Morgunblaðið - 29.01.1980, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1980
Vel heppnað þorra-
blót á Reyðarfirði
Reyðarfirði, 26. janúar.
REYÐFIRÐINGAR héldu upp á
þurrann á fyrsta dag þorra. hinn
25. janúar. Yfir tvö hundruð
manns sóttu þessa árlegu þorra-
skemmtun scm hófst með borð-
haldi, og var mikili og góður
þorramatur á borðum.
Marteinn Elíasson formaður
setti þorrablótið. Þá rifjaði Guð-
mundur Magnússon upp sögu
þorrablóta hér, og var mjög gam-
an að því, því miklar breytingar
hafa orðið síðan fyrsta þorrablótið
var haldið árið 1919.
Þá var annáll ársins lesinn upp,
og helstu viðburðir ársins rifjaðir
upp þetta ár sem var að enda, og
vísur sungnar inn á milli við
undirleik Ingólfs Benediktssonar.
Guðmundur Magnússon stjórnaði
fjöldasöng, og tóku menn hressi-
lega undir, enda er hann skemmti-
legur stjórnandi, og þandi hann
harmonikkuna af mikilli snilld.
Borðhaldi lauk um ellefuleytið,
en síðan var stiginn dans til
klukkan fjögur. Hljómsveit frá
Egilsstöðum lék fyrir dansi. Gott
veður var, en dálítið kalt. — Gréta.
Sýnir ljósmyndir
á Kjarvalsstöðum
LJÓSMYNDARINN John
Chang McCurdy opnar sýn-
ingu á verkum sínum á Kjar-
valsstöðum á laugardaginn
kemur, 2. febrúar.
John Chang McCurdy er
fæddur í Kóreu, en er nú
bandarískur ríkisborgari. Hann
rekur eigin ljósmyndastofu í
New York, en vinnur mest að
gerð myndabóka. Hann hefur
oft komið til íslands en fyrsta
ferð hans hingað var í tengslum
við heimsmeistaraeinvígið í
skák 1972. Hóf hann þá þegar
að taka myndir af íslenskri
náttúru sem hann hreifst mjög
af.
Árangurinn getur að líta í
myndabók um ísland sem Al-
menna bókafélagið gaf út í
fyrra. John Chang McCurdy
kemur til íslands 29. þ.m. til
þess að undirbúa sýningu sína
og dvelst hér í 6 daga.
Ljósm.: Ól. K. Magnilsson.
Frá hinni fjölsóttu afmælisvöku á Kjarvalsstöðum á sunnudaginn.
Húsfyllir á afmælisvöku
Kvenréttindafélags Islands
HÚSFYLLIR var, og undirtekt-
ir góðar á tveggja tíma afmælis-
vöku Kvenréttindafélags
íslands að Kjarvalsstöðum á
sunnudaginn, þar sem kynntar
voru konur í listum og vísind-
um.
Sigríður Erlendsdóttir BA
sagði brot úr atvinnusögu
kvenna, og María Jóna Gunnars-
dóttir byggingartæknifræðingur
sagði frá námi sínu og starfi.
Auður Haralds og Ása Sólveig
lásu úr eigin verkum, Sigrún
Valbergsdóttir las ljóð eftir Sig-
ríði Guðmundsdóttur og Herdís
Þorvaldsdóttir leikkona las smá-
sögu og ljóð eftir Steinunni
Eyjólfsdóttur. Elísabet Erlings-
dóttir söng einsöng, meðal ann-
ars eftir Jórunni Viðar við undir-
leik höfundar. Elísabet Waage
lék á hörpu, og þrjár stúlkur úr
Skólakór Garðabæjar sungu
Næturgalann, en sjö listakonur
sýndu myndverk ýmiss konar.
Slík vaka er orðinn fastur liður
á vetrardagskrá Kvenréttinda-
félagsins, og er hún jafnan í
tengslum við stofndag þess, hinn
27. janúar, en félagið var stofnað
1907. Næsta verkefni félagsins er
ráðstefna í febrúarlok, um efnið
„Jöfn foreldraábyrgð".
