Morgunblaðið - 13.03.1979, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
Janus tekur
við þjálfun
pólska
landsliósins
MENN höfðu á orði að Janus
Cerwinzky hefði komið spánskt
fyrir sjónir er hann fyrstur
manna gekk út úr rútu þcirri er
flutti landsliðsmenn Spánar í
handknattleik á hótel sitt í Berce-
lona á dögunum. íslenzka lands-
liðið var þá nýkomið á hótelið og
leikmenn stóðu í hóp á gangstétt-
inni fyrir utan. Janus varð kind-
ariegur á svip er hann sá íslenzku
leikmennina þarna, það var eins
og hann háifpartinn skammaðist
sín fyrir að vera í fylgd með
Spánverjum en ekki íslendingum.
Síðar í ferðinn: faldi Janus sig er
einn úr íslenzka hópnum óvart
villtist inn á fund hjá spánska
landsliðinu þar sem verið var að
fara yfir leik íslendinga og
Tékka á myndsegulbandi.
í raun er alls ekki hægt að
ásaka Janus fyrir að hann aðstoði
Spánverja. Það er ekki nema
eðlilegt að Spánverjar leiti til
eins fremsta handknattleiksþjálf-
ara í heimi og falist eftir aðstoð
hans. Einnig er það ekki nema
sjálfsagt að Janus þiggi fé fyrir
upplýsingar sínar. Það sem að
mönnum sárnaði í íslenzka hópn-
um á Spáni var að Janus skyldi
ekki viðurkenna það hreint út að
hann væri m.a. á Spáni til að
aðstoða heimamenn. Varla þurfti
hann að skammast sín fyrir það.
Svo virtist þó vera og hann var í
hálfgerðum feluleik allan tím-
ann, ef íslendingar voru á annað
borð á næstu grösum.
Janus Cerwinsky gerði góða
hluti með íslenzka landsliðið fyrir
b-keppnina í Austurríki 1977 og þá
varð hann hálfgerður dýrlingur í
augum íslenzkra handknattleiks-
unnenda. Leikmenn landsliðsins
dáðu Pólverjann ekki minna og
það var ekki minnst verk Janusar
að ísland tryggði sér rétt til
þátttöku í b-keppninni með 4.
yfirborðið og leikmenn vissu ekki
hvernig þeir áttu að umgangast
Janus sem þeir töldu hafa brugðist
sér og íslenzkum handknattleik.
Janus vissi greinilega ekki heldur
hvernig hann átti að umgangast
leikmenn og stjórn íslenzka liðs-
ins.
Æfingabúðir í 2000
metra hæð í
_________Austurríki___________
Þrátt fyrir þetta er Janus virtur
maður í alþjóðlegum handknatt-
leik og blaðamanni Morgunblaðs-
ins fannst því rétt að ræða við
Janus um hvað hann hefðist að um
þessar mundir og hræringar í
íþróttinni í heiminum. Janus var
hinn þægilegasti í viðmóti og
reyndar breyttist viðmót hans
gagnvart íslenzka liðinu etir því
sem leið á mótið og undir lok þess
var hann reiðubúinn að láta allar
nauðsynlegar upplýsingar í té.
Pólverjinn Zgliniesky var sömu-
leiðis mjög hjálplegur íslenzka
landsliðshópnum og það var
reyndar hann, sem upplýsti að
Janus væri aðstoðarmaður Spán-
verja í b-keppninni.
Nú er það pólska landsliðið hjá
Janusi, en við starfi landsliðsþjálf-
ara þar tekur hann um miðjan
þennan mánuð. Zgliniesky verður
með liðið ásamt Janusi, en sá
síðarnefndi var landsliðsþjálfari
fyrir nokkrum árum og gerði
pólskan handknattleik að stórveldi
í alþjóðlegum handknattleik.
