Morgunblaðið - 17.06.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
ísfirðingar taka
við nýrri Guðbjörgu
Hin gamla afhent Reyðfirðingum í Noregi
NÝR skuttoKari bætist i flota
íslendinKa i dan er ný GudbjdrK ÍS
verður afhent eiuendum sínum í
Flekkefjord í Noregi. Gamla Guð-
hjorKÍn, sem mörg undanfarin ár
hefur verið eitt fenKsælasta skip
toKaraflotans, skiptir hins veKar
formleKa um eigendur í Flekkc-
fjord á moricun. Ilún Kekk upp í
Símaskráin
komin út
SÍMASKRÁIN 1981 er komin út
(>K verður afhent tl simnotenda
frá ok með mánudeKÍnum 22.
júní nk. <>k KenKur hún i Kildi
miðvikudaKÍnn 1. júlí 1981.
Upplag símaskrárinnar er um
105 þúsund eintök. Brot skrár-
innar er óbreytt frá 1980. Blað-
síðutal bókarinnar hefur aukist
um 64 blaðsíður og er nú 576
blaðsíður.
Sú breyting hefur verið gerð á
símaskránni frá 1980, að dálkar á
blaðsíðum í nafnaskrá eru færðir
saman, minnkað bilið á milli
þeirra, og lóðrétt strik prentað á
milli til aðgreiningar. Með þess-
ari breytingu var unnt að stækka
letrið um 10%.
smiðina á nýja skipinu, en norska
skipasmíðafyrirtækið seldi það sið-
an til Reyðarfjarðar.
Bæði skipin eru smíðuð hjá
Flekkefjord Slipp- og Maskinfab-
rikk í Noregi og er nýja Guðbjörgin
mjög fullkomin að öllu leyti, m.a. er
skipið sérstaklega styrkt til sigl-
inga í ís. Skipið er væntanlegt til
Isafjarðar undir mánaðamót.
Gamla Guðbjörgin seldi um 170
tonn af karfa í Þýzkalandi á
föstudag og mánudag og fengust
5,70 kr. fyrir hvert kíló að meðal-
tali. Síðan var skipinu siglt til
Flekkefjord þar sem skipasmíða-
stöðin tók við því, en Hallgrímur
Jónasson, framkvæmdastjóri
Gunnars og Snæfugls sf. á Reyðar-
firði, tekur við skipinu á morgun.
Gamla Guðbjörgin fór í klössun á
Akureyri fyrir skömmu og því þarf
ekki annað að gera í Noregi, en að
mála nýtt nafn og einkennisstafi á
skrokk skipsins.
Reglur eru um að fyrir hvern
nýjan togara sem smíðaður er
erlendis skulu skip samsvarandi að
tonnatölu fara úr landi. Þess vegna
varð gamla Guðbjörgin að afhend-
ast í Noregi og þess vegna hefur
fyrirtækið á Reyðarfirði selt vél-
bátana Gunnar og Snæfugl.
Forseti íslands heimsæk-
ir Dala- og Strandasýslu
FORSETI íslands. frú Vigdís
Finnbogadóttir, mun (ara i sina
fyrstu ferð í embættisnafni út á
land laugardaginn 20. júni og
stendur ferðin fram á miðviku-
daginn 24. júní. Forsetinn mun
ferðast um Strandasýslu og Dala-
sýslu og er ferðaáætlunin. sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
skrifstofu forseta íslands, sem
hér segir:
Laugardaginn 20. júní verður
fyrst ekið að Byggðasafni Dala-
manna að Laugum, en síðar í
Líðan stúlk-
uruiar óbreytt
LÍÐAN stúlkunnar sem slasaðist
í bilveitu i Hvalfirði aðfaranótt
sunnudagsins er óbreytt. sam-
kvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið fékk á gjörgæsludeild
Borgarspitalans i gær.
Stúlkan hlaut mikið höfuðhögg
en er óbrotin og er hún ekki komin
til fullrar meðvitundar enn, en
vonir standa til að þess verði ekki
langt að bíða.
Búðardal, þar sem forseti og
fylgdarlið gista.
Sunnudaginn 21. júní verður
farið fyrir Strandir, komið við á
Staðarfelii og Skarði, en hádegis-
verður snæddur í Saurbæ. Eftir
hádegi verður haldið til Hólma-
víkur. Þar hefst menningarvaka
Strandamanna með því að forseti
9pnar sýningu á málverkum eftir
Isleif Konráðsson. Gist verður á
Hólmavík.
Mánudaginn 22. júní verður ekið
til Bjarnarfjarðar, komið við í
Kaldrananesi og á Drangsnesi.
Síðan verður farið í bátsferð til
Grímseyjar og þaðan siglt til
Drangsness. Síðan verður ekið til
Hólmavíkur með viðkomu á Laug-
arbæli í Bjarnarfirði.
