Morgunblaðið - 17.06.1981, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
SS flytur höfuð-
stöðvarnar í Laugarnes
Salan 1980 jókst um 58% og nam 28 milljörðum kr.
SLÁTURFÉLAG SuAurlands ráð(?erir að flytja höfuðstöðvar sínar í
Reykjavík frá SkúIaKötu i Laugarnes á næstu 5—G árum. Aðalstarf-
semi félagsins á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því félagið var stofnað
árið 1907 farið fram að Skúlagötu 20, en þar var þá reist sláturhús og
frystihús, kjötvinnsla og heildsöludreifingaraðstaða, á eignarlóð, sem
Sláturfélagiö keypti á stofnárinu.
í frétt frá Sláturfélagi Suður-
lands segir, að á áratugnum
1950—1960 hafi verið gerðar af
hálfu Reykjavíkurborgar skipu-
lagsáætlanir um uppbyggingu
kjötiðnaðarsvæðis á Kirkjusandi
og í Laugarnesi, jafnvel hafi þá
verið gert ráð fyrir, að reist yrði
sláturhús á svæðinu. Af eðlilegum
ástæðum var fallið frá sláturhúss-
byggingu, enda hefur þróunin
bæði hér og erlendis orðið sú, að
sláturhúsin eru reist í kjötfram-
leiðsluhéruðunum og engin slátr-
un fer lengur fram innan borgar-
markanna, en í framhaldi af
skipulagsáætlunum hefur Slátur-
félaginu nú verið úthlutað 22.000
fermetra lóð í Laugarnesi. Þangað
hyggst félagið flytja höfuðstöðvar
sínar í Reykjavík og verður reist
þar frystihús, kjötvinnsla, heild-
söludreifingaraðstaða og skrif-
stofubygging. Vonast er til, að
Hljómsveitin Orghestar mun
halda tónleika að Hótel Borg
fimmtudaginn 18. júní undir
einkunnarorðunum „Fram-
lengdu sautjándann" og er efn-
isskráin, að sögn hljómsveitar-
innar, sniðin að þörfum allra
þjóðhollra íslendinga. Hljóm-
sveitin vill undirstrika þá stað-
reynd að örlög þjóðarinnar eru
ráðin við Austurvöll og vara við
skemmdarverkastarfsemi Kúpr-
ófíla.
Hljómsveitina skipa: Benóný
Ægisson: söngur, hljómborðs-
fjöl; Gestur Guðnason: gítar-
spaði; Brynjólfur Stefánsson:
bassaspaði og Sigurður Hann-
esson: tunnur.
Á þessum hljómleikum njóta
Orghestarnir aðstoðar hljóm-
Myndabrengl
Kristinn Stoinarss- Símon Kristjánsson.
on. véistjóri á Sa1- hásoti á KristbjOrttu
horxu l’II l>||.
TVÆR myndir af sjómönnum
rugluðust í Sjómannadagsblaði
Morgunblaðsins og leiðréttist það
hér með, en báðir mennirnir eru á
bátum frá Húsavík. Hér birtast
rétt nöfn undir myndunum og eru
viðkomandi beðnir velvirðingar á
mistökunum.
þjónusta SS við íbúa höfuðborg-
arsvæðisins aukist enn við full-
komnari húsakost, en gert er ráð
fyrir, að gólfflötur nýbygginga
fyrirtækisins á þessari lóð verði
um 11.000 fermetrar, mest á einni
hæð, þótt lofthæð verði mikil.
Gengið hefur verið frá lóðarsamn-
ingi við borgaryfirvöld, og stjórn
skipulagsmála borgarinnar hefur
samþykkt fyrirkomulag og hæð
bygginga á lóðinni. Ráðgert er, að
framkvæmdir hefjist í haust.
Á aðalfundi SS, sem haldinn var
í gær, var skýrt frá því, að
heildsala SS á sl. ári nam rúmlega
28 milljörðum króna, og var að
mestum hluta kjöt og kjötvörur að
eigin framleiðslu. Félagið greiddi
a.m.k. meðalgrundvallarverð fyrir
innlagðar afurðir með inniföldum
verðhækkunum sölutímabilsins
1979—1980, þótt það kæmizt ekki
borðsleikarans góðkunna, Karls
Sighvatssonar.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur út-
hlutaði á fundi sínum i gær
íbúðum í fjölbýlishúsum i Foss-
vogi, en um 30 ibúðir i G f jölbýlis-
húsum er að ræða.
