Morgunblaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
3
Þjóðhátíð
í Reykjavík
Dagskrá þjóðhátíðarinnar í Reykjavík hefst klukkan 09.55 með
samhljómi kirkjuklukkna i Reykjavík.
Klukkan 10.00 leggur Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar,
blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarð-
inum við Suðurgötu. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur.
Við Austurvöll
Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika ættjarðarlög á Austurvelli og
klukkan 10.40 setur Þorsteinn Eggertsson, formaður þjóðhátíðar-
nefndar, hátíðina.
Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri
Oddur Björnsson.
Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, leggur blómsveig frá
íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Karlakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn.
Forsætisráðherra, dr. Gunnar Thoroddsen, flytur ávarp. Karlakór
Reykjavíkur syngur ísland ögrum skorið og flutt verður ávarp
Fjallkonunnar. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur Eg vil elska mitt land.
Kynnir verður Helgi Pétursson.
í Dómkirkjunni verður guðsþjónusta klukkan 11.15. Biskupinn
yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, predikar. Dómkórinn
syngur. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgel. Einsöngvari er Svala
Nílsen.
Leikur lúðrasveita
Frá klukkan 09.30 til klukkan 11.30 munu lúðrasveitir leika á
eftirtöldum stöðum, í tímaröð: Við Hrafnistu, Hátún, Borgarspital-
ann, Elliheimilið Grund, Landspitalann og Landakotsspitalann.
Hátíðarhöld í Árbæjarhverfi
í Árbæjarhverfi hefjast hátíðarhöldin klukkan 13.00. Þá verður
safnast saman við Árbæjarsafn og leggur skrúðganga af stað þaðan
klukkan 13.15. Gengið verður eftir Rofabæ, að Árbæjarskóla.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur, undir stjórn Odds Björnssonar. Fyrir
göngunni fara skátar og íþróttafólk.
Klukkan 13.45 hefst dagskrá við Árbæjarskóla í umsjón íþrótta- og
skátafélaga. Séra Guðmundur Þorsteinsson flytur hátíðarávarp,
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur, Laddi og Tóti trúður koma í heimsókn
og dansaðir verða þjóðdansar. Einnig verður sungið.
Hátíðarhöld í Breiðholtshverfum
Klukkan 13.00 leggur af stað skrúðganga frá Stekkjabakka
v/Breiðholtsbraut. Gengið verður eftir Breiðholtsbraut, Seljabraut
og að bensínstöð við Norðurfell. Þaðan fer skrúðganga kl. 13.20.
Gengið eftir Norðurfelli, Vesturbergi, Suðurhólum, Austurbergi,
Norðurfelli að Fellaskóla. Lúðrasveitin Svanur leikur undir stjórn
Sæbjörns Jónssonar. Skátar ganga undir fánum og stjórna göngunni.
Klukkan 14.00 hefst samfelld dagskrá við Fellaskóla í umsjá
frjálsra félagasamtaka.
Kynnir verður Jörundur Guðmundsson. Lúðrasveitin Svanur
leikur, Breiðholtsleikhúsið flytur leikþátt, nemendur úr Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar sýna dans og Laddi kemur í heimsókn.
Klukkan 14.30 verður leikin knattspyrna á íþróttavellinum og
þar er bílasýning á vegum fornbílaklúbbsins og BFÖ.
Klukkan 14.30 verður sundkeppni o.fl. í sundlaug Fjölbrautaskól-
ans. í Fellahelli hefst kaffisala kvenfélagsins Fjallkonunnar kl.
14.30.
Tjarnarflöt (vestan Bjarkargötu)
Klukkan 13.00 til 17.00 sýna félagar úr skátahreyfingunni
tjaldbúðar- og útistörf. Farið verður i barna- og fjölskylduleiki.
Laugardalsvöllur
Þar hefst 17. júní-mótið í frjálsum íþróttum klukkan 14.00 og í
Laugardalslauginni hefst Reykjavíkurmót í sundi kl. 14.00.
Fjölskylduskemmtun
KI. 15.30 leggur skrúðganga af stað frá Illemmtorgi. Gengið
niður Laugaveg og Bankastræti á Lækjartorg. Lúðrasveit verkalýðs-
ins leikur undir stjórn Ellerts Karlssonar. Skátar ganga undir fánum
og stjórna göngunni. Dagskrá á Lækjartorgi hefst kl. 16.00.
Þátttakendur: Ása Ragnarsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Kol-
brún Halldórsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Ólafur Örn
Thoroddsen, Sigurður Sigurjónsson og Soffía Jakobsdóttir.
Klukkan 16.40. leika skólalúðrasveitir Árbæjar og Breiðholts við
MR.
Klukkan 16.45 syngja Stjúpbræður á Austurvelli.
Klukkan 16.50 leikur jass-hljómsveit úr tónlistarskóla FÍH á
Hótel íslandsplani.
Og klukkan 17.00 verður götuleikhús við Bernhöftstorfu.
Hátíðartónleikar í Bústaðakirkju hefjast klukkan 21.00. Kór
Langholtskirkju syngur íslensk lög undir stjórn Jóns Stefánssonar.
Kvöldskemmtun
Þjóðhátíðarhöldum Reykvíkinga lýkur með dansleik i Laugardals-
höll. sem hefst klukkan 21.00. Þar leika hljómsveitirnar Brimkló og
Grýlurnar fyrir dansi.
Eftirspurn eftir Spánar-
ferðum eykst á ný
LANDLÆKNIR, Ólafur Ólafs-
son, hefur fengið hréf frá Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni, er
segir, að tölfræðilegt samband sé
á milli sölu á ólöglcgri mataroliu
og sjúkdómstilfella af Spánar-
veikinni. Hefur landlæknir þvi
fellt úr gildi viðvaranir þær, sem
gefnar höfðu verið út til ferða-
langa hér á landi i samráði við
lungna- og farsóttarsérfræðinga.
