Morgunblaðið - 17.06.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
39
húsnæði leggur ríkið fram allt að
98 prósent af heildarkostnaði og
þannig þurfa hrepparnir aðeins
að greiða um 2 prósent. Þetta
hefur orðið til að víðast er mjög
vel búið að bókasöfnum í Finn-
landi. Ég held að bókasöfn hafi
miklu hlutverki að gegna í menn-
ingarlífi Finna. Bókaútlán eru 15
bækur á hvern íbúa, sem er
töluvert hærra en í Svíþjóð — þar
stöndum við þeim framar þó við
séum fátækari," segir Ranta og
hlær.
„Greiðslum til höfunda er
þannig háttað að 9 prósent af
heildarupphæðinni sem fer til
bókakaupa rennur til rithöfunda.
Þeir eru almennt ánægðir með
þetta fyrirkomulag. Þá eru finnsk
bókasöfn fyrstu bókasöfnin í
heiminum sem greiða þýðendum
fyrir afnot af verkum þeirra en
nú hafa fleiri lönd tekið það upp
eftir okkur," sagði Ranta að
lokum.
Lagabreyting er miðar að
samnýtintíu bókasafna
„I Danmörku er nú verið að
vinna að endurskoðun bókasafns-
laganna," sagði Kristian Lindbo-
Larsen bókafulltrúi Danmerkur.
„í þeim felst m.a. að bókasafnslög
í Danmörku munu einnig ná til
sérfræðibókasafna og rannsókn-
arbókasafna. Meginbreytingin er
að komið verður á fót einni
ríkisstofnun sem hefur yfirum-
sjón með öllum söfnum og sam-
ræmir starfsemi þeirra.
Tilgangurinn með þessari laga-
breytingu, sem felur í sér sam-
ræmingu á starfsemi bókasafn-
anna, er fyrst og fremst að koma
á betri bókasafnsþjónustu fyrir
alla. Með þessum hætti er unnt
að samnýta frekar dönsk bóka-
söfn og bæta þjónustuna verulega
án þess að kostnaðurinn aukist aö
sama skapi. Þá er einnig unnið að
því að bæta bókasafnsþjónustu
til handa þeim sem eru fatlaðir
eða hafa einhverjar sérþarfir.
Nú er mikill áhugi fyrir að
komið verði upp bókasafnsdeild-
um á stórum vinnustöðum og
hefur hún verið könnuð í sam-
vinnu við stéttarfélög, atvinnu-
rekendur og sveitarstjórnir. Við
höfum gert tilraunir með þetta á
nokkrum stöðum en þetta er
hvergi komið í fast form ennþá.
Þá þyrfti að bæta bókasafnsþjón-
ustu í skólum og allsstaðar þar
sem kennsla fer fram. í grunn-
skólum og háskólum er ástandið
nokkuð gott en í framhaldsskól-
um vantar mikið á að svo sé. Það
eru allir sammála um að úrbóta
sé þörf, en sem stendur höfum við
ekki fjármagn til að ráða við
þetta verkefni.
í Danmörku er nú töluvert
atvinnuleysi meðal bókasafns-
fræðinga og eru ekki færri en 500
bókasafnsfræðingar þar atvinnu-
lausir. Víða um landið eru bóka-
söfn sem hafa opið hluta úr degi
en þar starfar nær undantekn-
ingarlaust fólk sem ekki hefur
próf í bókasafnsfræðum. Það yrði
nokkur lausn á atvinnuleysi
bókasafnsfræðinga ef hluti þess-
ara safna hefði fullan opnunar-
tíma og þar með starfsfólk í fullri
vinnu — þetta myndi jafnframt
leiða til bættrar bókasafnsþjón-
ustu fyrir almenning."
Hvernig er greiðslum til höf-
unda varið fyrir bækur á bóka-
söfnun í Danmörku?
„Höfundar fá kr. 2,30 árlega
fyrir hverja bók sem þeir eiga á
bókasafni. Þetta getur orðið veru-
leg upphæð sé um kunnan höfund
eða vinsælan að ræða — og
danskir rithöfundar segja sjálfir
að þetta sé bezta fyrirkomulag
sem hugsast getur."
