Morgunblaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
15
Vorfræðsla
forskólanema
MEÐ HÆKKANDI sól eru ekki
einungis skólar að hætta heldur
einnÍK að hef jast. Vorfræðsla
forskóianema nefnist skóli
nokkur fyrir börn á aldrinum
5—6 ára, sem er í umsjá
Guðrúnar Björgvinsdóttur og
Gyðu Ragnarsdóttur, en vor-
fræðslan er á vegum umferð-
arráðs og lögreglunnar á hverj-
um stað þar sem kennslan fer
fram.
Blaðamaður Morgunblaðsins
tók þær stöllur Guðrúnu og
Gyðu tali og spurði hvenær
skólinn hefði verið stofnaður og
hvenær þær hefðu byrjað í
starfinu.
Guðrún kvaðst hafa byrjað
með skólann fyrir 14 árum, en
Gyða hefur verið starfandi við
hann í sex ár. Ástæðan fyrir því
að skólinn var stofnaður var sá
að umferðarfræðsla var aukin
með tilkomu hægri handar um-
ferðar og var þessi vorfræðsla
einn liðurinn i aukinni umferð-
arfræðslu.
— Takið þið eingöngu nem-
endur á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu?
— Nei, við tökum einnig t.d.
Suðurnesin og förum austur
fyrir fjall, Akranes höfum við
tekið, Akureyri og svo Vestfirð-
ina í fyrra.
— Hvernig hagið þið kennsl-
unni, og hvað eru margir nem-
endur í skólanum að jafnaði?
— Að jafnaði eru í skólanum
í kringum 100 börn. Við erum
með tvo hópa í hverjum skóla,
fimm og sex ára og erum við með
hvern hóp í eina klukkustund
tvisvar sinnum.
Fyrri tímann kennum við
þeim hver sé munurinn á
gangstétt og akbraut og hvað
gera eigi áður en farið sé yfir
götu. Við kennum þeim einnig
hvað á að gera ef engin gang-
stétt er og hvernig á að fara yfir
á ljósum. í lok tímans fá þau að
sjá brúðuleikhús um umferð-
armál sem við og lögreglan á
hverjum stað stjórnum. í seinni
tímanum aftur á móti eru leik-
svæði tekin fyrir og áherzla lögð
á að sitja í aftursæti. Þeim er
einnig sýnd kvikmynd um um-
ferðina, en í Iokin fá þau að sjá
teiknimynd. Einnig er vert að
geta þess að þau fá verkefni með
sér heim svo foreldrarnir geti
fylgst með því hvað er að gerast,
en síðan koma þau með verkefn-
in aftur daginn eftir.
— En er þá ekki skortur á
verklegri kennslu fyrir börnin,
þ.e.a.s. að kenna þeim hvar þau
eigi að hjóla o.s.frv?
— Jú vissulega er brýn þörf á
því, en það veitist okkur ómögu-
legt þar sem aðsóknin er mikil
og ekki nógur vinnukraftur til
staðar. En það er brýn þörf á
því. Við treystum bara á foreldr-
ana í þessu efni. Þessi tíðu
hjólreiðaslys valda okkur virki-
legum áhyggjum og við vonum
að foreldrarnir reyni að láta
börnin sín vera sem minnst í
umferðinni.
— Hvernig hefur reynslan
verið af þessum skóla?
— Reynslan er góð og aðsókn-
in hefur verið mjög mikil. Eftir
fyrstu árin sýndi það sig að
umferðarslysum fækkaði svo að
við sáum ástæðu til að halda
þessu áfram. Við treystum ekki
börnunum einum í umferðinni
og viljum kenna þeim að verða
sjálfstæðir vegfarendur í um-
ferðinni.
— Hvað sækja að jafnaði
margir skólann á ári?
— Það er óhætt að segja að á
síðasta ári hafi 5000 til 6000
börn sótt skólann. Núna voru
t.a.m. um 1100 börn í skólanum
einungis í lögdæmi Hafnarfjarð-
arlögreglu.
GERDIN
Mismunandi gerðir og stærðir af
glæsilegum sumarhúsum.
Frá 22 ferm. upp i 50 ferm.
Allt frá fokheldu til fullbúins með
húsbúnaði, möguleiki á lóðum í
skemmtilegu umhverfi.
Mjög vandaður frágangur.
KR SUMARMUS
Kristinn Ragnarsson.
húsasmiðameistari
Kársnesbraut 128 simi 41077
Heimasimi 44777
Kópavogi