjálfara (lengra komna).
Skólinn verður í bað-
strandarbænum PULA. dag-
ana 23,—30. júní næstkom-
andi.
Þátttakendur skulu bera
allan kostnað sjálfir, sem er
allur ferðakostnaður og að
auki I)M 450,- pr. viku fyrir
uppihald.
Nánari upplýsingar og
óskir um þátttöku skulu
hafa borist stjórn ILS.Í.
fyrir 1. apríl n.k. í pósthólf
864.121 REYKJAVÍK.