Morgunblaðið - 13.03.1979, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
Mistök á viö
5 meóalleiki
ÞAÐ mátti glöggt sjá, þcgar
Fylkir og ÍR áttust við í 1. deild
Islandsmótsins í handknattleik á
iaugardaginn, hve geysimikil-
vægur leikurinn var í botnbar-
áttu deildarinnar og eins, hve
slök þessi lið í rauninni eru, enda
leikurinn skelfilega lélegur og
hrútleiðinlegur á að horfa. Mis-
tökin á báða bóga tröllriðu
þessum leik af slíku alefli, að þeir
menn hjá félögunum, sem sitja á
bekkjunum og skrá mistök og
nýtingu einstakra leikmanna,
hefðu hæglega getað gefið út
framhaldssögu. Ilvað eftir annað
virtust leikmenn vera að senda
knöttinn á einhvern ósýnilegan
samherja á áhorfendapöllunum.
Það var IR sem hafði betur í
vitieysunni, skoraði oddamarkið
af 35, 18—17, staðan í hálfleik
var 8—5 fyrir ÍR.
Taugaspennan var vissulea
mikil og það útskýrir að nokkru
leyti mistökin. Maður hélt þó að
takrpörk væru fyrir öllu. Um
leikinn er það að segja, að á 20.
mínútu skoraði Bjarni Bessason
fimmta mark ÍR og hafði verið
jafnt á öllum tölum fram að því.
Þarna urðu þáttaskil í leiknum,
því að eftir þetta hélt ÍR
forystu,sem var allt frá 3 mörkum
niður í eitt mark, nokkrum sinn-
um, m.a. í lokin. Fyrri hálfleikur-
inn gekk Jrannig fyrir sig í stuttu
máli, að IR-ingar hnoðuðu gegnd-
arlaust á miðju Fylkisvarnar-
innar, sóknirnar voru firnalangar
og svæfandi. Loks þegar Fylkis-
menn náðu knettinum var undan-
tekningalítið púðrað ótímabæru
skoti. Avallt rambaði leikurinn á
barmi leikleysu.
Þrátt fyrir að nokkrum sinnum
nærri lokum leiksins munaði
aðeins einu marki, var leikurinn
aldrei spennandi, því maður hafði
það ávallt á tilfinningunni að
Fylkismenn myndu klúðra tæki-
færum sínum til að jafna. Og þeir
brugðust ekki. ÍR-ingar héldu
Fylkismönnum frá sér, einkum
vegna mistaka Fylkismanna
sjálfra, þannig að staðan 18—15
þegar 2 mínútur voru til leiksloka.
Það skipti ekki máli þó að Fylkis-
menn skoruðu tvö síðustu mörkin,
IR-sigur var í öruggri höfn.
Þrátt fyrir að leikurinn hafi í
heild verið höfuðlaus, hlýtur
eitthvað að vera vel gert þegar 35
mörk eru skoruð. Sigurður
Svavarsson var einna skástur úti-
spilara IR, hörkutól í vörninni og
brást aldrei í mikilvægum víta-
skotum. Annars var markvörður-
inn Jens Einarsson að venju lang-
besti maður IR, en hann varði í
leiknum 13 skot, þar af tvö víti, á
mikilvægum augnablikum.
Jón Gunnarsson átti þokkalegan
leik, í marki Fylkis og þeir Einar
Einarsson og Halldór Sigurðsson
voru góðir í vörn. Einar átti auk
þess nokkra góða spretti í sókn-
inni, sem annars var í algerum
lamasessi í leiknum. Þar voru þeir
Gunnar Baldursson, Einar Ágústs-
son og Sigurður Símonarson
slakari en þeirra er venja. Stefán
Hjálmarsson stóð þó vel fyrir sínu
í hægra horninu.
Þeir Björn Kristjánsson og Óli
Ólsen blésu í flauturnar og er
ljóst, að dómarar geta verið í
öldudal eigi síður en lið eða leik-
menn. Dómgæsla þeirra félaga var
léleg, _um það voru flestir sam-
mála. í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild. Fylkir — ÍR:
17-18 (5-8).