Amnesty International:
Samvizkufangar
janúarmánaðar
Samtökin mæla með bréfaskriftum þeim til aðstoðar
í FRÉTTABRÉFI alþjóðasam
takanna Amnesty Internation-
al, scm gefið cr út mánaðarlega
i London eru jafnan birt nöfn
þriggja fanga frá ýmsum
stöðum í hciminum og þess farið
á ieit að félagar samtakanna
víðs vegar um heim skrifi til-
teknum stjórnvöldum og mælist
til þcss, að þeir verði látnir
lausir.
Fangarnir, sem hér um ræðir.
eru allir svoneíndir samvizku-
fangar, þ.e. fólk, sem hefur
verið fangelsað vegna skoðana
sinna. litarháttar, kynferðis,
þjóðernis. tungu eða trúar-
bragða. og ekki verið sakað um
valdbeitingu.
Hugmyndin þarna að baki er
að vekja athygli, sem um munar,
á þessum föngum. Þess má geta,
að í könnun, sem gerð var fyrir
nokkrum árum á árangri þessa
þáttar í starfi Amnesty kom
fram, að um 30% fanganna, sem
Amnesty hefur vakið athygli á
með þessum hætti, voru annað
hvört látnir lausir eða fengu
a.m.k. betri meðferð í fangelsum
en þeir höfðu áður notið.
Það er mat forystumanna
Amnesty International, að því
alþjóðlegri sem þátttakan sé,
þeim mun meiri von sé um
árangur og að bréf frá hinum
smærri löndum hafi sízt minni
áhrif en frá hinum stærri. Sér-
staklega telja menn, að meiri
áhrif hafi, að tíu bréf berist frá
t.d. hverju tíu landa en ef
hundrað bréf berast frá einu
landi eða fimmtíu frá hverjum
tveimur.
í leiðbeiningum frá Islands-
deild Amnesty segir að bréf megi
alltaf skrifa á ensku, auk þjóð-
tungu hvers fanga og reyndar sé
einnig í lagi að skrifa á íslenzku,
— það kunni að vekja forvitni
viðtakenda og e.t.v. verða til
þess, að þeir leggi sig meira fram
um að komast að því, hvað þar
væri á ferðinni. Ef menn óska
upplýsinga eða aðstoðar við form
bréfa geta þeir skrifað Islands-
deildinni.
„Bezt er,“ segir einnig í leið-
beiningunum, „að bréfin séu sem
persónulegust, svo lengi sem þau
þó eru kurteislega orðuð. Menn
mega ekki láta undan hugsan-
legri löngun sinni til að segja
viðkomandi yfirvöldum til synd-
anna, hversu slæm sem þeim
kann að finnast þau vera. Það
þykir ekki líklegt til að verða
mánaðarföngunum að liði — en
tilgangurinn er að reyna að
hjálpa þeim. Æskilegt væri, að
þeir, sem skrifa, sendi afrit bréfa
til íslandsdeildarinnar eða a.m.k.
upplýsingar um, hvert þeir hafi
skrifað og um svör, ef berast, til
þess að unnt sé að fá einhverja
hugmynd um þátttöku.
Hér á eftir fer kynning á
föngum janúarmánaðar og nöfn
og heimilisföng þeirra, sem
skrifa skal til:
Fangi: Dimiter Kolev í Búlg-
ariu.
Hann er 69 ára að aldri og
hafði tvisvar afplánað fangelsis-
dóma fyrir pólitískar sakir, þeg-
ar hann var handtekinn árið 1974
fyrir að reyna að komast úr landi
án leyfis. Hann var þá dæmdur í
átján mánaða fangelsi, en vegna
slæmrar meðferðar eftir hand-
tökuna var heilsufar hans slíkt,
að fullnustu dómsins var frestað
nokkru eftir að hann var kveðinn
upp.
I febrúar s.l. var hann hand-
tekinn á ný, sem vakti nokkra
furðu vegna þess, að hann hafði
tvívegis fengið hjartaáfall í jan-
úar og verið undir stöðugu eftir-
liti lækna. Er óttazt að hann
muni illa þola fangavist vegna
þessa. Óskað er eftir því að
kurteislega orðuð bréf verði send
forseta ríkisráðs Búlgaríu eða
dómsmálaráðherrans, þar sem
mælzt verði til þess, að Dimiter
Kolev verði látinn laus úr fang-
elsi. Heimilisföngin eru:
Mr. Todor Zhivkow, Chairman
of the State Council, Sofia, Bulg-
aria.
og/eða:
Mrs. Svetla Daskalova, Minist-
er of Justice, Sofia, Bulgaria.
