Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Ný saga eftir Heinz G. Konsalik
ÍIT ER KOMIN hjá Iðunni ný nga
eftir Heinz G. Konsalik. Nefnst hún
Hákarlar um borð og er þriðja bók
böfundar á íslensku. Áður hefur Ið-
unn gefið út Hjartalskni mafíunnar
og Eyðimerkurlaekninn eftir sama
böfund.
Efni sögunnar er þannig kynnt
á kápubaki: „Ungi læknirinn, Bert
Wolff, ræðst til starfa á glæsilegu
skemmtiferðaskipi sem siglir um
Indlandshaf. Lífið virðist brosa
við honum þegar hann verður
ástfanginn af Evu, ungri og fag-
urri ekkju sem ferðast með skip-
inu. En hákarlar leynast vlðar en í
hafinu umhverfis skipið. Fjórir
harðsvíraðir glæpamenn eru með-
al farþeganna og hóta að sprengja
það upp. Og fleiri nýta sér upp-
lausnina um borð. I skjóli nætur-
innar læðast tiu hljóðlausir
skuggar upp í skipið. Eva og lækn-
irinn eru meðal fjögurra gísla sem
þeir taka með sér út í eyðimörk-
ina. í brennandi hitanum heyja
þessar fjórar mannverur vonlitla
baráttu við hungur, þorsta og
trylltar ástríður fjandmanna
sinna. Með hverjum degi dvínar
vonin um undankomu .... “
Hákarlar um borð er 205 bls.
Andrés Kristjánsson þýddi.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Brian Pilkington hannaði kápu.
þessar
standa
kímbum
rœtur vídsvegar um lan ,d
Bókin er harla íjölbreytt aö
eínt sjór aí fróðleik, en að
auki skemmtilestur.
Vertíðarsaga Steíóns Jónssonar á sér
ekki hliðstœðu í sjómannabókum.
Þekking hans á eíninu, stUI og tungutak
er hans einkaeign Tvímœlalaust •
raunsannasta bók sem sést heíur um
sjómannalíf á vertíð.
Rfyrir 20 árum síðan og
einum mánuði Ætla
O þúsund íslendingurr
i hafa komist til vits og ára ieiki
hvers vegna hún hlaut þessar /
avegi 178, Símat: 17802—
Selfoss:
Bókaverðir smærri
safna á námskeiði
SelfosNÍ, 12. <
DAGANA 7.-8. desember sl. gekkst Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir
námskeiói í rekstri smærri bókasafna í samráði við Samtök sveitarfélaga á
Suðurlandi. Námskeiðið var haldið á Selfossi undir stjórn Steingríms Jóns-
sonar yfirbókavarðar Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi.
Þátttakendur í námskeiðinu Á námskeiðinu voru tekin fyrir
voru víðs vegar af landinu, af Suð- atriði sem talin eru í 23. gr. reglu-
urlandi, úr Reykjavík og m.a. frá
Flateyri og Grundarfirði, alls 14
aðilar.
Tildrög þessa námskeið voru
þau að 2. júni sl. komu bókaverðir
í Árnessýslu saman til ársfundar
bókasafnanna í sýslunni. Á þeim
fundi kom fram mikill áhugi fyrir
námskeiði sem þessu þar sem far-
ið væri í ýmsa hagnýta þætti sem
lyti að bókasafnsrekstri. Fræðslu-
miðstöð sveitarfélaga skipulagði
síðan námskeiðið i samráði við
sveitarfélögin á Suðurlandi þar
sem áhugi reyndist nægur til að
halda slikt námskeið.
gerðar um almenningsbókasöfn og
hlutverk bókavarða, að fara með
fjárreiður safnanna, að sjá um
skráningu bóka þannig að almenn-
ingur eigi greiðan aðgang að upp-
lýsingum um bækur og önnur
gögn og að annast skýrslugerð um
safnið og standa sveitarstjórn skil
á þeim á tilskildum tíma.
Auk þess að sitja á skólabekk að
Eyrarvegi 15 á Seifossi fóru þátt-
takendur í skoðunarferðir í Egils-
búð, bóka- og minjasafn Þorláks-
hafnar.
Sig. Jóns.
Úr ævi og starfi
íslenzkra kvenna
BÓKRÚN hefur gefið út fyrsta bindi
„Úr ævi og starfi íslenzkra kvenna"
sem er fyrsti hluti erindaflokks, sem
Björg Einarsdóttir hefur flutt í út-
varpinu frá því í fyrrahaust.
í bókinni, sem er yfir 400 siður
með rösklega 200 myndum, er sagt
frá 21 konu, sem uppi voru á tima-
bilinu frá 1770 til 1982. Þessar
konur eru: Ástríður Guðmunds-
dóttir, Augusta Svendsen, Kristin
Vídalín Jacobsen, Jóhanna Egils-
dóttir, Kristín Bjarnadóttir, Ingi-
björg Johnson, Torfhildur Hólm,
Kristólína Kragh, Þórunn Jónas-
sen, Guðrún Björnsdóttir, Katrín
Magnússon, dr. Björg C. Þorláks-
son, Þóra Melsted, Þorbjörg
Sveinsdóttir, Guðný Jónsdóttir,
Ólafía Jóhannsdóttir, Ásthildur
Thorsteinsson, ólöf Sigurðardótt-
ir á Hlöðum, Thora Friðriksson,
Guðrún Borgfjörð og Stefania
Guðmundsdóttir.
Setning og umbrot bókarinnar
Björg Einarsdóttir.
var unnið í Leturval, filmun og
prentun í Grafik og Bókfell annað-
ist band. Elísabet Cochran hann-
aði útlit bókarinnar og Jóhannes
Long tók Ijósmyndir.
Saga af jóla-
sveinafjöl-
skyldunni
ísafoldarprentsmiðjan hf. hefur
geflð út barnabók, „Jólasveina-
fjölskyldan á Grýlubæ", eftir Guð-
rúnu Sveinsdóttur á Ormarsstöðum
á Fljótsdalsbéraði. f frétt frá útgef-
anda segir m.a.: „Þótt þetta sé fyrsta
bók Guðrúnar, er hún orðin talsvert
kunn af sögum sínura, sem lesnar
hafa verið í barnatímum útvarpsins
á undanförnum árum, hin siðasta I
morgunstundinni á liðnu sumri.
Sagan „Jólasveinafjölskyldan á
Grýlubæ" segir frá hinum þekktu
fjallabúum Grýlu og Leppalúða og
sonum þeirra, þrettán talsins,
jólasveinunum. Einnig kemur
dóttirin Leiðindaskjóða við sögu,
svo og jólakötturinn. Nokkrir að-
rir íbúar Tröllabyggðar ganga
Guðrún Sveinsdóttir
fram á sögusviðið, og þar er lífið
hreint ekki eins fábreytilegt og
halda mætti, síður en svo.“
Bókin er 103 bls. og mynd-
skreytt af Elinu Jóhannsdóttur.