Morgunblaðið - 17.06.1981, Síða 1
80 SÍÐUR
133. tbl. 68. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Þingið tekur mál
Bani-Sadrs fyrir
Tehoran. Beirút. 16. júní. — AP.
ÞINGIÐ í íran ákvað í da«. að
taka til umfjoilunar hvort Abol-
hassan Bani-Ssdr vari hæfur til
að Krttna embætti forseta landsins
í Ijósi siðustu atburða, en þúsund-
ir manna flykktust til þinghúss-
ins og forsætisráðuneytisins ok
kröfðust þess að honum yrði vikið
úr starfi. Ilefjast umræður um
mál Bani-Sadrs á morKun. mið-
vikudaK-
Skömmu áður en þingið ákvað að
fjalla um hæfni forsetans, sprakk
sprengja í forsetahöllinni, en engin
slys urðu á fólki.
Todorov
settur af
Sóííu. 16. júní. — AP.
STANKO Todorov var í dag vikið
úr embætti forsætisráðherra Búlg-
aríu ok Grisha Filipov settur í
hans stað, en engar ástæður Kefn-
ar fyrir breytinKunni. sem kom
diplómötum á óvart.
Todorov var kosinn forseti búlg-
arska þingsins, sem er talsverð
lækkun í tign, að sögn diplómata.
Filipov er ritari miðstjórnar búlg-
arska kommúnistaflokksins og fé-
lagi í framkvæmdanefnd hans.
Og meðan þingfundurinn stóð
yfir, fylktu óeinkennisklæddir
starfsmenn saksóknara liði og
birtu fjölda aðstoðarmanna Bani-
Sadrs í skrifstofum forsetaemb-
ættisins handtökutilskipanir.
Þeir biðu þess að viðkomandi
aðstoðarmenn forsetans létu sjá
sig, en létu sig hverfa þegar
opnunartími var á enda, en þá
hafði enginn aðstoðarmannanna
gefið sig fram.
Byltingarverðir tóku sér stöðu
við forsetahöllina í dag í fyrsta
skipti eftir að forsetinn var settur
af sem yfirmaður herráðsins. And-
stæðingar forsetans fylktu liði að
forsetahöllinni og heimtuðu að
hann yrði líflátinn. Forsetinn hafð-
ist við í íbúðarálmu hallarinnar.
Hringt var á heimili Mehdi
Bazargans fyrrum forsætisráð-
herra og skýrt frá því að hann ætti
fangelsun yfir höfði sér. Bazargan
tók þátt í þingstörfum í dag með
eðlilegum hætti. Bazargan er í hópi
stuðningsmanna Bani-Sadrs.
Mikill fögnuður gall við fyrir
utan þinghúsið er forseti þingsins
skýrði frá ákvörðun þingsins að
taka mál Bani-Sadrs fyrir. Bani-
Sadr hafa verið úthlutaðar tiu
klukkustundir af þingtíma tii að
verja mál sitt, og getur hann
útdeilt hluta þess tíma meðal
stuðningsmanna sinna í þinginu.
80 unglingar
teknir f astir
Varsjá. 16. júní. AP.
LÖGREGLAN I Katowice hand-
tók 80 pólsk unKmenni þegar í
brýnu sló milli hóps unglinga og
sérstakra lögrcKlusveita, sem
Uppræting í
Afganistan
Nýiu Delhí, 16. júní. AP.
STJORNVÖLD I Afganistan til-
kynntu i kvöld, að stjórnarhermenn
hefðu upprætt sveitir frelsisaflanna i
Parwan- ok Kunduz-héruðum, cn i
gær viðurkenndi Babrak Karmal
forseti. að sveitir frelsisaflanna væru
vel þjálfaðar ok létu mjög mikið að
sér kveða.
Utvarpið í Afganistan sagði, að
mikið magn vopna hefði verið gert
upptækt í Parwan og Kunduz.
Karmal réðst harkalega að frelsis-
sveitum um í útvarpsaávarpi í dag,
kallaði þá bæði ræningja og stiga-
menn, er ynnu gegn hagsmunum
þjóðarinnar.
Frelsissveitirnar eru flestar skipað-
ar heittrúuðum Afgönum, er segja
stjórn landsins vinna gegn kirkjunhi,
en 99% afgönnsku þjóðarinnar eru
múslimar.
þjálfaðar eru tll að bæla niður
uppþot, á járnbrautarstöðinni i
Katowice. Lögreglan kæfði óeirð-
ir á öðrum stöðum í borginni í
fæðingu.
Opinberir fjölmiðlar í Póllandi
hafa að undanförnu skýrt frá því,
að ólæti og ofbeldisaðgerðir hafi
færst í vöxt upp á síðkastið, og að
löghlýðni borgaranna færi þverr-
andi.
Sagt var, að ólætin í Katowice
hefðu byrjað með því að slagsmál
brutust út milli unglingahópa.