17 umsækjendur hlutu 81 stig
eða íleiri og áttu þvi sjálfkrafa
rétt á úthlutun, en draga varð á
milii 25 umsækjenda vegna 13
íhúða, en allir þeir umsækjendur
voru með 80 stig.
Þeir, sem úthlutun fengu án
útdráttar, eru:
Aðalland 6, 2. hæð t.h.,
Eyjólfur ValdimarsKon. Álfh. 23.
Aðalland 6, 2. hæð t.v.,
Einar Hrafnkell Haraldsson, Irab. 30.
Aðalland 6. 3. hæð t.h.,
Ómar Aðalsteinsson. Asparf. 12.
Aðalland 6, 3. hæð t.v.,
Valdimar Valdimarsson. Bárux. 16.
Álfaland 7, 2. hæð t.h.,
Guðmundur Brynjólfsson. Gnoðarv. 70.
Álfaland 7. 2. hæð t.v.,
SólveÍK Þ. Hervarsdóttir. Ljósh. 10.
Álfaland 7, 3. hæð t.h.,
Valxerður M. InKimarsd., Ferjub. 12.
Álfaland 7. 3. hæð t.v.,
Páll Stefánsson. lljarðarhaKa 30.
Álftaland 7, 3. hæð t.v..
Kaxnar Þórhallsson. Bræðrab.st. 11.
KjarrveKur 15, 2. hæð t.h.,
Hans ó. Isebarn. GrettisKðtu 92.
KjarrveKUr 15. 2. hæð t.v.,
SÍKurjón Mýrdal. Bolstaðarhlið 50.
KjarrveKur 15, 3. hæð t.h.,
Gunnar S. Guðmundsson. KarfavoKÍ 33.
Kjarrvegur 15, 3. ha'ð t.v.,
Almarr Gunnarsson, KarfavoKÍ 33.
MarkarveKur 16. 2. hæð t.h.,
Guðjón Bjarnason. Dalalandi 9.
MarkarveKur 16, 2. hæð t.v.,
Síkíús Órn Árnason. EnKjaseli 67.
að fullu til búvöruframleiðenda,
þar eð lagt var á alla framleiðend-
ur í landinu jöfnunargjald til þess
að greiða þann halla á búvöruút-
flutningi, sem umfram var fram-
lag ríkisins til útflutningsbóta.
Heildarsala SS jókst um rúm
58% frá árinu 1979, segir í frétt
fyrirtækisins. I afurðadeildum var
aukning 55%, kjötvinnslu 63%,
sútunarverksmiðjunni 70% og
verzlunum SS 57%. Slátrað var
164.400 fjár í sláturhúsum SS, og
er það um 34.000 færra en haustið
1979, á árinu 1980 var slátrað hjá
SS 14.200 stórgripum. Kjötsala
var álíka mikil og árið á undan, en
birgðir verulega minni í árslok
1980, þótt hærri meðalþungi dilka,
rúmlega 1,6 kg. meiri en hausið
1980, drægi úr minnkun kjöt-
magns af miklu færra sláturfé.
Þessi mikla hækkun meðalþunga
dilka varð til þess, að dilkakjötið
var enn meira að gæðum. Hjá SS
flokkuðust rúmlega 93% í 1. gæð-
aflokk, voru 84% árið 1979, en á
landinu öllu hækkaði þetta hlut-
fall úr 83% í 92%.
Sláturfélagið greiðir um 250
milljónir í skatta og önnur opin-
ber gjöld vegna ársins 1980, en
afskriftir námu 660 milljónum og
var þeirri upphæð og meira til
varið til endurnýjunar á búnaði.
Nam fjárfesting á árinu 815 millj-
ónum króna, þar af var 450
milljónum varið til kaupa á vélum
og tækjum og 170 milljónum til
byggingarframkvæmda.
Fast starfslið SS í árslok 1980
var rúmlega 600 manns, en flest
varð starfsfólkið í sláturtíð haust-
ið 1980, þá 1220 manns.
