Morgunblaðið - 16.12.1984, Qupperneq 1
144 síður B/C/D
STOFNAÐ 1913
249. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Prentsmidja Morgunbladsins
Pólland í
Alþjóða-
gjaldeyr-
issjóðinn?
Virsjí. 15. deaember. AP.
BANDAKÍSKl sendiherrann f
Varsjá gekk á fund pólskra stjórn-
valda í dag og tilkynnti þeim að
Bandaríkjastjórn myndi eigi lengur
standa í vegi fyrir að Pólverjar fái
inngöngu í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
í þrjú ár hafa Bandaríkin beitt neit-
unarvaldi sínu til að koma í veg fyrir
að umsókn Pólverja verði tekin til
greina.
Pólverjar hafa viljað ganga í
sjóðinn til þess að hressa upp á
slæman efnahag, en andstaða
Bandaríkjanna hefur aftur á móti
verið liður í efnahagsþvingunum í
garð Pólverja sem eiga rætur að
rekja til herlagasetningar pólsku
herstjórnarinnar og bann á Sam-
stöðu í desember 1981. Tveir ieið-
togar Samstöðu hafa verið leystir
úr haldi úr pólskum fangelsum
síðustu vikurnar og er aðgerð
Bandaríkjanna talin tengjast
þeim málum.
Færeyjar:
Stjórnarmynd-
un í strand
Þónsbörn, Kæreyjum, 15. des. Frá Jögnnn
Arjfe, frétUr. Mbl.
Stjórnarmyndunarviðræður í Fær-
eyjum fóru út um þúfur á fostu-
dagskvöldið. Kom það ekki sérlega á
óvart, því um erfiða fæðingu hefur
verið að ræða. Nú er óljóst hvert
framhald verður.
Þó er ljóst, að haldið verður
áfram að reyna stjórnarmyndun og
telja kunnugir að annað hvort muni
Sósíaldemókratafiokkurinn freista
þess að ná saman við aðra flokka en
Sambandsflokkinn eða þá að Fólka-
flokkurinn reyni að fá botn í málið
með einhverjum leiðum. Talið er að
skýrast muni um helgina hvaða ieið
verði reynd næst, a.m.k. munu
margir fundir verða haldnir þar
sem stjórnarstefna verður rædd.
—aW**'
Þriðja aðventukertið tendrað
Morgunblaöið/Arni Smberg
Miklar varuðarráðstafanir við gasverksmiðjuna í Bhopal:
Þyrlur dæla vatni
og svæðið umgirt
Hjúkrunarfólk hugar að
sárum í nágrenni gasverk-
smiðjunnar.
Bbopal, 15. desrmber. AP.
Efnaverksmiðja llnion (arbide
var umgirt risastórum brúnum
segldúk og sérbúnar þyrlur spraut-
uðu vatni á verksmiðjuna til þess að
koma í veg fyrir annan gasleka er
tilraun verður gerð til að gera skað-
laust það sem eftir er af eiturgasinu,
sem varð 2.000 manns að aldurtila í
fyrri viku.
Er þetta liður í umfangsmiklum
varúðarráðstðfunum, sem gripið
hefur verið til vegna hreinsunar
sem hefst í verksmiðjunni á
sunnudag og tekur fjóra til fimm
daga. Hver ráðstöfunin af annarri
hefur þó orðið til að auka fóiks-
flótta frá borginni og yfirlýsingar
stjórnvaida um að ótti sé ástæðu-
laus hafa reynst árangurslausar.
Hverfin umhverfis verksmiðjuna
líkjast því helst draugaborgum.
Settar voru upp 10 búðir nógu
langt frá verksmiðjunni til að
hýsa til bráðabirgöa fólk sem býr
Merkilegur fornleifafundur:
Ótrúlega heillegir manns-
heilar — 7000 ára gamlir!
Titiwville, Klórid., 15. desember. AP.
Fornleifafræðingar í Titusville,
Flórída greindu frá því í dag, að
þeir hefðu fundið tvo mannsheila
í mýrlendi og hefðu þeir verið
með ólíkindum heillegir miðað
við að aldur þeirra var talinn
7000 ár! í hcilunum fannst DNA
og hefur það eigi fundist í svo
gömlum líkamsleifum áður.
Talsmaður fornleifafræð-
inganna, Glen Doran, sagði
þetta vera einn merkasta forn-
leifafund fyrr og síðar. Heil-
arnir voru numdir á brott úr
heillegum höfuðkúpum og er
annar þeirra talinn úr 40 til 50
ára gamalli konu, hinn úr 25 til
27 ára gömlum manni. Alls
hafa fornleifafræðingar fundið
leifar af 40 til 50 mönnum á
þessum sióðum, misjafnlega
heillegar beinagrindur, en að-
eins umrædda tvo heila. Leif-
arnar hafa yfirleitt fundist á
þriggja til fjögurra metra dýpi
í lltilli tjörn.
Doran sagði fyrstu fornleifa-
fundi á þessum slóðum, sem
kennt er við Windover-búgarð-
ana, hafa komið í leitirnar árið
1981 og síðan hefði verið unnið
sleitulaust að rannsóknum og
stöðugt væru nýir hlutir að
koma í leitirnar. „Þetta fólk var
uppi fyrir 7000 árum. Þetta
voru veiðimenn og safnarar.
Trúlega hefur fólkið fiakkað
mikið og við höfum fundið all-
mikið af verkfærum og vopn-
um, allt unnið úr steini, tré og
beini," sagði Doran.
næst verksmiðjunni. Til þeirra
hafa aöeins 5.000 manns ieitað en
rúm er fyrir 50 þúsund. Straumur-
inn út úr borginni er margfalt
meiri og hrúgast fólk upp á þak
langferðabíla og járnbrautalesta í
örvæntingu sinni út af morgun-
deginum.
Grískt olíuskip
í ljósum logum
Muuu. Bahr.in. 15. desembrr. AP.
FITLLTRÚAK skipabjörgunarsam-
taka í Bahrain greindu frá því í dag,
að stórt olíuflutningaskip, Ninemia,
hefði orðið fyrir árás á Persaflóa.
Ninemia er grískt. Fulltrúamir sögðu
brú og vélarrúm skipsins í Ijósum log-
um eftir árásina. Óvíst er um mann-
tjón um borð, en það voru írakar sem
stóðu að árásinni. Þeir sögðust reynd-
ar hafa ráðist á tvö olíuskip, en það
var aldrei staðfest af fleiri aðilum.
Árásin var gerð fyrir utan hið hefð-
bundna átakasvæði.
Olíuskipið er 240.830 tonn og það
var statt um 100 kílómetra frá
Kharg-eyju er árásin var gerð. Þar
gerðu írakar fáeinar árásir í upp-
hafi „olíuskipastríðsins“, en síðan
ekki söguna meir þangað til nú.
Þeir munu hafa notað franskt Ex-
ocet-skeyti nú sem endranær. írak-
ar fullyrtu sem fyrr segir að þeir
hefðu skotið á tvö skip og hæft
bæði. Bættu þeir við að fleiri yrðu
fyrir barðinu á þeim á næstunni.