Morgunblaðið - 13.03.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
Njarðvík tók ÍS
i kennslustund
NJARÐVÍKINGAR tóku
stúdenta heldur betur í kennslu-
stund er liðin mættust í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
„ljónagryfjunni“ í Njarðvík á
laugardaginn. Njarðvíkingar
léku sér að stúdentum eins og
köttur að mús og lauk leiknum
með 33 stiga mun, 119:86 UMFN í
vil, eftir að staðan í leikhléi hafði
verið 57:45.
UMFN byrjaði með mikium
látum og fyrr en varði var staðan
orðin 12:2. Stúdentar réttu þó úr
kútnum og skoruðu næstu 8 stig
og var leikurinn fremur jafn
framan af. Er rúmar 5 minútur
voru til leikhlés hafði UMFN hins
vegar náð 13 stiga forystu og í
leikhléi var staðan sem fyrr sagði
57:45.
Síðari hálfleikinn léku Njarð-
víkingar stórkostlega vel, hraðinn
í leik þeirra var mjög mikill, alltof
mikill fyrir IS, sem gerði þá
reginvitleysu að reyna að leika á
sama hraða, hraða sem þeir réðu
alls ekki við. Flest gekk upp hjá
UMFN og munurinn jókst jafnt og
þétt og var í lokin orðinn 33 stig,
119:86.
Segja má að leikurinn á laugar-
daginn hafi verið sannkölluð veisla
fyrir Njarðvíkinga. Þeim tókst að
keyra upp hraðann og þegar það
tekst leika Njarðvíkingar best.
UMFN-liðið er mjög jafnt og
virðist nokkurn veginn sama
hvaða lið er inni á vellinum. Ohætt
er að segja að allir leikmennirnir
hafi staðið sig vel að þessu sinni
sem sjá má af því hve stigaskorun-
in dreifist jafnt. Geir Þorsteinsson
átti stórleik, sérstaklega í fyrri
hálfleik, en þá brenndi hann varla
af skoti. Þá á Guðsteinn Ingimrs-
son hvern leikinn öðrum betri. Ted
Bee stendur alltaf fyrir sínu og
sýnir glæsileg tilþrif á köflum og
ein karfa hans í þessum leik er ein
sú fallegasta sem undirritaður
hefur séð. Árni Lárusson og Stefán
Bjarkason áttu báðir mjög góðan
leik, en þeir tóku mikinn sprett í
síðari hálfleik. Þá skiluðu Gunnar
Þorvarðarson og Jónas Jóhannes-
son sínu.
Trent Smock bar höfuð og herð-
ar yfir aðra leikmenn stúdenta.
Lék hann nú sinn langbesta leik
með IS og réðu Njarðvíkingar
ekkert við hann. Hins vegar virðist
hann enn ekki kominn í nægilega
góða æfingu. Jón Héðinsson átti
ágætan leik, en hann er leikmaður
sem mætti alveg gera meira upp á
eigin spýtur. Jón Oddsson komst
vel frá leiknum svo og Gísli Gísla-
son og Steinn Sveinsson. Aðrir
voru með daufasta móti.
Stigin fyrir UMFN: Ted Bee 25,
Geir Þorsteinsson 20, Guðsteinn
Ingimarsson 17, Árni Lárusson og
Stefán Bjarkason 14 hvor, Gunnar
Þorvarðarson 12, Jónas Jóhannes-
son 10, Guðbrandur Lárusson 5 og
Júlíus Valgeirsson 2.
Stigin fyrir ÍS: Trent Smock 46,
Jón Héðinsson 12, Bjarni G.
Sveinsson og Jón Oddsson 7 hvor,
Steinn Sveinsson 6, Gísli Gislason
4, Albert Guðmundsson og Gunnar
Halldórsson 2 hvor.
Mjög góðir dómarar voru Jón
Otti Ólafsson og Þráinn Skúlason.
ÁG.