Mörk Fylkis: Einar Einarsson 4,
Gunnar Baldursson 3, Kristinn
Sigurðsson, Einar Ágústsson,
Stefán Hjálmarsson og Magnús
Sigurðsson 2 mörk hver, Sigurður
Símonarson og Örn Hafsteinsson 1
hvor.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 5, Sig-
urður Svavarsson 4 (allt víti),
Guðmundur Þórðarson, Guðjón
Marteinsson, Brynjólfur Markús-
son 2 hver, Bjarni Bjarnason,
Hafliði Halldórsson og Ársæll
Hafsteinsson 1 hver.
Brottrekstrar: Sigurður Svavars-
son og Hafliði Halldórsson ÍR í 4
mínútur hvor, Einar Ágústsson og
Einar Einarsson Fylki 2 mínútur
hvor og Bjarni Hákonarson ÍR 2
mínútur.
Varin víti: Jens varði frá Magnúsi
og Gunnari, Guðjón skaut einu
sinni í stöng.
— gg.
Þorleifur með 16 af 29
mörkum KA gegn Þrótti
KA heldur áfram að veita efstu
liðum 2. deildar aðhald og eftir
sigurinn á Þrótti á sunnudaginn
á liðið allgóða möguleika á að
hreppa 2. sætið í deildinni og þá
um leið aukaleik við næstlægsta
lið 1. deildar um sæti i' 1. deildinni
næsta ár. Þróttur hins vegar er í
bullandi fallhættu niður í þriðju
deijd, nokkuð sem fæstir áttu von
á. Úrsiitin í viðureign Þróttar og
KA urðu þau að Norðanmenn
unnu 29:25 og geta Akureyr-
ingarnir fyrst og sfðast þakkað
einum manni þann árangur, Þor-
leifi Anani'assyni, sem skoraði 16
mörk í þessum leik. Þó ekki væri
vegna annars en Þorleifs ætti KA
að fá tækifæri á sæti í 1. deildinni
því í 1. deild á Þorleifur að leika
og hvergi annars staðar. Ef hann
hefði verið með 1. deildarliði
allan sinn feril er ekki spurning
um að hann ætti marga landsieiki
að baki.
Það var mikil harka í leik
Þróttar og KA og réðu dómarar
leiksins lítið við það sem fram fór
á fjölum hallarinnar. Ekki
hallaðist á annað liðið í dóm-
gæzlunni, lið KA var einfaldlega
heldur betra — eða réttara sagt,
Þorleifur leikur með KA. KA náði
strax forystu í þessum leik og var
hún 2 mörk í leikhléi, 16:14. í
seinni hálfleiknum jókst munur-
inn framan af, en Þróttur náði að
minnka muninn niður í 1 mark í
lokin. Óðagot Þróttara þegar gera
átti tvö mörk í hverri sókn gerði
það að verkum að KA náði aftur
öruggri forystu og vann
verðskuldað 29:25.
Auk Þorleifs Ananíassonar átti
Alfreð Gíslason mjög góðan leik
með KA og er þar mikið efni á
ferðinni. Guðmundur Lárusson
barðist vel í vörninni og hafði
gaman af að „hrekkja" Þróttara
enda sjálfsagt meðan dómarar
láta það óátalið. Annars var
varnarleikur liðanna ekki til að
hrópa húrra fyrir að þessu sinni.
Konráð Jónsson á við meiðsli að
stríða og var hann ekki svipur hjá
sjón í þessum leik. Hann gerði
aðeins 1 mark í leiknum, en gerir
að meðaltali 10—12 mörk í leik, og
munar um minna fyrir Þrótt. Páll
Ólafsson, betur þekktur sem
knattspyrnumaður, var bezti
maður liðsins að þessu sinni,
ásamt Einari Sveinssyni, sem átti
margar frábærar sendingar í
leiknum.
Mörk KA: Þorleifur 16 (8v),
Alfreð 5, Jón Árni 3, Jóhann 2,
Gunnar 2, Guðmundur 1.
Mörk Þróttar: Páll 9, Haildór 5,
Einar 4 (3v), Ari 3, Gunnar 1.
Sveinlaugur 1, Lárus 1, Konráð 1.
- áij.
Tvö auðveid stig
hjá KA gegn Leikni
KA krækti sér í tvö auðveld stig, er iiðið mætti Leikni í 2. deild
íslandsmótsins í handbolta um helgina. Lokatölur leiksins urðu
33—20 en staðan í hálfleik var 16 — 10 fyrir KA.
