Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
21
Þeir bræður Guðjón og Jónas hafa með aðstoð góðra manna gert upp gamla íbúðarhúsið í eyjunni, en það er um 200 ára gamalt og var upprunalega á
söltunarstöðinni á Reykjanesi.
Guðjón og Jónas Helgasynir, bændur (Æðey.
Reiphólsfjöll, í austri og norðri er
Snæfjallaströndin.
Á vesturströnd eyjunnar er
klettur nokkur sem Gulanef heit-
ir. Þar lét Ari Magnússon sýslu-
maður í ögri fleygja Spánverjum
fram af er þeir höfðu verið vegnir
1615, en um Spánverjavígin er
m.a. fjallað í Árbók FÍ 1949. Guð-
rún Lárusdóttir sem flutti úr eyj-
unni fyrir rúmu ári og býr nú á
Akureyri var spurð hvort íbúar
eyjarinnar hefðu orðið varir við
einhvern draugagang af þessum
sökum, hvort afturgengnir Spán-
verjar væru nokkuð á ferli í eyj-
unni.
„Ég hef aldrei heyrt talað um
það. Enda áttu þeir ekkert sökótt
við íbúana í Æðey. Ég hef aldrei
orðið vör við neitt óvenjulegt eða
yfirnáttúrulegt í eyjunni, það er
þó sagt að hér skammt frá bænum
sé jörðuð kona sem ekki fékk að
fara í vígða mold. Við höfum haft
þann sið að leggja blóm á leiðið
hennar, og ef eitthvað hefur átt að
hrófla við því hefur lágvaxin kona
komið fram í draumum og beðið
um að fá að vera í friði. Leiðið
hefur verið látið í friði og hún
komið aftur fram í draumi og
þakkað fyrir sig.“
Þeir Jónas og Guðjón eru með
um 270 kindur, kýr fyrir heimilið,
og nokkrar gyltur með grislingum.
Þá eru þeir með um 40 gæsir, taka
gæsaregg og láta þau í hreiður æð-
arfuglsins til útungunar. Stundum
hefur gæsahópurinn verið í kring-
um eitt hundrað. Gæsirnar kjaga
um á bæjarhlaðinu, er við komum
þangað aftur, við bregðum okkur
fyrst inn í gamla bæinn sem þeir
bræður hafa gert upp nú nýverið
en viðgerðinni er ekki enn lokið.
Gamla húsið er gert upp í upp-
runalegri mynd, þannig að hús-
verndunarmenn gætu verið stoltir
af. Húsið er um 200 ára gamalt en
það var upprunalega á söltunar-
stöðinni í Reykjanesi, en var flutt
til Æðeyjar og þjónaði sem íbúð-
arhús i langan aldur. íbúðarhúsið
sem þeir bræður búa í ásamt kon-
um sínum, þeim Katrínu Alexí-
usdóttur sem gift er Jónasi og
Guðrúnu systur hennar, eiginkonu
Guðjóns, er eitthvað yngra eða um
120 ára. Á bæjarhlaðinu er barna-
vagn með ungbarni, yngsta ibúan-
um í Æðey, barn þeirra Jónasar
og Katrinar sem fæddist i sumar.
Þau Jónas eiga tvö börn og Guðjón
og Guðrún eitt.
Það er skemmtilegt að koma
hingað dagstund, sérstaklega þeg-
ar veðurguðirnir eru i jafn góðu
skapi og þennan fallega haustdag.
En hvernig ætli það sé að búa hér
allt árið um kring? Þeir bræður
eru ánægðir, finnst þeir ekkert
einangraðir, enda kemur Djúpbát-
urinn hingað tvisvar i viku allt ár-
ið um kring. Samgöngur eru mun
betri en áður var; þegar Guðrún
Lárusdóttir móðir þeirra var að
alast upp i eyjunni kom póstbátur-
inn í mesta lagi einu sinni á hálfs-
mánaðarfresti, og auðvitað enginn
simi, sjónvarp eða útvarp sem
fæstir geta. án verið í dag. Vatn er
nú leitt úr landi, en áður var aðal-
lega notast við brunnvatn. „Það
var löng leið að sækja vatnið,“
segir Guðrún Lárusdóttir, „þetta
var mýrarvatn sem sigtaðist i
brunn, járnrikt og gult á lit og það
var alveg vonlaust að þvo úr því,
því þvotturinn varð allur gulur.
Þvi var alltaf þvegið úr rigningar-
vatni, og siðustu árin sem ég bjó i
eyjunni var eingöngu notast við
rigningarvatn. Brunnvatnið var
þó besta vatn sem ég hef smakkað,
ég byrjaði alltaf á því að fá mér
könnu af drykkjarvatni um leið og
ég kom til eyjarinnar."
Bændur í Æðey voru fyrrum út-
gerðarbændur, Guðrún segir að
tveir bátar hafi verið gerðir út, og
fiskurinn slægður og saltaður i
eýjunni, og þurrkaður endur fyrir
löngu eins og gamla þurrkhúsið
ber vitni um. Jónas og Guðjón eru
með bát, og hafa fengið eitthvað á
handfæri en segja sjóinn i kring
nú nær aldauðan.
Mylluhóll er rétt norðan við bæ-
inn og undir honum Akurbrekka.
Þar má enn sjá rústir af korn-
myllu, sem Guðrún segir hafa ver-
ið i notkun er hún var barn. „Ég
held að myllan hafi siðast verið
notuð 1922.“
Mesti annatíminn nú sem fyrr
er yfir sumarið en rólegra yfir
vetrartímann, bræðurnir eru með
vænan bókakost i hillum hjá sér
sem gefur fyrirheit um margar
góðar stundir. Áður en við höldum
aftur til baka með bátnum hans
Tryggva til Bolungarvikur, köst-
um við kveðju á þá bræður og fjöl-
skyldur þeirra, og kveðjum um
leið þessa ævintýraeyju.
Vesturströndin er klettótt og lítt vogskorin og ekki er laust við að þeirrar
tilfínningar gæti að í rákóttum steinunum megi lesa einhverja sérkennilega
sögu.
Æðeyjarklettur heitir suðvesturhorn eyjarinnar og þar er þessi viti sjófarend-
um til leiðbeiningar.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI .
Sálarfóður
Jólavörur
Fjölbreytt úrval af jólakortum
og jólapappír. Hjó okkur fóat
ódýrar og góóar jólagjafir.
Tónlist
Fjölbreytt úrval af innlendum og er-
lendum hljómplötum og snældum
Gospel tónlist af öllum geröum fyrir
eldri sem yngri. Tónlist viö jákvsöa
og uppörvandi texta.
Bækur
Islenskar og erlendar bœkur í úrvali.
Bibliur og handbækur. einnig viljum
við vekja athygli á ódýrum og góö-
um barnabókum. Hjá okkur fást
bækur viö flestra hæfi.
Myndbönd
Við leigjum út VHS-myndbönd,
kvikmyndir, barnaefni, fræöslu-
þætti, tónlistarþætti og margt ann-
aö áhugavert.
Gjafavara
Margs konar nælur og hálsmen
meö trúarlegum táknum (krossar,
fiskar o.fl.j. Veggskildir, plaköt,
myndir í barnaherbergl, kerti og
ilmkerti, krossar, mannakorn og
margt fteira.
Veriö velkomin,
hjá okkur eru næg bilastæöi.
Opiö á almennum verslunartima.
reglulega af
ölmm
fjöldanum!