Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
7
Sigfús Jónsson
Hið íslenska
bókmenntafélag:
Bók um
íslenskan
sjávarútveg
HIÐ ÍSLENSKA bókmenntafé-
lag hefur gefíð út bók eftir Sig-
fús Jónsson sem heitir Sjávarút-
vegur íslendinga á tuttugustu
öld.
1 formála segir höfundur að að-
almarkmið með ritun bókarinnar
hafi verið að gefa yfirlit um þróun
sjávarútvegs á tuttugustu öld og
áhrif hans á efnahagslíf og byggð-
aþróun. Á blaðamannafundi
bókmenntafélagsins kom fram að
ekki hafi áður verið gefið út
hliðstætt rit um íslenskan sjávar-
útveg, en töldu sjálfsagt að nokkur
þekking á sjávarútvegi ætti að
vera hluti almennrar menntunar
hvers íslendings. Bókin á auk al-
menns fræðslugildis að vera nyt-
samleg í skólum og á námskeiðum,
þar sem miðlað er fróðleik um at-
vinnuvegi þjóðarinnar, þar á með-
al sjávarútveg.
Sigfús Jónsson, höfundur bókar-
innar, er landfræðingur að mennt
og lauk doktorsprófi frá þeirri
grein árið 1980. Og er ritið að
nokkru leyti samið upp úr dokt-
orsritgerð hans sem fjallaði um
sjávarútveg til 1940. Fjölmargar
stofnanir og fyrirtæki í sjávarút-
vegi studdu útgáfu þessa rits.
Flugumferðar-
stjórar semja:
„Sömdum af
okkur eins
og aðrir“
„VIÐ SÖMDUM af okkur eins
og aðrir — samningar okkar eru
mjög á sama veg og annarra fé-
laga, sem samið hafa að undan-
fornu,“ sagði Hjálmar Diego
Arnórsson, formaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra, í
samtali við Mbl. „Við sögðum
ekki upp samningum okkar í
haust eins og flestir aðrir og höf-
um ekkert grætt á því.“
í samningum flugumferðar-
stjóra felast, auk beinna kaup-
hækkana, launaflokkatilfærslur
og sérstakar hækkanir fyrir
starfsmenn með 20 ára og 35 ára
reynslu. „Það fengum við í skipt-
um fyrir kröfu okkar um bætt líf-
eyrisréttindi," sagði Hjálmar. „Þá
fengum við einnig inn í samninga
heimild til að taka launalaus leyfi
á vetrum, í allt að fimm mánuði,
til að geta notið endurmenntunar
og endurhæfingar.“ — í Félagi ísl.
flugumferðarstjóra eru um 85 fé-
lagar.
„Ætlun mín að kaupa skermi til að taka
við gervihnattasendingum á sjónvarpsefni“
— segir Skúli Pálsson, eigandi kapalsjónvarpskerfis á Olafsfirði
„ÞAÐ ER ætlun mín að festa
kaup á skermi sem tekur við
sendingum gervihnatta á sjón-
varpsefni og dreifa því síðan í
?egnum kapalkerfi til allra hér á
Hafsfirði sem þess óska. Nú þeg-
ar er hér til staðar kapalkerfi sem
allir Ólafsfírðingar geta haft not
af þannig að það eina sem þarf til
að taka við dagskrám erlendra
sjónvarpsstöðva er skermur og
rétturinn til að taka við myndefn-
inu,“ sagði Skúli Pálsson í sam-
tali við Morgunblaðið, en hann
sér um rekstur kapalkerfís á
Ólafsfírði.
Hann sagði Þó ennfremur að
á þessu stigi málsins væri lítið
hægt að segja hver framvinda
þessa máls yrði því móttöku-
skermurinn væri ekki enn kom-
in til landsins og ekki væri enn
ljóst hversu mikla möguleika
hann gæfi. Kvað hann skerminn
hafa verið í pöntun síðan í
haust og þegar hann kæmi yrði
hann prófaður af versluninni
Hljómbæ í Reykjavík, en af
henni myndi hann síðan kaupa
skerminn ef hann reyndist sem
skyldi.
„Það eru samt ljón í veginum,
því til að hægt verði að fram-
kvæma þetta þá verður að koma
til samþykkt nýrra útvarpslaga
sem heimila móttöku á sjón-
varpsefni sem sent er í gegnum
gervihnetti. Einnig verð ég að
fá leyfi bæjaryfirvalda hér á
staðnum til að koma skermin-
um upp og um það leyfi hefi ég
þegar sótt. Ég hefi orðið var við
mikinn áhuga bæjarbúa á þessu
máli og vonandi nær þetta mál
fljótt fram að ganga, og ég held
að ef allt gengur að óskum þá
geti farið svo að við hér á
Olafsfirði horfum á efni er-
lendra sjónvarpsstöðva fyrr en
varir,“ sagði Skúli Pálsson að
lokum.
SAGAN AF MANNINUM SEM ÞURFTIAD FARA UM
Einu sinni var maður á leið á ráðstefnu útí heimi.
Átti hann að kaupa Pex-fargjald? Átti hann að
fara í pakkaferð eða á sérstöku
„Weekend-Pex" fargjaldi? Gat hann
notað rautt apex eða grænt? Eða átti
hann ef til vill bara að fara á „normal"-
fargjaldi? Átti hann að fljúga í gegnum
London eða Kaupmannahöfn —
Amsterdam eða Dusseldorf? Með
Arnarflugi eða Flugleiðum?
Hann vissi það ekki. Enda engin furða.
En þá fór maðurinn inn á
Samvinnuferðir-Landsýn. Þar fékk hann á
einum stað hlutlausar upplýsingar um
þann ferðamáta sem kom honum best,—
aðstoð við að finna hagkvæmustu leiðina
í gegnum fargjaldafrumskóginn. Á
skrifstofu Samvinnuferða-Landsýnar eru þær hlið við hlið,
og jafn réttháar, bókunartölvurnar frá Arnarflugi og
Flugleiðum og þar er sérþjálfað starfsfólk — þjálfað til að
finna bestu leiðina hjá báðum flugfélögunum. Og þessa
þjónustu, sem e.t.v. getur sparað þér þúsundir, færðu án
nokkurs aukagjalds.
Góð sambönd okkar við útlenskar ferðaskrifstofur og
flugfélög gera okkur einnig kleyft að bjóða margskonar sérferðir og pakkaferðir sem annars stæðu þér
ekki til boða. Að auki bókum við svo fyrir þig hótelgistingu erlendis, bílaleigubíla, jafnvel aðgöngumiða
í leikhús og fleira — allt á augabragði.
Við finnum bestu leiðina fyrir þig.
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727