Kefívíkingar sigruðu
Grindvíkinga
ÍBK - UMFG 92:86 (46:46)
Á sunnudaginn mættust í íþrótta-
húsinu í Njarðvík ÍBK og UMFG
og reiknuðu flestir með að
Grindavík myndi sigra, því að
þeir hafa verið í toppbaráttu í
vetur, en ÍBK hins vegar lengst
af verið nær neðri helmingi
deildarinnar. Keflvíkingarnir
gerðu sér hins vegar lítið fyrir og
sigruðu í leiknum með 92 stigum
gegn 86, cn í leikhléi var staðan
jöfn, 46:46.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og munaði oftast ekki nema 1 stigi
á annan hvorn vegjnn. ÍBK náði í
síðari hálfleik mjög góðum kafla
og komst þá 13 stigum yfir og
gerði þar með út um leikinn. Þá
bætti það ekki úr skák fyrir
Grindvíkinga, að Mark Holmes
fékk sína 5. villu á 17. mínútu
hálfleiksins og var kappinn ekki
alveg sáttur við þá villu en eina
sem hann hafði upp úr krafsinu
var rautt spjald. Það kemur þó
ekki að sök, því að UMFG hefur
lokið leikjum sínum i mótinu.
Þegar 1 mínúta var til leiksloka
hafði ÍBK 11 stiga forystu og
sigurinn var því aldrei í hættu.
Stigin fyrir IBK: Einar Steins-
son 31, Ágúst Líndal 21, Björn V.
Skúlason 18, Björn Ingólfsson 12
og Pétur Jónsson 10.
Stigin fyrir UMFG: Mark
Holmes 30, Eyjólfur Guðlaugsson
20, Ólafur Jóhannesson 19 og
Ragnar Eðvaldsson 12.
UMFG - Ármann 97-%.
Grindvíkingar sigruðu í mjög
spennandi og hörðum leik, og
mátti ekki á miili sjá hvoru megin
sigurinn lenti. Verður nánar
greint frá leiknum síðar.
Þór lék sinn
besta leik
ÞÓRSARAR sigruðu ÍR-inga f
úrvalsdeildinni í körfuknattlcik á
laugardag með 88 stigum gegn
83. Leikurinn fór fram á Akur-
eyri og var afar jafn allan tím-
ann. Liðin skiptust á um að hafa
forystuna og skildi aldrei meira
með liðunum en 4 stig, nema í
lokin er 5 stiga sigur Þórsara var
staðreynd. í hálfleik var staðan
43—41 fyrir ÍR.
Þórsarar léku á laugardag sinn
besta leik í vetur. Barátta leik-
manna var mikil. Leikmenn allir
sem einn fóru upp í fráköstin og
höfðu þar oftast betur en ÍR-ingar.
Þó svo sigur þessi hafi verið
kærkominn, kemur hann því
miður of seint. Að vísu er fræði-
legur möguleiki á að Þór haldi
sæti sínu, en til þess þarf liðið að
sigra bæði KR og Val og er það
fremur langsótt, þó svo ákveðni og
leikgleði Þórsara sé mun meiri nú
en oftast fyrr í vetur.
I ieiknum á laugardag átti Þórs-
liðið í heild ágætan dag. Mark
Christiansen var að venju besti
maður liðsins og er undirrituðum
ekki til efs að þar fer sterkasti
bandaríski körfuboltamaðurinn
sém hérlendis dvelst. Birgir
Rafnsson, Eiríkur Sigurðsson og
Karl Ólafsson léku sinn besta leik
i langan tíma. Þá átti Jón Indriða-
son þokkalegan leik.
ÍR-ingar tóku vart á honum
stóra sínum, alla vega ekki í
byrjun leiksins, hafa e.t.v. talið sér
sigurinn vísan fyrir fram. ÍR-ing-
ar náðu sér síðan alls ekki á strik,
fyrst og fremst fyrir góðan leik
Þórsara. Bræðurnir Jörundssynir,
Jón og Kristinn, voru langt frá
sínu besta. Þannig skoraði Jón
aðeins 8 stig og Kristinn 14, sem er
fjarri því sem þeir skora venjulega
í leik. Hins vegar átti Stefán
Kristjánsson stórgóðan leik að
þessu sinni og einnig var Koibeinn
góður. Paul Stewart var hins vegar
sterkastur ÍR-inga á laugardag.
Guðbrandur Sigurðsson og Flosi
Sigurðsson dæmdu leikinn og voru
þeim heldur mislagðar hendur, án
þess að dómar þeirra bitnuðu öðru
fremur á öðru liðinu.
