Morgunblaðið - 13.03.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979
29
Sinfónían og samkór Menntaskólans við Hamrahlíð flytja krýningarhátiðarsöng Ilándels í Iláskólabíói í gær.
SjSjL *A#gHB|raÉ rm* ‘ ' Á jjHpi ÁW j
gwgfiMljjr * § y** tM **
l, jr^ - *
ÍisfÉ tjm |f§ 1 fe wjt | t f r " ’r \ l JSR ■L 4 9BP rF ><«jf J ► W&m
> ■■ 1 i Mm far.Jp ,
B ífm1 B
y j,, „ . , VWBtkÆ.
Krýningarhátíðarsöngur
Handels á skólatónleikum
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands og .kór skipaður
101 nemanda Menntaskólans við Hamrahlíð fluttu á
skólatónleikum í gær krýningarahátíðarsöng fyrir
kór og hljómsveit eftir Handel. Fyrstu tónleikarnir
voru í Hamrahlíðarskóla í gærmorgun og eftir
hádegið voru tónleikar fyir nemendur annarra
menntaskóla í Reykjavík í Háskólabíó. Á miðvikudag
verða tvennir tónleikar á Akranesi og á
föstudag tónleikar í Hafnarfirði.
Þorgerður Ingólfsdóttir, söngstjóri Kórs Hamra-
hlíðarskóla hefur æft meðlimi tveggja kóra, sem
starfa í menntaskólanum við Hamrahlíð fyrir þessa
tónleika með Sinfóníuhljómsveitinni, en Frakkinn
Jacquillat er stjórnandi tónleikanna. Á miðvikudags-
kvöld heldur Kór Hamrahlíðarskólans sjálfstæða
tónleika á Akranesi.
Spassky
og Friðrik
gerðu
jafntefli
Miinchen AP
FRIÐRIK ólafsson og Spassky
sömdu um jafntefli eftir 33 leiki í
13. umferð skákmótsins í
Miinchen í gærkvöldi og skák
Guðmundar Sigurjónssonar og
Pfleger lauk einnig með jafntefli.
Hiibner var efstur á mótinu í
gærkvöldi með 8,5 vinninga úr 12
skákum. Anderson hafði 7,5
vinninga úr 11 skákum og
Spassky 7 vinninga úr 11
skákum.
Næstur Spassky er Balashov
með 6 vinninga og biðskák úr 11
skákum, Stean og Unzicker eru
með 6 vinninga úr 10 skákum,
Pachman er með 5,5 vinninga og
biðskák úr 11 skákum, Friðrik
Ólafsson er með 5,5 vinninga úr 11
skákum, Pfleger er með 5,5
vinninga úr 10 skákum, Robatch 5
vinninga og biðskák úr tíu
skákum, Guðmundur Sigurjóns-
son er með 5 vinninga úr tólf
skákum, Lieb er með 4 vinninga og
biðskák úr 10 skákum, Lau er með
3,5 og biðskák úr 12 skákum og
Dankert er með einn vinning og
biðskák úr 11 skákum.
Friðrik Ólafsson sat yfir í
báðum umferðum helgarinnar.
Guðmundur Sigurjónsson tefldi
við Dankert í 11. umferðinni á
laugardag og lauk skákinni í gær
með sigri Guðmundar eftir að hún
hafði farið þrisvar í bið. A sunnu-
dag tefldi Guðmundur við Pach-
man og sömdu þeir um jafntefli
eftir 12 leiki.
Það bar til tíðinda í 12. umferð,
að Stean var kominn með
vinningsstöðu gegn Spassky en lék
ónákvæman biðleik og lauk
biðskákinni með jafntefli.
Spassky sagði fyrir biðskákina að
ef biðleikur Steans reyndist bezti
leikurinn, þá myndi hann gefa
skákina án frekari teflmennsku.
NýttFellíflota
Sambandsins
HIÐ síðara af tveimur skipum,
sem Skipadeild Sambands ísl.
samvinnuféaga hcfur fest kaup á,
kom til Reykjavíkur í morgun.
Hefur skipinu verið gefið nafnið
„nelgafeir.
Eins og skýrt var frá á sínum
tíma festi Skipadeild SÍS kaup á
þessum skipum í nóv. s.I. Eru þetta
hvort tveggja almenn flutninga-
skip og eru keypt af útgerðarfélag-
inu Mercandia í Kaupmannahöfn.
Þetta eru systurskip, sem smíðuð
voru 1974 og 1975 hjá Fredriks-
havn Værft og Tördok A/S í
Fredrikshavn, ög eru þau hvort
um sig 3050 lestir að burðargetu.
Skipin eru hvort um sig með
þremur Liebherr-farmkrönum,
með Becker-stýri og skiptiskrúfu.
Lestarrými Helgafells er 134.250
rúmfet, það er búið 2000 hestafla
dísilvélum og er ganghraði skips-
ins 13 sjómílur. Skipið er búið
þeim nýjungum, að hægt er að
koma fyrir og tengja frystigáma í
lestum. Þannig er hægt að flytja
út um 100 tonn af frystum fiski í
I.jósm. Mbl. Kristján
Axel Gíslason forstjóri Skipadcildar S.Í.S. og Reynir Guðmundsson
skipstjóri á nýja Hclgafellinu í brú skipsins í Reykjavíkurhöín í gær.
Hið nýja skip Sambandsins, Helgafell, þar sem það liggur við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn.
Flugdeilan:
Sjáum ekki tilgang
með að boða fund
— segir Guðlaugur Þorvaldsson
einu. Gámfestingar eru á dekki og
hlífðarlistar eru á hliðum með
tilliti til ísl. hafnaraðstæðna. Með
þessum breytingum var kaupverð
skipanna beggja 1,34 milljarðar á
núverandi gengi. Gamla „Helga-
fellið“ er nú til sölu og hugsanlegir
kaupendur eru nú að skoða það í
Miðjarðarhafshöfnum. '
Fastar áætlunarsiglingar
Helgafells verða til Kaupmanna-
hafnar og Gautaborgar.
Ahöfn skipsins er 15 manns og
skipstjóri er Reynir Guðmundsson
en yfirvélstjóri er Baldur
Sigurgeirsson.
ÚD/HH.
SÁTTANEFND hefur skilað
skýrslu til Magnúsar H. Magnús-
sonar félagsmálaráðherra um
stöðuna í deilu Flugleiða og flug-
manna F.I.A. og sagði Guðlaugur
Þorvaldsson einn sáttarnefndar-
manna í samtali við Mbl. að
nefndin sæi ekki að svo komnu
máli neinn tilgang í að boða fund.
Kvað Gunnlaugur nefndina hafa
lagt það í hendur ríkisstjórnarinn-
ar hvert yrði næsta skref í málinu,
hvort nefndin tæki það áfram til
meðferðar eða hvort ríkisstjórnin
tæki við þvi.