Að lokum sagði Lindbo-Larsen:
„Ég hef kynnt mér íslenzk bóka-
söfn eftir föngum og vona að þær
áætlanir sem uppi eru um um-
bætur á þeim megi ná fram að
ganga. ísland er þekkt fyrir það
hversu fólk les þar mikið og því
ættu hér að vera góð bókasöfn og
góð bókasafnsþjónusta."
Mengun brennisteinstvíoxíðs engu
minni frá ál- en jámblendiverksmiðju
Engra mælinga krafist frá álverksmiðjunni
Brennistcinsútblásturinn
frá álverinu í Straumsvík
virðist sambærilegur við það
sem er í somu fjarlægð frá
járnhlendivcrksmiðjunni í
Ilvalfirði, að því er fram
kemur í madingum á lofti við
álverið, sem þeir Þorkell J«>-
hannesson prófessor og Ilörð-
ur Þormar efnafræðingur
hafa gert á vegum Eiturefna-
nefndar. En engar aðrar mæl-
ingar á hrennisteinstvíoxíði
hafa farið fram við álverið frá
upphafi. þótt kröfur séu gerð-
ar um madingar á því við
járnhlcndiverksmiðjuna. Að-
eins verið litið á hugsanlega
flúormengun. hún mæld og
gcrðar ráðstafanir til að fá
hreinsitæki hennar vegna.
Þeir Þorkell og Hörður
mældu bæði flúor og brenni-
steinstvíoxíð i lofti nálægt
áiverinu og til samanburðar i
allmikilli fjarlægð, en við það
kom fram að brennisteinstvi-
oxíðið er aðeins til staðar i
nánd við verksmiðjuna, þar
sem flúor aftur á móti finnst
einnig i loftsýnum fjær sem
bendir til að flúor safnist
einnig i andrúmsloftið annars
staðar frá en frá verksmiðj-
unni. En báðar hafa þessar
lofttegundir ertandi eiturá-
hrif á öndunarfæri og í rikari
mæli séu slík áhrif samverk-
andi frá báðum. í öryggis-
skyni virðist því engu síður
ástæða til að ákvarða brenni-
steinstvíoxíð frá álverinu i
Straumsvik en við járnblendi-
verksmiðjuna við Grundar-
tanga.
Nýlega kom á prenti skýrsla
þeirra Þorkels og Harðar um
mælingar á útblæstri á flúor
og brennisteinstvíoxíði í loft-
sýnum, sem tekin voru á árun-
um 1977-1980. Hafði Eitur-
efnanefnd samþykkt að tekin
yrðu loftsýni við álverið til
ákvörðunar á flúor í því. En
tvímenningunum sýndist, þeg-
ar til kom, að brennisteinství-
oxíðið gæti engu síður verið
vandi, þótt menn hefðu fram
að því ekki haft af því áhyggj-
ur. Við járnblendiverksmiðj-
una hafa Norðmenn aftur á
móti annast mælingar á
brennisteinstvíoxíði í lofti,
eins og krafist er þar. Er gerð
grein fyrir því í skýrslunni að
við álbræðslu geti verið hætta
á myndun a.m.k. þriggja
mengandi lofttegunda: koltví-
oxíðs (ásamt koloxíði), flúor-
vetnis og brennisteinstvíoxíðs.
í þessum mælingum voru not-
uð sömu sýni til að mæla bæði
flúor og brennisteinstvíoxíð í
útblæstri frá álverksmiðjunni.
Mælingar fóru fram á 10
stöðum, mislangt frá verk-
smiðjunni. Mælingastaðir A 1,
2, 3 og 4 í næsta nágrenni eða í
um kílómeters fjarlægð. Mæl-
ingastaðir A 5, 6 og 7 voru í um
það bil 2ja km fjarlægð. Mæl-
ingastaðir A 8 og 9 í 4—5 km
fjarlægð. Og loks var einn
staður fjærst, á Álftanesi.
Leitast var við að taka sýnin
þegar vind lagði af verksmiðj-
unni að athugunarstað.
• Grunnmonjíun frá
flúor, ekki brenni-
steinstvíoxíði
Eins og við var að búast var
magn flúors mest á þeim
athugunarstöðum, sem næstir
voru álverinu eða á mælinga-
stöðum A 1—4, en minna er
fjær dró. Athyglisvert var þó,
segir í skýrslunni, að flúor var
greinanlegt í öllum sýnum sem
tekin voru til samanburðar í
fjarlægð, við Iðntæknistofnun
Islands á Keldnaholti. Því
verður að draga þá ályktun að
hér sé um að ræða bakgrunns-
mengun af völdum flúors, sem
tæpast má rekja til álversins í
Straumsvík. Virðist fyrir
hendi flúor í lofti, sem ekki er
hægt að skýra með verksmiðj-
unni í Straumsvík einni, enda
þótt ekki sé vitað hvaðan það
kemur og í hve miklu magni.