Þriðjudaginn 23. júní verður
ekið norður í Árnes, þar sem
fluttur verður hluti af menning-
arviku Strandamanna.
Miðvikudaginn 24. júní verður
haldið til Reykjavíkur með við-
komu á Borðeyri.
í fylgd með forseta íslands
verða Vigdís Bjarnadóttir, fulltrúi
á forsetaskrifstofunni, og eigin-
maður hennar, Guðlaugur Tryggvi
Karlsson.
Frá róðrarkeppninni.
Ljósm. Mhl.: Einar
Sjómannadagurinn á Höfn:
Humarrallý og línu-
beiting til skemmtunar
llofn. Hornafirói. Ifi. júni.
HÁTÍÐARHÖLD sjómanna-
dagsins hér á Höfn hófust með
messu i Ilafnarkirkju kl. 11
fyrir hádegi. Prestur var séra
Gylfi Jónsson. Eftir hádegi hóf-
ust skemmtiatriði dagsins, en
þau fóru að þessu sinni fram
við fiskiðjuver KASK á Kross-
eyjarbryggju. bar var fjöldi
manns samankominn til að
fylgjast með þvi sem á dagskrá
var. Til skemmtunar var
keppni i línubeitingu ug hum-
arrallý. en humarrallý fer
þannig fram. að þátttakendur
eiga að slíta fyrirfram ákveð-
inn skammt af humri og að þvi
loknu voru vinnuhrögð metin.
Sigurvegari i humarrallýinu
var Ingvaldur Ásgeirsson, en
sigurvegari í linubeitingu var
Sæmundur Gislason.
Róðrarkeppninni, sem fara
átti fram á laugardag, var
frestað vegna veðurs, en keppnin
var síðan felld inn í dagskrá
sunnudagsins. Fjölmargar sveit-
ir tóku þátt í róðrarkeppninni og
var róið frá Álaugareyjar-
bryggju að Krosseyjarbryggju.
Tvær kvennasveitir tóku þátt í
keppninni eins og endranær og
sigraði kvennasveit fiskiðjuvers
KASK. Karlasveit fiskiðjuvers
KASK var sigurvegari í karla-
riðlinum og í öðru sæti var sveit
bræðslunnar. Að loknum
skemmtiatriðunum var flutt
ræða dagsins og var ræðumaður
að þessu sinni Sigtryggur Bene-
diktz útgerðarmaður, en síðan
var Óskar Valdimarsson, fyrr-
verandi skipstjóri og útgerðar-
maður heiðraður.
Aflaverðlaunabikar fyrir
mestan humarafla 1980 fékk
áhöfnin á Æskunni SF 140, en
hún aflaði 21.687 tonn, og voru
aflaverðmæti 57.227.150 gkr.
Skipstjóri á Æskunni er Björn L.
Jónsson. Aflaverðlaunabikar
fyrir mestan afla á vetrarvertíð
fékk áhöfnin á Gissuri hvíta SF
55, en afli þeirra var 985.533 kg.
og aflaverðmætið 2.204.703.58
krónur. Skipstjóri á Gissuri
hvíta er Guðmundur Kr. Guð-
mundsson.
Síðasti liður á dagskrá var
skemmtisigling fiskibáta út
fyrir Ósinn og var fjöldi fólks í
siglingunni. _ Einar
Landbúnaðarafurðir:
Framleiðslukostnaður helm-
ingi hærri en heimsmarkaðsverð
— segir dr. Ingjaldur Hannibalsson
Framleiðslukostnaður
landbúnaðarafurða hér á
landi er meira en helmingi
hærri en heimsmarkaðs-
verð og virðisauki á hvern
starfsmann í landbúnaði
er 2,4, á meðan virðisauk-
inn á hvern starfsmann í
fiskveiðum er 13,7, í fisk-
vinnslu 13,2 og í iðnaði
7,9. Þetta kom fram í
erindi, sem dr. Ingjaldur
Ilannibalsson iðnaðar-
verkfræðinRur, forstöðu-
maður tæknideildar Fé-
lags íslenskra iðnrekenda,
hélt á ráðstefnu um at-
vinnumál á höfuðborRar-,
svæðinu, en ráðstefnan var
haldin á laugardag.
Á ráðstefnunni kynnti Ingjald-
ur fjóra mælikvarða sem nota má
til þess að meta arðsemi heilla
atvinnugreina fyrir þjóðarbúið.
