Morgunblaðið - 09.02.1982, Qupperneq 16
1 (3 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. F£BRÚAR 1982
BORGARNES
.Wmendur grunn.skólans komnir í salinn, en þeir gengu inn við undirleik nýstofnaðrar Lúðrasveitar Borgarne.ss.
Krá fimleikasýningunni.
Iþróttamidstödin vígd
llluti áhorfenda við víg.sluathofnina.
Borgarnesi, 18. janúar.
FORMLEG vígsla íþróttamið-
stöðvarinnar í Borgarnesi fór fram
um helgina. Við vígsluathöfn, sem
fram fór í íþróttasalnum, að við-
stöddum fjölda Borgnesinga og
gesta, voru ávörp flutt og fþróttir
sýndar.
Athöfnin hófst á inngöngu
nemenda Grunnskólans við und-
irleik nýstofnaðrar Lúðrasveitar
Grunnskólans. Þá voru ræðu-
höld. Guðmundur Ingimundar-
son, oddviti Borgarneshrepps,
setti samkomuna og Guðmundur
Sigurðsson, skólastjóri, stjórn-
aði henni. Húnbogi Þorsteins-
son, sveitarstjóri, rakti bygg-
ingarsögu hússins, lýsti hana
formlega tekna í notkun og af-
henti hana rekstrarnefnd húss-
ins. Birgir Guðmundsson, for-
maður rekstrarnefndar hússins,
tók við Iþróttamiðstöðinni sem
hann sagði reyndar þegar orðna
of litla og hvatti hann hrepps-
nefndarmenn að hefjast handa
við að stækka húsið. Reynir
Karlsson, íþróttafulltrúi ríkis-
ins, og Ófeigur Gestsson, for-
maður Ungmennasambands
Borgarfjarðar, fluttu góðar óskir
og síðastur tók til máls Sigurjón
Gunnarsson, formaður Skalla-
gríms.
Að loknum ræðuhöldum var
fimleikasýning undir stjórn
Þorsteins Jenssonar, íþrótta-
kennara, og að síðustu kynnti
Ungmennafélagið Skallagrímur
íþróttastarf sitt.
Ingimundarson Sigurðsson Þorsteinsson Guðmundsson Karlsson (æstsson Gunnarsson