Hér gæti þessi bakgrunns-
mengun af flúor t.d. komið af
eldfjallaösku, úr sjónum, frá
skrúfuþotum o.fl.
Hinsvegar kemur fram við
mælingar á lofti, að magn
brennisteinstvíoxíðs í sýnun-
um á Keldnaholti var minna
en svo að það yrði greint.
Tvisvar sinnum var safnað
sýnum í heilan sólarhring, en í
hvorugt skiptið var hægt að
greina brennisteinstvíoxíð.
Virðist því ekki vera bak-
grunnsmengun af völdum
brennisteinstvíoxíðs á þessum
slóðum, enda þótt svo sé þegar
flúor á í hlut. Hlýtur því að
verða að álykta, að sem næst
allt magn brennisteinstvíox-
íðs, er mælt var á öllum
athugunarstöðunum merktum
A 1 til 10, sé að rekja til
álversins.
Greinilegt samhengi virðist,
skv. töflu í skýrslunni, vera
milli reykjar eða reykjarlyktar
og mælds magns brennisteins-
tvíoxíðs og flúors. Er líklegt að
þessi efni berist samtímis frá
álverinu og þau dreifist með
eða í reyk. Samanburður er
gerður á brennisteinstvíoxíði
skv. norskum mælingum í
nánd við járnblendiverksmiðj-
una á Grundartanga og virðist
svo að brennisteinsútblástur
sé sambærilegur í jafnmikilli
fjarlægð frá báðum verksmiðj-
unum. Þess er getið að skv.
upplýsingum álversins megi
ætla að við starfrækslu þess
myndist 1600— 2000 tonn af
brennisteinstvíoxíði á ári.
Járnblendiverksmiðjan gerir
ráð fyrir því að starfræksla
tveggja ofna í níu mánuði á ári
og eins ofns í þrjá mánuði leiði
til myndunar 2000—2600
tonna af brennisteinstvíoxíði.
• Samverkandi áhrif
auka hættuna
En hvað táknar þetta með
tilliti til hollustuverndar? Flú-
or og brennisteinstvíoxíð hafa
umtalsverð eituráhrif á önd-
unarfæri, einkum efri hluta,
segir í skýrslunni. Flúor (flú-
orvetni) er þó talið geta valdið
síðkomnum alvarlegum breyt-
ingum í lungum, líkt og þekk-
ist eftir köfnunarefnisoxíð. Þá
ér þess að minnast að brenni-
steinssýra, er myndast úr
brennisteinstvíoxíði, hefur
mun meiri eituráhrif í öndun-
arfærum manna en brenni-
steinstvíoxíð og eituráhrif
þessara tveggja efna eru sam-
verkandi. I heimild skýrslu-
höfunda segir (í lauslegri þýð-
ingu úr ensku): „Samverkandi
áhrif standa í sambandi við
magn agna. Aukning skaðlegr-
ar verkunar brennisteinstvíox-
íðs getur orðið 3föld eða 4föld,
ef til staðar eru agnir, sem
geta breytt brennisteinstvíox-
íði í brennisteinssýrur." Og
bætt er við: „Er þannig ekki að
undra að markgildi brenni-
steinssýru á vinnustað sé sett
lágt.“ Ennfremur segir: „Svo
er að sjá að brennisteinstvíox-
íð hafi ekki verið ákvarðað í
lofti í eða í nánd við álverið í
Straumsvík, en það standi nú
til bóta. í ljósi hins mikla
rykmagns, sem virðist vera í
kerskálum álversins, ætti það
hins vegar að vera skýlaus
krafa að fylgst sé með magni
brennisteinstvíoxíðs í and-
rúmslofti starfsmanna engu
síður en magni flúorvetnis eða
flúoríða."
