Morgunblaðið - 13.03.1979, Qupperneq 45
M'ÖHGUtíBLAÐIÐ.'ÞRÍÐjUDÁGUR 13.' MARZ 1979
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
410100 KL. 10—11
. FRÁ MÁNUDEGI
'w^UiLMúiOSLMMJŒ
þeir geri allt eftir bestu samvisku,
getur ýmislegt orkað tvímælis
fyrir sjónum þeirra sem ekki
standa í eldi framkvæmdanna
sjálfir.
Engin musteri hafa verið reist
án þess að um þau hafi staðið
einhver styr, meðan á fram-
kvæmdum stóð, en þó hafa þau að
lokum séð dagsins ljós. Þannig
mun það einnig verða með þau
heilsuverndarmusteri sem byggð
eru á bjargi sannleikanns og fórn-
fýsinnar, ekkert fær til lengdar
heft framgang þeirra, því þar er
lífið sjálft að taka starfstæki sín,
hugsjónamennina í þjónustu
framþróunarinnar. í þessu sam-
bandi er gott að minnast orða
spekingsins: „Ekkert er, allt er að
vera.“ Allt er breytingum undir-
orpið, en það er undir mönnunum
komið og þeim mikið í sjálfsvald
sett, hvernig hlutirnir breytast,
það fer eftir því hvernig að þeim
breytingum er staðið. En sumt
getur þó aldrei orðið, án þess að á
það sé trúað.
• .. .að bera hug-
sjónir uppi
Við heilsuræktarkenningar
Jónasar læknis Kristjánssonar
held ég að mörgum hafi í fyrstu
farið líkt og prestinum sem fékk
bókarmerki frá elskulegri móður
sinni, á því sá hann í fyrstu aðeins
þráðabendu. Hann undraði þetta
mjög, þar sem móðir hans var
mikil hannyrðakona. En er hann
gætti betur að, hafði hann horft á
ranghverfu merkisins. Réttu
megin stóð, saumað gullnu letri:
„Guð er kærleikur."
í katólskum sið og víðar er talið
að skriftir séu vel til þess fallnar
að hreinsa til í sálarkompum
manna. Sálfræðingar nútímans
munu styðja þá skoðun, að slíkar
játningar geti verið til bóta sálar-
heill. En þess ber að gæta, að þá
munu það í flestum tilfellum vera
eigin yfirsjónir sem menn játa, en
ekki ávirðingar annarra. Að taka
mið af þessu er vafalaust hollt í
öllum framfarafélögum. Oftast
mun svo fara, í flestum hugsjóna-
félögum, að margir eru kallaðir en
fáir útvaldir. Því fer það oft svo,
að aðeins örfáir hafa þau breiðu
bök sem orka að bera hugsjónir
uppi, Ef vel á til að takast, er
menn knýja dyra í framfara- eða
hugsjónafélagi, þá verður það að
vera lífið sjálft, að kalla til
þjónustu við þær hugsjónir sem
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á skákmóti í Sovétríkjunum í
fyrra kom þessi staða upp í viður-
eign meistaranna Ceceljans, sem
hafði hvítt og átti leik, og Kaju-
movs.
33. Dxd5! — exd5, 34. Hxe8+ —
IIxe8, 35. Hxe8+ — Dxe8, 36.
Rxf6+ — Kf7 (Eftir 36.... Kxg7,
37. Rxe8+ og 38. Rxd6 verður
hvítur manni yfir) 37. Rxe8 —
Kxe8, 38. Be5 og þar sem svartur
er tveim peðum undir í endatafl-
inu gafst hann upp.
koma á í framkvæmd og barist er
fyrir, til heilla fyrir umsækjanda
og félagið í heild, en aldrei eigin
hagsmunir. Of oft vill svo fara að
breiðu bökin, með stærstu
byrðarnar, komast síst hjá sverðs-
tungum, hversu vel sem þau vinna,
en sem betur fer er lífsreynslan
sjálf búin að kenna þeim fundvísi
á lyfsteina í hjöltum þeirra sverða,
sem sárin veita, svo þeir hlýða
ótrauðir kalli lífs og líknar.
• Einnig í þakkar-
skuld við mót-
stöðu menn mína
Að síðustu vil ég óska þess að
baráttumenn allra göfugra líknar-
og framfaramála gætu í fullri
alvöru tekið sér í munn orð göfug-
mennisins Sigurðar Kristófers
Péturssonar, er hann var að dauða
kominn. Hann tilnefndi þá nokkra
vini sína og bað hjúkrunarkonuna
að flytja þeim kveðju og þakklæti.