Á aðalfundi SS höfðu lokið
kjörtíma sínum Sigurgeir Lárus-
son, Kirkjubæjarklaustri og Sig-
urður Sigurðsson, Stóra-Lamb-
haga. Siggeir Lárusson baðst und-
an endurkjöri vegna veikinda en
Sigurður Sigurðsson var endur-
kjörinn. í stað Siggeirs Lárusson-
ar var Lárus Siggeirsson, Kirkju-
bæjarklaustri, kjörinn í stjórn SS
MarkarveKur 16, 3. hæð t.h.,
SÍKurjón 0. SÍKurÖHHon, llvassali ili 16.
MarkarveKur 16, 3. hæð t.v.,
Bolli Héðinsson. lljarðarhaKU 27.
Eftirtaldir aðilar fengu úthlut-
að samkvæmt útdrætti:
1. Aðalland 6, 1. hæð
SÍKriður Gisladóttir. Ilvassalciti 26.
2. Álfaland 7, 1. hæð
InKÍbjorx SveinBdóttir, Drápuhlið 46.
3. Álftaland 7,1. hæð
Einar GuðbrandKHon. Álftamýri 38.
4. Álftaland 7. 2. hæð t.h.,
SÍKurborx Hjaltadóttir. Hvassaleiti 26.
5. Álftaland 7. 2. hæð t.v.,
Sesselja Ó. Einarsdóttir, Dalalandi 6.
6. Álftaland 7, 3. hæð t.h.,
Stefán MaKnússon. Seljalandi 5.
7. Ánaiand 6,1. hæð
Jóhann Óli Guðmund.Kson. StóraKr. 31.
,8. Ánaland 6. 2. hæð t.h.,
Áxúst B. Bjornsson. Hvassaleiti 18.
9. Ánaland 6, 2. hæð t.v.,
Gunnar ó. EnKÍIbertsson. GrettisK. 83.
10. Ánaland 6, 3. hæð t.h„
Arnór Þorláksson. Staðarbakka 12. 6.
11. Ánaland 6, 3. hæð t.v.,
InKÍmundur Pétursson. Hjálmholti 2.
12. KjarrveKur 15. 1. hæð
ÁKÚstína Guðmundsd.. GrettisK. 74.
13. Markarv. 16,1. hæð
Skafti Jónsson. BerKþóruKðtu 51.
Varamenn eru eftirtaldir:
14. KrÍHthjórn Daníelsson. Gautl. 17.
15. Skúli MaKnússon, FálkaKötu 14.
16. Þorsteinn Kárason. Iðufelli 4.
17. Kristmundur H. Jónss.. Hraunb. 2.
18. Hjörtur B. Óskarsson. StóraKr. 14.
19. ÓKmundur Gunnarss.. Snorrabr. 36.
20. Örn H. Jacobsen, SóleyjarK. 13.
21. RaKnhildur Elíasdóttir, Hvassal. 6.
22. Eydis Eyþórsdóttir. Ilraunhæ 56.
23. Kolbeinn Guðmundsson. Geitl. 10.
24. Jóhann Hannesson. Giljal. 17.
25. Kristján Þórhallsson. Giljal. 13.
Orghestarnir á góðum degi.
Orghestar á Borginni
Borgarráð:
30 íbúðum í 6 f jöl-
býlishúsum úthlutað
„Fjárfesting í
fegurra mannlífi44
GERÐ HAFA VERIÐ drög að samkomulagi milli Útvegsbankans
og Samtakanna Átak, sem standa saman að miklu leytl af fólki úr
SÁÁ. um að sett verði á fót sérstök deild innan bankans, en
tilgangurinn með því er að leitast við að sinna betur lánaþörf
þeirra, sem minna mega sin i þjóðfélaginu.
Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að fé deildarinnar vcrði
aðskilið frá sjóðum Útvegsbankans og að deildin hafi aðeins til
ráðstöfunar það fé, sem lagt er inn á sérstaka Átaks-reikninga.