Yfirvöld frestuðu í dag seinni
degi réttarhaldanna yfir andófs-
mönnunum fjórum úr „Bandalagi
sjálfstæðs Póllands" (KPN), sem
ákærðir eru um að hafa stofnað til
samsæris um að kollvarpa pólsku
ríkisstjórninni.
Verjendur fjórmenninganna
fóru fram á, að réttarhöldunum
yrði frestað um mánuð, svo þeir
fengju olnbogarými til að kanna
ákæruskjalið og dómsskjöl, sem
varðveitt eru í 16 bindum. Búist er
við, að dómarinn taki beiðni verj-
endanna fyrir þegar réttarhöldun-
um verður haldið áfram.
Bandaríkin tilbúin
að selja Kína vopn
PekinK. VV ashinvíton. 16. júní. AP.
ALEXANDER M. llaig, utanrík-
isráðherra Bandarikjanna.
skýrði frá því á lokadegi opin-
berrar heimsóknar sinnar til
Kína, að Bandaríkjastjórn hygð-
ist aflétta banni við vopnasölu til
Kína, ok Liu Ilua-quing, yfirmað-
ur kínverska herráðsins, myndi
heimsækja Bandaríkin i áKÚst-
mánuði i þeim tilgangi að semja
um vopnakaup. Bandarikjamenn
hafa ekki selt Kinverjum vopn
frá því að kommúnistar komust
til valda 1949.
Haig kvaðst ekki hafa skoðun á
Víkingasilfur i húsgrunninum
Frá fréttaritara MorKunhlaðsins
í Osló. 16. júní.
MIKILL fjársj(>ður silfurs frá
víkingatið hefur fundist 1 bæn-
um Grimstad í Sörlandi. Forn-
leifadeild háskólans í Osló hefur
kallað fundinn „einstæðan“.
Maður nokkur fann sjóðinn
þegar hann byrjaði að grafa
húsgrunn á lóð sinni. Hann mok-
aði upp fjölda silfurmena sem
vógu alls 2 kg. Þar á meðal voru
hálsmen úr snúnu silfri, falleg
armbönd og nælur frá 9. öld.
Maðurinn sem fann gersem-
arnar hélt fundinum lengi leynd-
um af ótta við að verða af
fundarlaunum. En það er erfitt
að halda nokkru leyndu í
Grimstad og að lokum heyrði
silfursmiður í bænum fréttirnar.
Ljóst er að maðurinn fær
þúsundir króna í fundarlaun.
Fornleifafræðingar grafa nú
grimmt á lóð mannsins í von um
að finna fleiri víkingafjársjóði.
því hvaða vopnum Kínverjar
myndu helzt hafa áhuga á að fá
frá Bandaríkjunum, og sagði, að
yfirvöld yrðu að ráðfæra sig bæði
við þingið og erlend ríki áður en
einstakar vopnasölur til Kína yrðu
samþykktar.
Haig sagði ennfremur, að sam-
starf Kínverja og Bandaríkja-
manna á sviði hermála yrði aukið
í kjölfar viðræðna hans við kín-
verska ráðamenn.
Hann staðfesti á blaðamanna-
fundi eftir viðræður við kínverska
leiðtoga, að komið hefði fram
gagnrýni á stefnu Bandaríkja-
manna í málefnum Suður-Afríku
og Miðausturlanda, en viðræðurn-
ar hefðu þó orðið til að minnka
ágreining ríkjanna tveggja í þess-
um efnum.
Haig sagði ennfremur, að sam-
skipti Taiwan og Bandaríkjanna
hefði borið á góma í viðræðunum,
og þykir ljóst, að ágreiningur
ríkjanna út af Taiwan hafi sízt
minnkað. Haig sagði kínverska
leiðtoga hafa haft skilning á því,
að samskipti Bandaríkjanna og
Taiwan yrðu óbreytt, en neitaði þó
að skýra frá, hvort Kínverjar
sættu sig við þá málavexti.
Haig sagði alþjóðamál hafa sett
sinn svip á viðræður sínar við
kínverska leiðtoga, sem gengið
hefðu „framar öllum vonum".
Fundur Reasans
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, hélt í dag sinn fyrsta blaða-
mannafund frá því honum var
sýnt banatilræði 30. marz síðast-
liðinn.
Reagan gagnrýndi þingmenn
demókrata í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings harðlega fyrir niður-
skurð á fjárlögum og hótaði að
bregðast við þeim með því að
leggja fram endurskoðuð fjárlög.
Einnig sagði Reagan, að árás
Israela á kjarnorkuverið í Irak á
dögunum sýndi og sannaði mikil-
vægi þess, að allsherjarlausn
vandamálanna í Miðausturlöndum
næðist.
Loks sagði Reagan, að nú hillti
undir það, að heimskommúnism-
inn væri að renna sitt skeið á
enda. Kommúnisminn væri af-
hvarf frá heilbrigðri skynsemi, og
hvorki eðlilegur né sæm.andi
manninum.