Gerir Ingjaldur ráð fyrir því í
útreikningum sínum, að heims-
markaðsverð iðnaðarvara, full-
unninna fiskafurða og fisks sé það
sama og heimsmarkaðsverð og
Lýsi yfir vantrausti á Svavar Gests-
son og tel að kommarnir ráði of miklu
— segir Eggert Haukdal alþingismaður og fulltrúi
Rangárvallasýslu í fulltrúaráði Brunabótafélags íslands
„ÉG LÝSTI vantrausti á ráð-
herrann. Svavar Gestsson. fyrir
þessa skipan og ég iýsi um leið
vantrausti á stjórn Brunabota-
félags íslands. Stjórn Bruna-
botafélagsins klúðraði þessum
hlutum". sagði Eggert Haukdal
alþingismaður og fulltrúi
Rangárvallasýslu í fulltrúaráði
Brunabótafélags íslands, er
Mhl. spurði hann álits á skipan
í emhætti forstjóra Brunabóta-
félagsins.
„Stjórn Brunabótafélagsins
gat komið í veg fyrir að svona
færi“, sagði Eggert. „Ásgeir til-
kynnti um uppsögn á fulltrúa-
ráðsfundi í fyrra, en formlega
sagði hann ekki upp fyrr en
seinna í vetur. Þennan tíma
hefði stjórnin átt að nota til að
fá Ásgeir til að hætta við að
segja upp. Ef hún gegndi sínu
hlutverki hefði hún rætt við
hann í tíma og komið í veg fyrir
að hann segði upp. Ég ræddi
bæði við Ásgeir og Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra,
sem sæti á í stjórn Brunabótafé-
lagsins og benti þeim á þetta og
hvatti Ásgeir til að halda áfram.
Ég tel að stjórnin hafi alls ekki
gegnt sínu hlutverki. Hún svaf.
Þess vegna lýsi ég vantrausti á
hana í þessu máli.
En þettá breytir ekki því að
þetta var ómerkilegt af Svavari
Gestssyni. Ásgeir Óiafsson er
slíkur öndvegismaður að Bruna-
bótafélagið sem er eign sveitar-
félaganna í landinu, þurfti á því
að halda að hafa hann áfram í
starfi, enda er maðurinn ungur
að árum og heldur fullum starfs-
kröftum. Að honum frágengnum
voru tveir ágætir menn í Bruna-
bótafélaginu sem sóttu um þetta
starf og þeir hefðu að sjálfsögðu
átt að hljóta það og þeir jafnvel í
sameiningu. Þess vegna lýsi ég
einnig yfir vantrausti á ráðherra
fyrir meðferðina á málinu.
— Hvað finnst þér um undir-
tektir sveitarstjórnarmanna í
málinu, m.a. þeirra sem tjáðu sig
i Mbl. Þeir lýsa yfir að kommún-
istar ráði orðið of miklu í
ríkisstjórninni?
„Ég get alveg verið sammála
þeim, og það kemur fram um leið
og ég lýsi vantrausti á Svavar
Gestsson að ég tel að kommarnir
ráði of miklu.
Þessi vinnubrögð öll eru for-
kastanleg og ekki hægt að una
við þetta," sagði Eggert að lok-
sagði hann, að eftir lauslega
könnun hefði komið í ljós, að
framleiðslukostnaður landbúnað-
arafurða sé meira en helmingi
hærri en heimsmarkaðsverð.
Það kom fram hjá Ingjaldi, að
þegar mælikvarðinn virðisauki á
ársverk sé metinn, þá komi í ljós,
að virðisaukinn sé mestur í fisk-
veiðum, 6,3, í fiskvinnslu 3,4, í
iðnaði 2,9 og í landbúnaði 1,2.
Sagði Ingjaldur, að virðisauki í
landbúnaði sé mjög lár og að ljóst
sé, að landbúnaðurinn sé mikill
baggi á þjóðarbúinu. Þá kom það
fram hjá Ingjaldi, að hráefnis-
kostnaður í fiskveiðum væri eng-
inn og ljóst væri, að ef fiskveið-
arnar þyrftu að borga gjald fyrir
hráefnið eins og aðrir atvinnuveg-
ir, þá yrði afkoma fiskveiða mun
verri, því varla væri mögulegt að
hækka fiskverðið, þar sem tekjur
fiskvinnslunnar ákvörðuðust af
heimsmarkaðsverði á fiskafurð-
um.
Hvalveiðibann
til umræðu hjá
hvalveiðiráðinu
Allsherjarhann við hvalveiðum
verður að líkindum helzta umræðu-
efni á fundi vísindanefndar Alþjóða
hvalveiðiráðsins, sem hcfst í Cam-
bridKe i lok þessa mánaðar og á
fundi ráðsins, sem hefst í Brighton
20. júli.
Fulltrúar íslands í vísindanefnd-
inni verða Jón Jónsson, fiskifræðing-
ur, og Jóhann Sigurjónsson, sérfræð-
ingur í sjávarspendýrum. Þórður
Ásgeirsson, sem verið hefur formað-
ur Hvalveiðiráðsins undanfarin þrjú
ár, lætur af því embætti á fundinum
í Brighton og tekur Kanadamaður,
sem verið hefur varaformaður, við
embættinu.