Ililmar Helgason, stjórnarlimur Átaks, sagðist vonast til að
undirtektir almcnnings við Átaksdeildina yrðu góðar þvi árangur-
inn af stofnun deildarinnar færi aðallega eftir þvi ráðstöfunarfé,
sem deildinni bærist. Á fimmtudag mun Átak standa fyrir fundi á
Ilótel Sögu, þar sem rædd verður starfsemi deildarinnar og sagðist
Ililmar vona. að fjölmennt yrði á fundinn og fólk gerðist félagar í
Átaki og opnaði siðan reikning hjá Átaksdeild IJtvegsbankans.
Tæplega þrjú hundruð manns hafa þegar gerst félagar í Átaki.
í stefnuskrá Átaks stendur
m.a. að megintilgangur samtak-
anna sé að starfrækja upplýs-
ingaþjónustu og ráðgjöf fyrir þá
sem erfiðlega gengur að ná
áttum í fjármálakerfi nútíma-
þjóðfélags og veita lánafyrir-
greiðslu í því skyni að fjölga
atvinnutækifærum fyrir þá.
Hilmar sagði að samtökin
hefðu í þrjú ár reynt að fá leyfi
hjá ríkisvaldinu til þess að
stofna sérstakan sparisjóð sem
bæri hag þeirra sem minna
mega sín fyrir brjósti og sinnti
lánaþörf þeirra. Nú fyrir nokkr-
um mánuðum hefði hinsvegar
borist synjun frá viðskiptaráð-
herra um leyfi fyrir stofnuninni
og hefði þá verið leitað til
Útvegsbankans í því skyni að
stofna þar sérstaka Átaksdeild,
enda hefði bankinn sýnt í verki
aðstoð við þá sem minna mega
sín og hafa orðið undir í lífs-
gæðakapphlaupinu.
„Með stofnun þessarar deildar
verður okkur kleift að fylgja
eftir öllum þeim markmiðum,
sem við höfðum gert okkur vonir
um að ná með stofnun sérstaks
sparisjóðs," sagði Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, sem starfað
hefur mikið með Átaki. „Auk
þess er margvísleg hagræðing
samfara þessu fyrirkomulagi.
Gífurlegar fjárhæðir sparast við
það að ekki þarf að leggja út í
þær fjárfestingar, sem samfara
eru stofnun sérstaks sparisjóðs.
Átaksdeildin verður virkt afl á
mun styttri tíma en sparisjóður,
með öllum þeim tilkostnaði, sem
leggja þarf í við stofnun hans.
Ekki þarf að ráða sérstakt
starfsfólk og Átaksdeildin verð-
ur í öllum útibúum Útvegsbank-
ans út um land. Ekki gerðist
þörf fyrir sérstakt stofnframlag
eins og áætlað var og það fé sem
lagt verður inn á vegum Átaks
getur strax komið að gagni,"
sagði Hilmar.
„Með því að leggja fé inn á
Átaks-reikning getur fólk ávaxt-
að fé sitt á bestan hugsanlegan
máta, með þeirri vissu að það er
ríkistryggt samkvæmt lögum og
að sparifénu verði varið til betra
og fegurra mannlífs."
I stjórn Átaks eru auk Hilm-
ars þau Albert Guðmundsson,
formaður, Guðmundur J. Guð-
mundsson, Ewald Berndsen, Jó-
hanna Sigurðardóttir og Guð-
mundur G. Þórarinsson.
Ljosm. CíuAjón.
Hilmar Helgason og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, félagar í Átaki:
„Peningar og hugsjónir geta farið saman.“
Stofnun Átaksdeildar við Útvegsbankann:
Bjarni Guðbjörnsson:
„Báðum til gagns44
BJARNI Guðbjörnsson, banka-
stjóri Útvegsbankans, sagði, að
bankinn hefði fallist á drögin
fyrir sitt leyti, en þau yrðu lögð
fyrir fund Átaks á fimmtudag.
„Við tókum jákvætt í þetta,
málefnið er gott og við teljum,
að samstarfið geti orðið til gagns
fyrir báða aðila,“ sagði Bjarni.
— Hver mun hafa umsjón
með lánveitingum Átaks-deild-
arinnar?
„Bankastjórarnir munu hafa
endanlegt ákvörðunarvald í því
efni, en umsóknir um lán verða
lagðar fyrir fulltrúa banka-
stjórnar og fulltrúa Átaks.“