Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Hugarvíl Önnu Friðriks-
dóttur á sex hundruð síðum
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Guðrún frá Lundi: Dalalíf III. bindi.
Útg. Almcnna bókafélagið 1984.
Og heldur nú áfram að segja frá
fjölskyldunni á Nautaflötum. Þar
er mest áberandi sú móðursjúka
rausnarkona Anna Friðriksdóttir
og sá drykkfelldi en hugþekki eig-
inmaður hennar, Jón hreppstjóri,
sonurinn Jakob sem af öðrum ber,
sú illkvittna fósturdóttir Dísa
Páls og fleiri.
Þetta síðasta bindi er um 580
blaðsíður að lengd. Og losaralega
og efnisminna þrátt fyrir mikið af
orðum en fyrri bindin. Lungann úr
bókinni er verið að lýsa hugarvíli
Önnu Friðriksdóttur sem er ekki
aldeilis lítið. Hún hafði á síðustu
tvö hundruð blaðsíðum annars
bindis komist að ótryggð manns
síns og Línu vinnukonu. Það verð-
ur henni til ólýsanlegrar mæðu og
lesanda ekki síður. Hún ákveður
að flýja af hólmi og fara til Amer-
íku. En raunir hennar leysast ekki
að heldur, verður hún svo kvalin
af sjóveiki að hún verður að gefa
það upp á bátinn og snýr heim
eftir svona þrjú hundruð blaðsíð-
ur. Mikið er langlundargeð Jóns
með þessari eiginkonu sinni. En
þar með fellur ekki allt í Ijúfa löð,
nema rétt á milli og þarf lítið út af
að bera, syo að Anna Friðriksdótt-
ir reyni ekki að grípa til örþrifa-
ráða.
Við sögu koma flestir þeir hinir
sömu og í öðru bindi. En nokkrir
bætast þó við. Náungaumtalið og
kaffidrykkjan er sem fyrr fyrir-
ferðarmikill hluti. Og manni gæti
verið spurn: Er Guðrún að lýsa
þessari rómuðu sveitamenningu
okkar hér á árum áður? Var þá
ekki hærra á henni risið en svo að
allir nöguðu skóinn niður af öðr-
um. Og er þó höfundur ekki alltaf
sjálfum sér samkvæmur í þessu
efni. Það er til dæmis ekki hægt
annað en að skella upp úr á bls.
235 þegar nánast ekkert annað
hefur gerst en sjúkleika Önnu hef-
ur verið lýst, svo og hvernig hún
er rægð og rökkuð niður hvort sem
er á heimili sínu eða annars staðar
Guðrún frá Lundi
þegar Borghildur vinnukona segir
heldur hvöss við þá illgjörnu Dísu:
„Svo vil ég ekki heyra neitt nöldur
eða ómerkilegt tal um gesti, sem
koma hingað á heimilið. Það hefur
aldrei verið siður hér."
Eins og í fyrri bókunum og öðr-
um bókum Guðrúnar frá Lundi
lætur fólk sér ekki nægja að tala
eða breyta orðunum út úr sér, það
hnusar og frussar og hneggjar og
Gefðu baminu jólagjöf
sem tryggír öiyggi þess
KLIPPAN TUFFY öryggispúðinn er lagaður að líkama barnsins.
Púðinn hentar öllum börnum að 35 kg líkamsþyngd. Þessi
einfaldi og vel hannaði hlutur tryggir að bílbelti komi
baminu að fullu gagni.
\7lH2l5Z? Ri
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 ^ » '
ÚTSÖLUSTAÐIR: VELTIR og OLÍS
rausar og masar. Mikið leiðigjarnt
það.
Undir lokin er allt að falla í
ljúfa löð. Anna Friðriksdóttir sú
mikla sæmdarkona, hefur náð sér
af hugsýkinni. Jakob hefur náð í
þessa indælis eiginkonu hana EI-
ínu frá Ásólfsstöðum og einhverra
hluta vegna hefur Nautaflatar-
álögunum verið létt af þeim, þau
eiga sem sé þrjú sprelllifandi
börn. Lína sem hrasaði með
hreppstjóranum í öðru bindi, en
giftist Dodda, verður ekkja en
gamli aðdáandinn, sá væni Þórð-
ur, hefur tekið hana að sér og
byggt handa henni nýtt hús og er
henni betri en enginn, sá sóma-
maður. Fósturdóttirin Dísa er gift
í annarri sveit og veldur ekki frek-
ari bölvunum í bili. Eiginlega er
allt í þessu fina. Og var nú mál til
komið að ósköpunum linnti.
Mannskæð
gassprenging
Islamatud. Pakistan. 14. desember. AP.
ALLS LÉTU 16 manns lífið og 14
slösuðust, er gasleiðsla sprakk I
íbúðarhverfi í suðurhluta Pakistan í
dag, fimm hinna slösuðu voru taldir
í lífshættu. Þetta er versta slys af
þessu tagi sem orðið hefur í Pakist-
an.
Talsmaður stjórnarinnar í Pak-
istan sagði að trúlega hefði slysið
orðið vegna vanrækslu í kjölfarið
á fyrsta kuldakasti vetrarins, en
með því hefði gasnotkunin aukist
til mikilla muna i höfuðborginni
og annars staðar í norður- og
miðhlutum landsins.
llvernig breytast
bílar milli ára?
\jí
Skoda 130L, nýi meðlimurinn í Skoda-fjölskyldunni.
Ný gerð bætist í
Skoda-fjölskylduna
Af bifreiðum þeim sem Jöfur hf. selur verða þær breyt-
ingar helstar milli ára, að ný gerð af Skoda bætist við af
1985 árgerð, Skoda 130 L. Þá verður Dodge Daytona
fáanlegur með forþjöppu við
Chrysler LeBaron GTS.
Skoda 130 L verður með
stærri vél en aðrir fjölskyldu-
meðlimir, eða 1300 rúmsenti-
metra. Er hún fimm gíra og
62ja hestafla, en þar er um að
ræða fjögurra hestafla aukn-
ingu miðað við aðra Skoda.
Fimmta hraðastigið er yfirgír.
Jafnframt er sú nýjung að í
bílnum er tannstangarstýri,
einnig ný kúpling svo og ný gerð
af afturöxlum. Eru tveir hjöru-
liðir á hvorum öxli er halda af-
stöðu hjóla við götu láréttri. Þá
hefur bilið milli hjóla verið auk-
ið til að auka aksturseiginleika.
Skoda 130 L er sagður spar-
neytnari en aðrir bílar úr fjöl-
skyldunni, uppgefin benzín-
vél af 1985 árgerð og einnig
notkun er 5,7 lítrar á 100 km. Er
nýr blöndungur í Skoda 130 L
miðað við fyrri bíla. Þá hefur
verið dregið úr aksturshávaða í
farþegarými.
Skoda Rapid breytist í útliti
milli ára. Framendi bílsins lítur
nú eins út og á öðrum Skódum,
sem breyttust með 1984 árgerð-
inni. Jafnframt hafa verið sett
stefnuljós við hlið aðalljósanna.
Eins og að framan segir verð-
ur Dodge Daytona fáanlegur
með forþjöppu með 1985 árgerð-
inni, en auk þess hafa verið
gerðar útlitsbreytingar á bif-
reiðinni. Án forþjöppu fram-
leiðir vélin 99 hestöfl en 146
með forþjöppu.
Árgerð 1985 af Dodge Daytona Turbo.