Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÖAGUR 16. DESEMBER 1984
t
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Njálsgötu 49
áöur Laugavegí 17,
tést i Borgarspitalanum 8. desember. Jaröarförin fer fram frá
Dómkirkjunni þriöjudaginn 18. des kl. 1.30.
Fyrir hönd aöstandenda,
Óskar Jónsson, Gunnar Jónsson,
Theodór Óskarsson,
Arnheiöur Árnadóttir.
Þorsteinn G. Hjálmars■
son — Minningarorð
t
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
ÓLAFUR HELGI SIGURÐSSON
frá Fiskilæk,
Laufbrekku 9,
Kópavogi,
er lóst 3. þessar mánaöar veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju
þriöjudaginn 18. desember kl. 13.30. Bilferö veröur frá Stóra—
Lambhaga kl. 11.00 árdegis sama dag.
Lára Eggertsdóttir
og börn.
t
Eiginkona min, móöir, tengdamóöir og amma,
SELMA KALDALÓNS,
sem lést miövikudaginn 12. desember veröur jarösungin frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 20. desember kl. 3.
Jón Gunnlaugsson,
Karen Oktavfa Kaldalóns Jónsd.Jtenrik Friis,
Þorbjörg Kaldalóns Jónsdóttir, Edward Balys,
Elsa Kaldalóns Jónsdóttir,
Sólveig Kaldalóns Jónsdóttir,
Gunnlaugur Andreas Jónsson,
Sigvaldi Kaldalóns Jónsson,
Margrát Kaldalóns JÓnsdóttir,
Þórhallur Kaldalóns Jónsson,
Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson,
Jón Stephenson
og önnur barnabörn.
Árni Ólafsson,
Helge Grane Madsen,
Guörún H. Brynleifsdóttir,
Helga Kristinsdóttir,
Eæddur 20. september 1911
Dáinn 10. desember 1984
Mig langar með fáum orðum að
minnast þessa vinar míns sem
kveður nú þegar líður að jólum.
Þorsteinn fæddist í Reykjavík
20. september 1911. Ég kynntist
honum ekki fyrr en hann var orð-
inn 27 ára gamall, eða þegar ég
hóf að iðka sund hjá Glímufélag-
inu Ármanni árið 1938, þá 12 ára
gamall. Ég gerði mér ekki strax
grein fyrir hverjum öðlingi ég
kynntist þá, sú þekking kom jafnt
og þétt eftir því sem kynnin urðu
nánari og lengri.
Þorsteinn hóf ungur að iðka
sund og keppti hann í sundi og
sundknattleik í nokkur ár með
góðum árangri. Hann var kepp-
andi í sundknattleiksliði íslands á
Ólympíuleikunum í Berlín 1936,
þangað fór hann með opin augu og
opnum huga, þvi þar kynnti hann
sér helstu nýjungar í sundíþrótt-
inni eftir því sem tími leyfði.
Árið eftir hóf hann að þjálfa
sundfólk Ármanns í sundi og
sundknattleik og gerði hann það á
fjórða áratug, án þess að taka eyr-
isvirði fyrir alla þá vinnu og tíma
sem hann lét af hendi fyrir félagið
og má raunar segja að hann hafi
lifað fyrir þetta áhugamál sitt og
verið nkvæntur“ því.
Hið sigursæla sundknattleikslið
Ármanns þjálfaði hann einnig
með þeim myndarbrag að Ár-
menningar urðu íslands- og
Reykjavíkurmeistarar í 20 ár sam-
fleytt.
Eins og áður er sagt, var hann í
fyrsta landsliði íslands í sund-
knattleik og það var engin tilvilj-
un að hann var þjálfari og farar-
stjóri næsta landsliðs íslendinga í
sundknattleik sem sent var til
keppni erlendis árið 1953 eða 17
Hemlavokvi
Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum
akstri og meðferð ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir.
í því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð
fyrir viðhaldi og umhirðu allri. Þetta vita líka allir.
Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum.
Orginal hemlahlutir í allartegundir bifreiða
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ.
NOTIÐ ÞJÓNUSTU FAGMANNA, ÞAÐ TRYGGIR ÖRYGGIÐ.
LLINGp
Sérverslun með hemlahluti.
Skeífunni 11 Sími: 31340,82740,
árum síðar. Þetta segir sína sogu
um tryggð hans við sundíþróttina
og æskuna sem hann fórnaði
mestu af sínum frístundum, enda
veit ég að þeir foreldrar sem voru
svo lánsamir að eiga börn sín á
æfingum hjá Þorsteini töldu þau
óhult og um leið hjá góðum uppal-
anda.
Ég held ég láti hér staðar numið
þótt margt sé ósagt svo sem hver
Iistasmiður hann var, hve sam-
viskusamur hann var við hvaðeina
sem hann tók að sér og hagmæltur
var hann þótt eigi flíkaði hann
því.