Eftir litla umhugsun sagði hann:
Nei, mér er ómögulegt að telja þá
alla upp sem ég þurfti að að biðja
að skila kveðju minni og þakklæti
til. Ég er einnig í þakkarskuld við
mótstöðumenn mína, því þeir
hafa, meðal annars, kennt mér að
hlutirnir missa ekki gildi sitt, þótt
þeir séu skoðaðir frá ýmsum
ólíkum sjónarmiðum.
Anna Matthíasdóttir.
• „Sá árla sem
háttar...“
Þá er hér bréf frá Jóni Björns-
syni:
„Kæri Velvakandi.
Ég er satt að segja, orðinn
hundleiður á því að heyra þá
Morgunpóstsmenn þrástagast á
málshættinum, eins og þeir segja
að Reykhólamenn fari með hann,
en það er svona sem alþjóð er
kunnugt:
Sá árla sem háttar og árla upp
rís
auðmaður verður, hygginn og vís.
Ég tel að þarna sé rangt farið
með þennan góða málshátt, enda
aldrei heyrt þess getið að þeir
Reykhólasveitarmenn væru reik-
ulli en aðrir landsmenn almennt
talað, og að sjálfsögðu er það ekki
við hæfi að telja Morgunpósts-
menn það heldur, enda láta þeir
ljós sitt skína yfir okkur jafnt á
drungalegum morgnum sem
björtum.
Ég tel að málshátturinn sé
réttur svona, þ.e.:
Sá árla sem háttar og árla upp rís
auðugur verður, hraustur og vís.
Ég skal viðurkenna að ég er ekki
svo mikill íslenzkumaður að ég
geti sagt um það nákvæmlega
hvort hygginn og vís hafi sömu
meiningu, en hinu vil ég halda
fram, að hygginn maður getur
varla talist heimskur og vís maður
held ég hljóti að vera hygginn
jafnframt því að vera vís, svo mér
finnst einhvern veginn að um
endurtekningu sé að ræða hjá
þeim Morgunpóstsmönnum þegar
þeir nota hygginn og vís.
Umræddur málsháttur er gam-
all og góður, og taldist það gott í
þá daga að vera árrisull sem
fyrirbyggði meðal annars svo kall-
að „næturdroll" svo gott sem það
orð er nú og því sennilegt að þeir
gömlu „vísu“ menn hafi einnig
talið að með því móti að ganga
snemma til hvílu mundu þeir
einnig auka hreysti sína og líka
hafandi í huga málsháttinn
„morgurtstund gefur gull í mund“.
En vilt þú nú ekki, kæri Velvak-
andi, fá úr því skorið hvernig þessi
málsháttur er réttur. Sjálfsagt
geta málfræðingar eða þjóðhátta-
fræðingar skorið úr um þetta, því
alltaf skal hafa það er sannara
reynist.
Með fyrirfram þökkum.
Jón Björnsson“
HÖGNI HREKKVÍSI
Naglamyndir
Skemmtileg handavinna.
Norskt prjónagarn.
Prjónauppskriftir.
Ósamsettir símastólar á kr.
23.200-
ÓÐINSGÖTU 1 SÍMI 13130
___ —j
J^Stjórnunarfélag íslandsj^
Er kerfið í lagi?
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í
FRAMLEIÐSLUSTÝRINGU OG VERKSMIÐJUSKIPU-
LAGNINGU dagana 19.—21. marz n.k. Námskeiðið
verður haldið að Hótel Esju og stendur frá kl. 15—19
hvern dag.
Gerð er grein fyrir verksmiöju-
skipulagningu og framleiöslu-
skipulagningu sem sérstökum
stjórnsviöum í heildarstjórnun
fyrirtækis eöa stofnunar, fjallaö
um staðarval fyrirtækja,
heildarskipulagningu nýs vinnu-
staðar eða endurskipulagningu
vinnustaöar.
Námskeiðið á erinctí til allra þeirra verkstjóra, framleiðslu-
stjóra eða forstjóra sem áhuga hafa á aukinni hagræöingu í
fyrirtækjum sínum.
Leiðbeinandi verður Helgi G. Þórðarson verkfræð-
ingur. Nánari upplýsingar og skráning pátttakenda
hjá Stjórnunarfélagi Islands, Skipholti 37, sími
82930.
LlliGUAPHONE
tungumálanámskeió henta
allri fjölskyldunni
VW veitum fúsiega allar upplýsingar og póstsendum hvert
á landsem er
Hljóðfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96 - Sími13656 itl
.. il .... - i ........ .......... .........
LINGUAPHONE tungumálanámskeið eru vidurkennd sem
auóveldasta og ódýrasta leiðin til tungumálanáms
LINGUAPHONE fæst bæói á hljómplötum og kassettum