Það sama var uppi á teningnum í þessum leik sem og flestum síðustu
ieikjum Leiknis, liðið tefidi fram þjálfaralaust næstum eingöngu 2.
flokks strákum, sem eiga enga möguleika gegn fullorðnum,
leikreyndum mönnum. Þeir eiga þó margir hrós skilið fyrir
frammistöðuna, t.d. markvörðurinn Guðjón Einarsson.
Mótanefnd HSÍ fór enn á kostum hvað varðar leik þennan eins og
fram kemur í pistli annars staðar í íþróttablaði Mbl.
Mörk Leiknis: Ásmundur Kristinsson 6, Ólafur Ólafsson 5, Skafti
Jóhannsson 4, Viðar 2, Friðrik, Gunnar og Sveinbjörn 1 hver.
Mörk KA: Jón Árni og Þorleifur 7 hvor, Guðbjörn 6, AJfreð 5,
Hermann 4, Magnús 2, Guðmundur og Haraldur 1 mark hvor.
-KK-
•Þorleifur Ananiasson skoraöi 16
mörk á móti Þrótti, sem er áreiðan-
lega met hjá leikmanni í deildar-
keppninni í vetur.
• Viggó Sigurðsson var í miklum ham á móti Fram. Skoraði hann 9 mörk
þeim Atla Hilmarssyni nr. 10 og Sigurbergi Sigsteinssyni.
Víkin
miklui
ÞRÁTT fyrir góða viðleitni og
baráttu áttu Framarar aldrei
neina möguleika í' leik si'num / 1.
deildinni á móti mjög frísku
Víkingsliði á sunnudagskvöldið í
Laugardalshöllinni. Sigruðu Vik-
ingar í leiknum með 12 marka
mun, 32—20, og var sá sigur síst
of stór eftir gangi hans. Lcikur
Víkinga var allan tímann af-
bragðsgóður og sýndu þeir allar
sínar bestu hliðar. Ekki var nein
þreytumerki að sjá á þeim leik-
mönnum sem voru með landsiið-
inu á Spáni. nema síður væri. Þá
er mjög áberandi í hversu góðri
líkamlegri æfingu allir leikmenn
liðsins virðast vera. Mikil snerpa
og kraftur í hverjum leikmanni.
Það verður spennandi að fylgjast
með uppgjöri risanna Vals og
Víkings þegar liðin mætast. Þau
hafa nú afgerandi forystu í 1.
deildinni og ekkert hinna liðanna
virðist geta ógnað þeim nú á
lokaspretti mótsins.
Sýndu snilldartakta
Lið Víkings byrjaði leikinn á
móti Fram af krafti og tók þegar
forystuna. Framarar náðu þá að
jafna metin 3—3, en eftir það var
um yfirburði Víkinga að ræða.
Sýndu þeir afargóðan leik, sama
hvort var um að ræða varnar- eða
sóknarleik. Mikil og góð samvinna
var í vörninni, þar sem allir sýndu
dugnað og börðust vel, og um leið
var góð færsla á mönnum og
afarsjaldan sem Framari var
óvaldaður.
Ekki var sóknarleikur liðsins
síðri, boltinn gekk hratt á milli
manna og góð ógnun var í leik
liðsins. Þá er afar athyglisvert
hversu góðum tökum liðið hefur
náð á hraðaupphlaupum. Það var
ekki ósjaldan í leiknum sem Vík-
ingar komu Frömurum, í opna
skjöldu eftir hratt upphlaup.
Þrátt fyrir góðan leik Víkinga
börðust Framarar vel og héldu í
við þá lengst af í fyrri hálfleiknum
og þegar 20 mínútur voru liðnar af
leiknum skildu liðin aðeins tvö
mörk, staðan var 11—9. En á
síðustu 10 mínútum hálfleiksins
skora Víkingar þrjú mörk en
Framarar ekkert. Staðan í hálfleik
var því 14—9.
Ekki var minni völlur á Víking-
unum í síðari hálfleiknum. Drógu
þeir ekkert af leik sínum og léku
ávallt af festu og skynsemi þrátt
fyrir yfirburði sína. Það hefur oft
viljað brenna við í leik íslenskra
liða að þegar munurinn er orðinn
mikill leysist leikurinn upp í vit-
leysu en Bodan þjálfari Víkinga
virðist hafa góð tök á liði sínu og
allt er í föstum skorðum. Smátt og
smátt jókst munurinn með liðun-
um og á 50. mínútu leiksins var
munurinn orðin 10 mörk. Og 12
mörk skildu svo liðin í lokin.