— Þegar íþróttamálaráðherra
Póllands kom til mín skömmu
fyrir jól og bað mig að taka við
þjálfun landsliðsins gat ég ekki
skorast undan, segir Janus í sam-
tali við Morgunblaðið. — Persónu-
lega hefði ég kosið að taka ekki við
starfi landsliðsþjálfara strax, en
vildi hins vegar einbeita mér að
fræðslustarfsemi og uppbyggingu
— Pólverjar leika 35—40
landsleiki fram aö ÓL
í Moskvu segir hann
í samtali við Mbl.
sætinu í Austurríki. Það var ekki
hvað minnst verk Janusar að
íslenzkir handknattleiksunnendur
flykktust tugum saman til Dan-
merkur til að fylgjast með heims-
meistarakeppninni í janúar fyrir
rúmu ári siðan.
En þá höfðu veður skipast í lofti.
Janus hafði ekki staðið við orð sín
um að koma til Islands haustið
1977 og þjálfun íslenska landsliðs-
ins fór meira og minna úr böndun-
um. Janus tilkynnti að hann væri
á leiðinni, hann kæmi til íslands
alveg á næstu dögum. En ekki kom
Janus. Menn höfðu á orði að
landsliðið væri þjálfað í gegn um
bréfaskóla frá Póllandi. Menn
voru sárir út í Janus, en sennilega
hefur ekki verið persónulega við
Janus að sakast heldur yfirvöld
íþróttamála í Póllandi. Þau hafa
trúlega ekki viljað að Janus leið-
beindi íslendingum, sem gætu
orðið mótherjar Pólverja í Dan-
mörku.
Islenzka landsliðið leið fyrir það
í Danmörku að undirbúningur
liðsins hafði ekki verið sem skyldi.
A Spáni kom þessi óánægja upp á
handknattleiks r Póllandi. I vetur
hef ég haft yfirumsjón með þjálf-
urum liðanna í 1. deildinni, en
einnig verið aðálkennari í hand-
knattleik við háskóla í Póllandi.
Hingað til Spánar kom ég aðeins
til að fylgjast með þróun mála í
íþróttinni hjá þjóðum, sem hér
keppa og skoða þau lið, sem verða
aridstæðingar okkar á ÓL í
Moskvu. Eg fylgdist með riðli
þeim, sem Spánverjar léku í, en
Zglinisky, sem verður landsliðs-
þjálfari með mér, með riðli íslend-
inga og Tékka.
HvernÍK verður þjálf*
un pólska landsliðsins hag-
að fram að ÓL í Moskvu?
— Keppninni í 1. deildinni lýkur
hjá okkur um miðjan marz og
leikmönnum, sem valdir hafa verið
í landsliðshópinn verður þá gefið
frí í hálfan mánuð. Síðan förum
við með 24 leikmenn til Austurrík-
is. Þar verður dvalið við æfingar í
þrjár vikur í 2 þúsund metra hæð.
Æft verður 7—8 tíma á dag og
ýmis atriði tekin fyrir en ekkert
verður leikið i þessari ferð.
— Að loknum Janus.
Hvaða lið eru sterkust hér í
b-keppninni á Spáni?
— Ég er ekki í vafa um að lið
Ungverjanna er bezta liðið í
Viðtal: Ágúst
Ingi Jónsson
• „/ Póllandi er mikió til aí stórgóðum handknattleiksmönnum, en í
heiminum er aðeins einn Jerzy KlempeP.
keppninni, en hallast þó að því að
Spánn vinni þessa keppni. Spán-
verjar leika á heimavelli og slíkt
hefur gífurlega mikið að segja
fyrir þá. Svisslendingar hafa lagt
mikið í handknattleikinn eins og
Spánverjar á undanförnum árum,
en þessi lið hafa þó ekki náð eins
langt í handknattleiknum og þjóð-
ir A-Evrópu og ég hef ekki trú að
t.d. Spánn geri stóra hluti á
Ólympíuleikunum.
