Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
Kvikmyndahátíð
Samtaka
áhugamanna um
kvikmyndagerð
eftir Martein
Sigurgeirsson
SÁK, samtök áhugamanna um
kvikmyndagerð, héldu sína árlegu
kvikmyndahátíð síðastliðinn
febrúar. Alls bárust 9 myndir í
keppnina og voru þær allar 8 mm
með hljóði, nema ein sem var
þögul. Myndirnar voru 10—40
mín. að lengd.
í eldri flokki, 20 ára og eldri,
voru aðeins tvær myndir, Byggða-
safnið í Vestmannaeyjum eftir
Sigfús Johnsen og Land og túristi
eftir Egil Egilsson og Skúla Ingi-
mundarson. I yngri fl. bárust sjö
myndir (yngri en 20 ára). Haukur
I»or Hauksson eftir Sigurð Sig-
urðsson, Hitaþensla eftir Smára
Ríkharðsson og Svein A. Sveins-
son, Feilpústið eftir Hall Helga-
son og Ásgrím Sverrisson, Voða-
skot eftir Helga Má Jónsson,
Gunnar Richardson og Lárus Vil-
hjálmsson. Haustdagar eftir
Gunnar Sigurðsson og Guðmund
Kristinsson, Sætbeiska 16. árið
eftir Davíð Þ. Jónsson, Phantom
of Ásendi 17 eftir Smára Rík-
harðsson.
Dómnefnd kom saman í Tjarn-
arbíói þar sem allar myndirnar
voru sýndar. í dómnefnd voru
Friðrik Þ. Friðriksson, Erlendur
Sveinsson og Kristinn Guðjóns-
son.
Að þessu sinni var engin mynd í
eldri flokki talin verðlauna verð,
en fjórar myndir í yngri flokki
hlutu verðlaun.
Aðeins einu sinni hefur verið
úthlutað gullverðlaunum. Kvik-
myndin Listaverk eftir Kristberg
Oskarsson hlaut gullverðlaun
1979. Nú gerist það aftur og
kvikmyndin Voðaskot þótti þeirra
verðlauna verð.
Myndin greinir frá tveim ung-
um mönnum, sem fá þá hugdettu
að fara á skytterí.
Kristinn Guðjónsson segir svo í
dómi um myndina: „I útiatriðum
Skýr efnisskipun. Aðstandendur
takmarka efni sitt við ákveðinn
ramma og gjörnýta efnivið sinn.
Þessi myrid færir okkur heim
sanninn um hvað hægt er að gera
við fjárhagslega takmarkaðar að-
stæður.
Leikur og samtöl í myndinni
verka mjög sannfærandi. Þeim
tekst að nýta myndmálið í þágu
sögunnar. Þessi mynd er allrar
athygli verð og mættu reyndari
kvikmyndagerðarmenn vera vel
sæmdir af ýmsu í gerð myndar-
innar.
Þrjár myndir hlutu silfur:
Sætbeiska 16. árið
Stutt mynd sem segir á gaman-
saman hátt frá unglingi sem nýtur
ekki viðurkenningar í sínum hópi
en dreymir í þess stað dagdrauma
um að vera „super“.
Höfundar fjalla á skemmtilegan
hátt um þær hræringar sem eiga
sér stað hjá unglingum á gelgju-
skeiðinu og gera það með þeirri
virðingu sem unglingum einum er
fært. Þetta gera höfundar án þess
að vera væmnir eða tilgerðarlegir
í tilþrifum sínum. Það er ferskur
andvari í þessari mynd.
U»s)É|f
-■
borsteinn Jónsson kvikmyndagerðarmaður með klippinámskeið.
Nokkrir þátttakendanna á klippinámskeiðinu.
Frá verðlaunaafhendingu, „Voðaskot" hlaut gullverðlaun. Talið frá
vinstri: Marteinn, Kristinn, Gunnar og Helgi.
Þessi mynd er unnin með vönd-
uðu hugarfari og af samviskusemi,
en það nægir ekki til þess að
myndin nái að rísa. Hljómlist er
frumsamin og tekin upp í Hljóð-
rita enda ber hún myndina tals-
vert uppi.
Dómnefnd segir svo um ofan-
greindar silfurmyndir:
„Þær endurspegla hver með
sínum hætti raunveruleika ungl-
inga í dag. Fróðlegt er að bera
þessar myndir saman og velta
fyrir sér mismunandi lífssýn, sem
fram í þeim kemur.
Verðlaunamyndirnar voru sýnd-
ar í kvikmyndasal Hótel Loftleiða,
þar sem verðlaununum var úthlut-
að. Er þetta í fyrsta sinn sem
Markmið samtakanna er að efla
kvikmyndagerð á íslandi. Mark-
miði sínu hyggjast samtökin ná
með almennri fræðslustarfsemi
svo sem námskeiðum, útgáfu-
starfsemi, ráðstefnum, samstarfi
við hliðstæð erlend samtök, s.s.