Fangi: D.A. Santosa í Indó-
nesíu.
Hann var handtekinn árið 1965
eins og svo fjölmargir þar í landi,
sakaður um þátt í meintu sam-
særi kommúnista. Santosa var
þá einhvers konar héraðsstjóri í
Indónesíu, þ.e.a.s. ríkisstarfs-
maður og ekki, opinskátt a.m.k.,
virkur í stjórnmálum. Það var
hins vegar kona hans, sem starf-
aði í nokkrum félögum vinstri-
manna. Hún var handtekin en
látin laus eftir nokkur ár, án þess
að koma fyrir rétt, en Santosa
hlaut tuttugu ára fangelsisdóm
1967.
Samtökin Amnesty Interna-
tional telja, að maður þessi hafi
ekki fengið viðunandi réttarmeð-
ferð á sínum tíma. Hann var
ákærður á grundvelli þágildandi
laga um undirróðursstarfsemi,
sem indónesískir lögfræðingar
hafa gagnrýnt mjög harðlega.
Stjórn Indónesíu hefur skipt
pólitískum föngum í landinu í
nokkra flokka. í A-flokki eru
þeir, sem ekki hafa verið leiddir
fyrir rétt og hafa stjórnvöld
þegar látið þúsundir slíkra fanga
lausa og hyggjast sleppa enn
fleirum í áföngum. Er sjálfsagt
að fagna þeirri stefnu í bréfum
til stjórnvalda í Indónesíu. í
B-flokki eru hins vegar þeir, sem
dóma hafa hlotið, og þeim vill
stjórnin alls ekki sleppa. Ám-
nesty hefur margreynt að fá mál
pólitískra fanga frá þessum tíma
endurskoðuð en því ekki verið
sinnt.
Vegna þessa máls er mælt með
því að skrifa til Sudomo, aðmír-
áls í Jakarta og fara þess á leit,
að Santosa verði látinn laus eða
mál hans tekið til endurskoðun-
ar. Heimilisfang Sudomo er:
Admiral Sudomo, Kepala Staf
KOPKAMTIB,
Jalan Merdeka Barat,
Jakarta, Indonesia.
Fangi: Dr. Victor Carlos
Marchesini í Argentínu
Hann er 49 ára lögfræðingur
og fyrrum formaður lögmanna-
sambandsins í Misiones. Hann
var handtekinn fyrir þremur
árum, tveimur vikum eftir að
herforingjar tóku völdin af Mar-
iu Estelu Peron. Hann hefur ekki
verið formlega ákærður né yfir-
leitt komið fyrir dómara.
Dr. Marchesini hefur verið
virkur þátttakandi í stjórnmál-
um og forseti þingflokks Union
Civica Radical, sem hafði meiri-
hluta á fylkisþinginu í Misiones í
stjórnartíð Mariu Estelu Peron.
Þegar spurzt hefur verið fyrir
um ástæðurnar fyrir handtöku
hans hefur því verið svarað, að
hann hafi verið í tengslum við
undirróðursöfl og varið þau öfl
fyrir rétti, en það er algeng
ástæða fyrir handtökum lög-
fræðinga víða um heim.
Sameinuðu þjóðirnar og Sam-
tök Ameríkuríkja hafa mótmælt
fangelsun þessa manns og mál
hans var sérstaklega rætt á fundi
þingmannasambands rómönsku
Ameríku í júlí í fyrra. Tilmælum
um að dr. Marchesini verði látinn
laus ber að vísa til forseta
Argentínu; þar sem mælzt er til,
að hann verði þegar í stað látinn
laus. Heimilisfangið er:
Excelentisimo Senor Presi-
dente de la Republica Argentina.
Generai Jorge Rafael Videla,
Casa Rosada, Balcarce 50
Buenos Aires, Capital Federal,
Argentina.