Mbl. sneri sér til Steins Lárusson-
ar, formanns Sambands ferða-
skrifstofa, og spurði hann að þvi.
hvort samdráttur hefði orðið á
bókunum til Spánar og hvort það
hefði reist við eftir að viðvaran-
irnar hefðu verið fclldar niður.
Steinn sagði, að ekki hefðu verið
neinar verulegar uppsagnir á bók-
unum til Spánar, en fólk, sem
hefði kannski ekki verið búið að
ákveða sig, hefði lagt Spánarferð á
hilluna. Þó virtist sem lands-
byggðin hefði tekið þessu alvar-
legar, en þetta sé að jafna sig eftir
síðustu ummæli læknisins.
Frestun heimsmeistaraeinvígisins:
Ákvörðun Friðriks kom
Sovétmönnum í opna skjöldu
„Engin viðbrögð borist ennþá.“
segir Friðrik Ólafsson, forseti FIDE
Páll Þorsteinsson borgarfógeti
Skipaður
borgarfógeti
PÁLL Þorsteinsson, deildarstjóri i
Gjaldhcimtunni. hefur verið skipað-
ur borgarfógeti við embætti yfir-
borgarfógetans í Reykjavik frá og
með 1. júli nk.
Páll er 38 ára gamall, fæddur í
Reykjavík, sonur Sigurrósar Torfa-
dóttur og sr. Þorsteins Björnssonar.
Hann varð stúdent frá MR 1966 og
lauk lögfræðiprófi frá HÍ1973. Hann
varð fulltrúi yfirborgarfógeta 1974.
Auk Páls sóttu um stöðuna Gísli
Símonarson, Hafþór Guðmundsson,
Halldór Sigurgeirsson og Páll Skúla-
son, fulltrúar við yfirfógetaembætt-
ið og Karl Jóhannsson, fulltrúi
sýslumannsins á Selfossi.
ÞJÓÐLEIKHÚSRÁÐ mun á fundi
á morgun fjalla um hljóðnema-
málið svokallaða, en skýrsla frá
Þjóðleikhússtjóra um tækjabún-
aðinn á skrifstofu hans barst i
ÁKVÖRÐUN Friðriks ólafsson-
ar forseta FIDE um frestun
heimsmeistaraeinvígis þeirra
Karpovs og Korchnois vegna
fjölskyldumála þess siðarnefnda i
Sovétríkjunum, hefur vakið
mikla athygli viða um heim og i
blöðum þar sem fjallað er um
málið í Evrópu og víðar hefur
það komið fram að ákvörðun
FIDE hafi komið Sovétmönnum
mjög á óvart, en þeir munu nú
hugleiða hvaða afstöðu þeir taka
til málsins. Mun þessi ákvörðun
Friðriks hafa komið bæði sovéska
skáksamhandinu og heimsmeist-
aranum mjög i opna skjöldu, og
hafa talsmenn sovéska skáksam-
bandsins m.a. látið þau orð falla
að þetta væri óiþróttaleg leið til
þess að ná af þeim heimsmeist-
aratitlinum.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Friðrik Ólafsson forseta
FIDE og spurði hann hvort ein-
hver viðbrögð við frestuninni
hefðu komið til hans. Kvaðst
Friðrik ekki hafa haft fregnir af
neinum viðbrögðum, en sér skyld-
fyrrakvöld og einnig skýrsla
þeirra starfsmanna sem voru við
málið viðriðnir, samkvæmt upp-
lýsingum Haralds Ólafssonar
formanns Þjóðleikhúsráðs.
ist að Sovétmenn þyrftu tíma til
þess að hugsa sig um áður en þeir
tækju afstöðu til málsins.
Albert Guðmundsson:
„Uppspuni
frá rótum“
„ÉG VEIT ekki hvar svona fréttir
eru framleiddar og ég er hvorki né
hef verið á launum hjá Bayern
Munchen eóa Standard og þetta er
uppspuni frá rótum." sagói Albert
Guómundson alþingismaóur i sam-
tali við Morgunhlaóió i gærkvcldi.
þegar undir hann var horin frétt
sem birst hefur i blaóinu Abenzeit-
ung i Munchen og Dagblaóió sagói
frá i fyrradag. I þessum fréttum
kemur fram að Albert hafi fengið
600 þúsund mórk árlega frá
Standard þann tima sem Ásgeir
Sigurvinsson lék meó félaginu.
Ennfremur kom fram að Albert
muni árlega frá 185 þusund mörk
frá Bayern Miinchen.
„Ég skil ekki hvaöa tilgangi
svona fréttir þjóna,“ sagði Albert.
Albert sagði að hann hefði komið
Ásgeiri á framfæri við Standard á
sínum tíma og væru það einu
afskiptin sem hann hefði haft af
málum Ásgeirs. „Mér er næst skapi
að hlægja að þessari frétt, en
fréttin er meiðandi og kallar á
frekari athugun á uppruna hennar.
Mínar bestu óskir fylgja Ásgeiri
hér eftir sem hingað til og öll
þjóðin hlýtur að vona að honum
auðnist að standa sig jafn vel og
hann hefur gert hingað til,“ sagði
Albert Guðmundsson.
Þjóðleikhúsráð:
Skýrsla um hljóðnema-
málið rædd á morgun
Aög.miöasalan fer fram í tjaldi í Austurstræti frá kl.
12—16.30 og á Laugardalsvelli frá kl. 15.00.
VALUR