Morgunblaðið - 17.06.1981, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
í VEIÐIFERÐ MEÐ B/V DAGRÚNU FRÁ BOLUNGARVÍK
fiskast meðan trollið er á dekk-
inu.
Á leiðinni austur var tekið
prufuhal á Skagagrunninu en
ekki fyllti það marga kassa sem
úr því hali kom, svo ekki þótti
ástæða til að staldra þar við
lengi og ferðinni haldið áfram.
Miðin sem .togararnir voru á
þarna fyrir austan voru suðaust-
ur af Hvalbak. Þarna voru um
20—30 skip og aflinn hafði verið
nokkuð misjafn síðasta sólar-
hring frá tonni og upp í 15 tonn í
hali.
Milli hásetanna um borð var
ákveðin verkaskipting þannig að
tveir eru á hvorum hlera og þeir
sem eru saman á hlera vinna
saman í lest. Lestarvinnan skipt-
ist síðan eftir hvert hal á milli
þeirra sem eiga að vera þar því
yfirieitt er aðeins einn í lestinni í
einu.
Annars var mitt aðalstarf við
nálarkörfuna en það reyndi auð-
vitað ekki á það embætti nema
þegar verið var að bæta og þá var
betra að standa sig þegar þeir
voru að heimta: einfalt, tvöfalt,
bensla, rautt, pokanál, o.s.frv.
Annars var mér oft hugsað til
þess þegar ég var að troða
garninu í nálarnar hvers vegna
ekki væri keppt í nálaþræðingu á
sjómannadeginum í Bolungarvík.
llalli frá Sandi 1. vélstjóri tekur lagið íyrir Stefán kokk á meðan hann
mótar hollur úr fiskfarsinu.
Grein og myndir:
Gunnar Hallsson
Laust fyrir miðnætti þennan
dag seint í april staulaðist ég
upp landganginn og um borð í
skuttogarann Dagrúnu ÍS. Há-
varður Olgeirsson skipstjóri
hafði hoðað hrottför á miðnætti
og ég hafði ráðið mig í háseta-
pláss þennan túr.
Áhafnarmeðlimir tíndust nú
um borð hver af öðrum og
söfnuðust saman í borðsalnum
nema vélamennirnir sem unnu
við það að ræsa vélina því fyrr
var ekki hægt að halda af stað.
Markús 1. stýrimaður leit inn í
borðsalinn og ráðfærði sig við
Magnús 2. stýrimann og Snorra
bátsmann um skipun vaktanna
þar sem eitthvað var um afleys-
ingamenn. Þegar það var komið á
hreint fékk ég að vita að ég átti
að vera á morgun- og kvöldvakt-
inni með Magnúsi 2. stýrimanni
og þremur öðrum hásetum.
Landfestar voru leystar og
veiðiferðin var hafin.
Á vaktaskiptum ræddu menn
mikið um það hvert kallinn
ætlaði sér að halda nú. Flestir
voru á því að hann myndi halda á
grálúðumiðin og færðu menn rök
fyrir því byggð á þorskveiði-
banns- og helgarfríaútreikning-
um. Stefán sem að öllu jöfnu er
háseti en leysti nú af sem kokkur
vakti mig klukkan sex með því að
kveikja ljósið í klefanum og kalla
með sérstökum sjómannahreim
„ræs“. Þetta þýddi að nú var
hálftími til vaktaskipta. Við sem
vorum að koma á vakt fengum nú
þær fréttir að þar sem ís hamlaði
veiðum á grálúðumiðunum hefði
kallinn ákveðið að fara á miðin
fyrir austan land en þar höfðu
þeir á Dagrúnu aflað vel í síðasta
túr eða um 200 tonn á sex
sólarhringum.
Það hýrnaði nú heldur yfir
köllum um borð því nú var útlit
fyrir þorsktúr, en þorsktúr gefur
helmingi meiri hlut en grálúðu-
túr.
Gott hal, 12—13 tonn.
Á miðin fyrir austan land er
um eins og hálfs sólarhrings
sigling, en tíminn er nýttur vel
og unnið við endurbætur á troll-
inu auk þess þarf að fixa sem
kallað er þ.e. útbúa toppvængi og
undirvængi á trollið því svo kann
að fara að skipta þurfi um þessa
hluti í góðu fiskiríi og þá er betra
að hafa allt klárt, því ekkert
Rí
Útlit fyrir
þorsktúr
og hýrt
yfir
mönnum
Stýrimannaskól-
anum í Vestmanna-
eyjum sKtið í 17. sinn
Stýrimannaskólinn í Vest-
mannaeyjum hefur starfað
frá árinu 1964 og var skólan-
um slitið í 17. sinn þ. 16. maí
sl.
Á þessu skóiaári stunduðu
30 nemendur nám við skól-
ann, 22 á öðru stigi og 8 á
fyrsta stÍKÍ- Á heimavistinni
bjuggu 17 nemendur í vetur.
Ilæstu einkunn á fyrsta stijfi
hlaut Eiríkur Sigurðsson frá
Ilúsavík með meðaleinkunn
9,53. Annar varð Helgi II.
Georgsson frá Vestmanna-
eyjum með meðaleinkunn
8,50 og þriðji^ Stefán J. Sig-
urðsson, Árskógsstrond,
með meðaleinkunn 8,16.
Þeir urðu efstir og jafnir, Elías V. Jensson og Þorsteinn Jónsson.
Á öðru stigi voru hæstir og
jafnir Elías V. Jensson frá Gjá-
bakka í Vestmannaeyjum og
Þorsteinn Jónsson frá Patreks-
firði með meðaleinkunn 8,98.
Annar varð Magnús K. Ás-
mundsson frá Siglufirði með
meðaleinkunn 8,79 og þriðji
Benedikt B. Sverrisson frá Fá-
skrúðsfirði með meðaleinkunn
8,21.
Dúxarnir á öðru stigi fengu í
verðlaun glæsileg barómet frá
Sigurði Einarssyni útgerðar-
manni og á sjómannadag, þegar
aflakóngar og aðrir afreksmenn
verða heiðraðir, hljóta þeir Verð-
andaúrið frá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Verðanda.
Sigurður Georgsson, nemandi á
öðru stigi, fékk bók úr verðlauna-
r
-