— Það gegndi öðru máli ef
ísland hefði gert eins mikið til
uppbyggingar íþróttarinnar og
Spánverjar hafa gert, þá gæti
ísland gert stóra hluti í alþjóð-
legum handknattleik. Handknatt-
leikur á vel við íslenzka íþrótta-
menn, þeir hafa þetta í sér. En
meðan fræðslustarfseminni er
ekki sinnt meira en á undanförn-
um árum og skipulagt unglinga-
starf er ekki ræktað verðið þið
ekki stórveldi. Þið getið haldið
áfram að vera miðlungsþjóð í
handknattleik, en ekki náð því að
komast í hóp þeirra 8 beztu. Til
þess þarf mikið átak hjá ykkur.
Á.I.J.
< ..
0 Janus Cerwinsky í HSÍ-jakkanum eftir sætan sigur í b-keppninni í
Austurríki. Með honum á myndinni er Birgir Björnsson þáverandi
formaður landsliðsnefndar HSÍ og í haksýn má sjá íslenzka
áhorfendur, sem flykktust til Austurríkis til að fylgjast með
keppninni.
(Ljósm. RAX).
— í sumar verður hópurinn
síðan minnkaður, en þó ekki fyrr
en eftir nokkra landsleiki. Frá því
í maí og fram að ÓL leikum við
síðan 35—40 landsleiki og flesta á
alþjóðlegum handknattleiksmót-
um. Síðan verður landsliðshópur-
inn valinn um mánuði fyrir sjálfa
leikana, en til Moskvu fara aðeins
12 leikmenn, samkvæmt sérstök-
um reglum, sem gilda fyrir Ólym-
píuleika.
— Ykkur íslendingum finnst
þessi undibúningur kannski mikill
og vissulega er hann meiri, en þið
eigið að venjast. Hjá Pólverjum er
þetta þó ekki meiri undirbúningur
en gengur og gerist hjá þjóðunum í
A-Evrópu og nauðsynlegur til að
halda sér meðal þeirra beztu í
heiminum. Þið íslendingar gætuð
lært ýmislegt af því hvernig beztu
þjóðirnar haga undirbúningi sín-
um, en hjá ykkur held ég að
tilviljanir ráði ráði alltof miklu
um árangur.
— Eiga Pólverjar mögu-
leika á að verða Ólympíu-
meistarar í handknattleik?
— Við hljótum að eiga mögu-
leika á því þar sem við höfum verið
mjög framarlega í mörg ár, en þó
veit ég að fáir reikna með að við
náum alla leið á efsta þrep verð-
launapallsins í Moskvu. Það sem
mér er efst í huga núna er að ná
Klempel upp úr þeim öldudal, sem
hann hefur verið í. í Póllandi er
mikið til af stórgóðum handknatt-
leiksmönnum, en í heiminum er
ekki til nema einn Jerzy Klempel.
Við þurfum að hafa hann alveg á
toppi í Moskvu og þá gætum við
gert stærri hluti en áður.
— Klempel leikur með Slask og
það er ekki aðeins hann, sem hefur
verið frá sínu bezta í vetur —
heldur allir leikmenn liðsins. Leik-
mennirnir eru flestir orðnir gaml-
ir á mælikvarða handknattleiksins
og þeir hafa unnið til nær allra
þeirra verðlauna, sem þeir hafa
átt möguleika á og til flestra
þeirra oftar en einu sinni. Metnað-
urinn er því ekki hinn sami og
áður og leikmenn ekki eins fúsir að
leggja sig alla fram. Þjálfarinn
sem tók við af Bogdan Kolwalsky
er góður þjálfari, en hann er of
linur við þessa reyndu leikmenn og
nær því ekki þeim árangri, sem
grimmari menn myndu e.t.v. ná.
Hjá Slask verður ekki breyting
fyrr en liðið hefur verið endurnýj-
að, en Slask er nú í 8. sæti í pólsku
1. deildinni. Við verðum að vona að
þjálfunin með landsliðinu dugi til
að ná Klempel upp úr öldudalnum.