Stig Þórs: Mark 26, Jón og
Eiríkur 16 hvor, Birgir 14, Karl 12,
Þröstur og Sigurgeir 2 hvor.
Stig ÍR: Stewart 21, Stefán 16,
Kristinn og Kolbeinn 14 hvor, Jón
og Sigmar 8 hvor, Kristján 2 stig.
Sigb.G.
• Njarðvíkingar áttu stórleik gegn ÍS á laugardaginn og var Geir
Þorsteinsson þar fremstur í flokki. Hér sést hann brjótast framhjá Albert
Guðmundssyni. (Ljósm. ÁG).
Dæmt i
kæru Vals
A SUNNUDAGINN kvað dóm-
stóll KKRR upp dóm sinn í máli
sem Valsmenn höfðuðu eftir leik
liðsins gegn ÍR í úrvalsdeildinni f
körfuknattleik. Sem kunnugt er
héldu Valsmenn, að þeir væru
einu stigi yfir þegar skammt var
til lciksloka og töfðu því leikinn.
en þegar farið var yfir skýrsluna
að leik loknum kom f ljós að það
voru ÍR-ingar, sem höfðu eitt stig
yfir.
Valsmenn báru aðallega fyrir
sig í kæru sinni, að ritari leiksins
hefði verið óhæfur til að gegna
starfanum. Hafði þetta m.a. einnig
komið fram í einu síðdegisblað-
anna. Viðkomandi ritari mun hins
vegar alvanur að skrifa leiki og
hafði einnig dómarapróf upp á
vasann. Því var ekki um annað að
ræða en dæma leikinn eftir efni
skýrslu þeirrar er rituð var og
samkvæmt henni skoruðu ÍR-ing-
ar fleiri stig og unnu því leikinn.
Dómurinn tók þó einnig fram, að
af sanngirnisástæðum hefði e.t.v.
átt að leika leikinn að nýju, en
samkvæmt þeim reglum sem giltu
væri slíkt einfaldlega ekki heimilt.
Ekki hefur enn frést hvort Vals-
menn muni áfrýja dómi KKRR til
dómstóls KKÍ, en slíkt er þó mjög
trúlegt.
Mikla athygli hefur vakið í vetur
hversu margir leikir hafa ’verið
bendlaðir við vafasama skýrslu-
gerð. Talið var að Njarðvíkingar
hafi verið hlunnfarnir um eitt stig
í leik liðsins gegn KR á dögunum,
en eftir framlengdan leik sigruðu
KR-ingar. Þá gerðist það á föstu-
daginn, að Ármenningar töldu að
tvö stig hefðu verið tekin af liðinu
er þeir töpuðu með einu stigi gegn
Grindavík. Margir spyrja hver
beri ábyrgð á mistökum . sem
þessum. Undirritaður er á þeirri
skoðun, að aðaldómari leiksins sé
sá sem telja eigi þau stig, sem
skoruð eru eða að minnsta kosti
fylgjast svo vel með störfum ritara
að þessi leiðu mistök komi ekki
fyrir. Eru vafalaust allir sammála
um, að mistök sm þessi rýra mjög
álit manna á körfuknattleiknum
og því er mál að linni.
KÍg
Einkunnagjöfin
UMFN: Árni Lárusson 3, Geir Þorsteinsson 4, Guðbrandur Lárusson 2,
Guösteinn Ingimarsson 3, Gunnar Þorvarðarson 3, Jón V. Matthíasson 1,
Jónas Jóhannesson 2, Júlíus Valgeirsson 1, Stefán Bjarkason 3.
ÍS: Albert Guðmundsson 2, Bjarni G. Sveinsson 2, Gísli Gíslason 2, Gunnar
Halldórsson 1, Ingi Stefánsson 1, Jón Héöinsson 3, Jón Oddsson 2, Steinn
Sveinsson 2.
Þór: Jón Indriöason 2, Eiríkur Sigurösson 3, Birgir Rafnsson 3, Þröstur
Guöjónsson 1, Karl Ólafsson 3, Sigurgeir 1, Ómar Gunnarsson 1.
ÍR: Kristinn Jörundsson 2, Jón Jörundsson 1, Kolbeinn Kristinsson 2, Stefán
Kristjánsson 3, Sigmar Karlsson 2, Kristján Sigurðsson 1.