Ég votta aðstandendum dýpstu
samúð.
Nú, þegar ég flyt vini mínum
hinstu kveðju, veit ég að ég mæli
fyrir munn allra þeirra mörgu
æskumanna sem hafa notið
kennslu hans og ljúfu samfylgdar
í leik og starfi.
Blessuð sé minning hans.
Einar H. Hjartarson
Síminn hringdi á þriðjudags-
morguninn. Mér var sagt að lækn-
ir Þorsteins Hjálmarssonar væri
að spyrja um mig. Þá vaknaði
strax grunur um hvert erindið var.
Sá grunur reyndist réttur. Mér
var tjáð að Þorsteinn hefði látist
kvöldið áður. Þetta kom ekki á
óvart, því að Þorsteinn hafði lagst
inn á sjúkrahús viku áður alvar-
lega veikur.
Ég kynntist Þorsteini ekki fyrr
en hann hóf störf sem dómvörður
hjá Hæstarétti síðla árs 1977.
Okkar kynni voru því stutt en góð.
Þorsteinn gegndi stafi sínu af
stakri vandvirkni og ávann sér
fljótt vináttu allra þeirra sem við
hann áttu skipti. Það var áberandi
í fari hans hve hann var öllum
velviljaður og vildi hann hvers
manns vanda leysa.
Þorsteinn var mjög vinsæll
maður og vinahópur hans spann-
aði yfir allar stéttir þjóðfélagsins.
Ef vantaði mann til lagfæringa
eða annarra starfa fyrir Hæsta-
rétt, hrást það aldrei að hann fann
rétta manninn.
Ég vil fyrir mig og allt starfslið
Hæstaréttar þakka Þorsteini sam-
starfið þessi ár. Ég tel mig geta
mælt fyrir munn okkar allra er ég
segi að hans sé sárlega saknað.
Ég votta systkinum Þorsteins,
öðrum ættingjum og vinum samúð
mína.
Genginn er góður drengur.
Björn Helgason
Kveðja frá sund-
deild Ármanns.
Hann Þorsteinn Hjálmarsson
vinur okkar, félagi og samherji er
látinn og mun mörgum þykja
skarð fyrir skildi, hann, sem hafði
starfað í rúma fjóra áratugi í fé-
lagi okkar sem keppnismaður og
þjálfari og löngum í fremstu víg-
línu. Ungur að árum gekk hann í
Glímufélagið Ármann og hóf
sundiðkun undir forustu og leið-
sögn Þórarins Magnússonar stofn-
anda sunddeildar félagsins og
Ólafs Pálssonar sundkennara.
Varð Þorsteinn brátt einn af
okkar bestu sundmönnum, einkum
í bringusundi og sundknattleik.
Snemma á þriðja tug aldarinnar
sigldi Þorsteinn til Danmerkur til
framhaldsnáms í iðngrein sinni,
húsgagnasmíði, og iðkaði þá jafn-
framt sund af kappi hjá hæfustu
þjálfurum Dana. Ér heim kom hóf
hann aftur þátttöku í sundkeppni
og setti þá íslandsmet í flestum
greinum bringusunds. Þá var
hann og í sundknattleiksliði því er
Island sendi á Ólympíuleikana í
Berlín árið 1936.
Árið 1937 tók hann við allri
þjálfun í sunddeild Ármanns af
Ólafi Pálssyni og lék auk þess í
t
Útför fööur mins, tengdafööur, afa og langafa,
BERGSTEINS HJÖRLEIFSSONAR,
Flókagötu 4, Hafnarfiröi,
fer fram frá Frikirkjunni i Hafnarfiröi þriöjudaginn 18. desember kl.
15.00.
Hjörleifur Bergsteinsson, Hafdfs Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
BJARNI ERLENDSSON
húsasmiöameistari,
Suöurgötu 49, Hafnarfirói,
sem andaöist 9. desember veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni,
Hafnarfirði, þriöjudaginn 18. desember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Júlfa Magnúsdóttir,
Gunnar E. Bjarnason, Bryndfs Björgvinsdóttir,
Magnús Bjarnason, Ólöf Haraldsdóttir,
Gróa Bjarnadóttir, Síguröur Guöjónsson,
Eygeröur Bjarnadóttir, Geir Þorsteinsson,
Sigriöur Bjarnadóttir, Magnús Magnússon,
Ásthildur Bjarnadóttir, Guömundur I. Guöjónsson,
Kristrún Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn,
BJÖRGVIN JÓNSSON,
Úthlfó,
Vestmannaeyjum,
sem andaöist i Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. desember veröur
jarösunginn frá Landakirkju Vestmannaeyjum þriöjudaginn 18.
desember kl. 14.00.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Jakobfna Siguröardóttir.