UNICA (alþjóðasamtök áhuga-
manna) Nordisk smalfilm (samtök
áhugamanna á Norðurlöndum)
o.fl.
Margt af þessu hefur verið gert,
t.d. hafa þeir Hrafn Gunnlaugsson
og Þorsteinn Jónsson leiðbeint á
námskeiðum í vetur og SÁK-
blaðið kemur út nokkrum sinnum
á ári, en það flytur fróðleik og
fréttir um kvikmyndagerð, auk
þess að vera helsti tengiliður
félagsmanna.
Tvisvar hafa SÁK-menn hlotið
brons hjá Nordisk smalfilm og
verður fróðlegt að sjá hvað Voða-
skotið gerir í vor, en kvikmynda-
hátíð norrænu samtakanna verður
í Svíþjóð í sumar.
Erlendar verðlaunamyndir hafa
verið sýndar og von er á nýjum
myndum frá UNICA.
Á næstunni mun félagsmönnum
gefast kostur á að fylgjast með
upptökum atvinnumanna, en ekk-
ert lát er á kvikmyndagerð hér á
landi eftir að kvikmyndasjóður
var stofnaður til þess að hlúa að
þessari ungu listgrein.
Tökunámskeið er fyrirhugað
auk rabbfunda og kynninga sem
félög og einstaklingar kunna að
hafa áhuga á.
Kvikmyndin er ekkert goð á
ber of mikið á vindhljóðum í
annars frábærri hljóðrönd. Sjálft
voðaskotið var of tilgerðarlegt og
yfirkeyra höfundar dramann.
Uppbyggingin að slysinu er það
góð að ekki er þörf á að
kvikmyndatökumaðurinn missi
stjórn á sér og sveifli vélinni til og
frá sem brjálaður væri. Ég verð þó
að segja að þessi mynd er ein sú
besta sem ég hef séð á mjófilmu
(8mm) og er verðug þess að skipa
sess með fyrri gullmynd SÁK.“
Niðurstaða dómnefndar var
þessi:
Haustdagar
Hér snýst flest um ástina á
þeim árum sem unglingar eru
hvað feimnastir og stóra spurn-
ingin er, hver er skotinn í hverj-
um? En í einni góðri útilegu
verður oft hægt að fá svör við því.
Hér er efnisuppbygging til
fyrirmyndar en myndin er full
langdregin á köflum. Ymis tækni-
leg vandamál voru leyst á smekk-
legan hátt en því miður bar aðeins
á því að greina mætti hljóð
tökuvélarinnar.
VODASKOT U
Auglýsingaplakat fyrir myndina „Voðaskot“.
Feilpústið
Myndin fjallar um mótorhjóla-
strák sem tapar vinkonu sinni til
annars pilts. Hann reynir að
upphefja sig á hjólinu og hittir
aðra sem hefur ekkert á móti því
að þeysa dálítið út í guðsgræna
náttúruna.
Þetta er fyrsta 8 mm myndin
sem hlýtur styrk úr kvikmynda-
sjóði. Það er mikið gleðiefni að
stjórn stjóðsins gefi leikmönnum
tækifæri til þess að gera myndir
sínar sem bestar, og vonandi
verður þar framhald á.
kvikmyndahátíð SAK sækir í önn-
ur hús en gamla Tjarnarbíó. Eftir
smá baráttu við magnarakerfi
hússins, náðist ágætur hljómburð-
ur og verður ekki á betra kosið við
kvikmyndahátíðir sem þessar. í
SÁK eru nú liðlega 100 félagar, en
samtökin eru landssamtök og
stofnuð 1978.
Aðeins tveir klúbbar eru í SÁK
og er því eitt af mörgum verkefn-
um samtakanna að stofna klúbba,
þar sem samvinna nokkurra aðila
er mun ódýrari og oft skemmti-
legri.
I lögum samtakanna segir svo
um tilgang þeirra:
stalli, sem aðeins fáir útvaldir
mega snerta. Hún er fyrir alla þá,
sem vilja nota einn áhrifaríkasta
miðil nútímans, til að koma hugs-
unum sínum á framfæri eða sýna
raunveruleikann eins og hann
kemur manni fyrir sjónir.
Ný kynslóð hefur risið upp og
tjáð sig á filmu með þokkalegum
árangri. Það er hvati fyrir þá sem
enn blunda og vilja hefjast handa.
Allir þeir sem áhuga hafa á
kvikmyndagerð geta gengið í sam-
tökin en heimilisfangið er:
SÁK Box 1347,
121 — Reykjavík.