Þegar talað er um markgildi
eða hættumörk, segir m.a.:
„Samkvæmt upplýsingum
norsku loftrannsóknastofnun-
arinnar stefnir Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin að því að
sólarhringsmarkgildi (þ.e.
hættumörk) brennisteinství-
oxíðs í útilofti verði á bilinu
100—150 míkrógrömm í
rúmmetra. Óvíst verður að
teljast hvort þessum sólar-
hringsgildum yrði náð í
grennd við álverið í Straums-
vík. Hæstu sólarhringsgildi
frá Klafastöðum og Skollholti
(við járnblendiverksmiðjuna)
voru um það bil 50% af þessu
sólarhringsmarkgildi brenni-
steinstvíoxíðs.“
Um hættumörk flúors segir
m.a.: Markgildi fyrir flúor í
útlofti hafa ekki verið opinber-
iega viðurkennd. Norsk yfir-
völd mæla hins vegar með því
að sólarhringsmarkgildi fyrir
flúor sé 25 míkrógrömm í
rúmmetra. Ólíklegt er, að
þessu sólarhringsgildi yrði náð
í grennd við álverið í Straums-
vík. Eigi er þó vitað til þess að
sólarhringsmælingar á flúor
hafi verið gerðar í grennd við
álverið.
En tekið er fram: „Öll
fyrrgreind markgildi eru mið-
uð við hollustuvernd manna
einungis, þar eð eituráhrif
flúors og brennisteinstvíoxíðs
á margar plöntur, ekki síst
barrtré, eru verulega meiri en
á* menn og dýr. Ef magn
brennisteinstvíoxíðs í útilofti
er að jafnaði á bilinu 50—100
míkrógrömm í rúmmetra og
magn flúors á bilinu 2—5
míkrógrömm í rúmmetra á 24
klukkustundum, má búast við
skemmdum á næmum plönt-
um. Alþjóða skógrannsókna-
stofnunin ákvað markgildi
fyrir flúor í skógarlofti 0,3
míkrógrömm í rúmmetra og
Norðmenn mæla með sömu
eða eftir atvikum nokkuð
hærri markgildum fyrir flúor.
Tekið er fram að þessi gildi séu
fyrir efnin hvort um sig, en að
samverkun þeirra verði að
taka með í reikninginn. Síðar
segir: „Einmitt þetta ætti að
vera haft að leiðarljósi við mat
á. gróðurskemmdum kring um
álverið í Straumsvík og ekki
síst, þar eð bæði brennisteins-
tvíoxíð og flúor eru að okkar
mati við þau mörk í loftinu, að
rekja mætti að líkindum
skemmdir á gróðri til þeirra
hvors um sig, enda þótt hitt
efnið væri ekki einnig til
staðar."
• Ekki með i áætlunum
í framhaldi af þessu hafði
fréttamaður samband við Pét-
ur Sigurjónsson, formann svo-
nefndrar Flúornefndar, og
spurði hvort aldrei hefði verið
mælt brennisteinstvíoxíð
vegna hugsanlegrar mengunar
af því frá álverinu í Straums-
vík. Sagði hann að það hefði
ekki verið gert. Slíkt hefði ekki
verið talið vandamál í ál-
verksmiðjum erlendis og það
því ekki verið tekið með í
áætlanir um rannsóknir hér.
Flúornefndin hefði aðallega
fengist við athuganir vegna
flúorskemmda á plöntum og
gróðri, en heilbrigðiseftirlitið
eðlilega haft á sinni könnu allt
sem viðkemur skaðsemi fyrir
menn.
Sagði Pétur að Flúornefndin
hefði orðið vör við skemmdir á
gróðri allra næst verksmiðj-
unni, ekki síst eftir stækkun
álverksmiðjunnar. En erfitt
væri að ákvarða hvers konar
skemmdir væri um að ræða,
ekki síst eftir að fárviðri hefðu
gengið yfir eins og í vetur. Þá
gætu skemmdir t.d. hugsan-
lega verið af saltbruna úr
sjávarlofti.
Pétur sagði að í framhaldi af
mælingum og skýrslu þeirra
Þorkels og Harðar mundi Flú-
ornefndin athuga málið nánar,
hefði xaunar fengið um það
beiðni frá Iðnaðarráðuneytinu.
En slíkar athuganir tækju
mörg ár. M.a. lægi ekkert fyrir
um það hvort þær tegundir af
gróðri, sem hér eru, væru
viðkvæmar fyrir brennisteins-
tvíoxíði.
- E. Pá.