Morgunblaðið - 16.12.1984, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Darlan flotaforingi ásamt Eisenhower og Mark Clark.
De Gaulle
Eélagar úr stormsveit konungssinna, Camelots du Roi (sem merkir blaöasalar konungsins), ásamt
mönnum úr Solidarité Fancaise.
Charles Maurras, ritstjóri „L’Action Francais*
Erfingjar frönsku
krúnunnar þræta
Gaullistar héldu því fram að
Giraud væri sjálfur konungssinni
og einn ævisöguhöfundur de
Gaulles sagði að það gæfi til kyn-
na að Giraud hefði á einhvern hátt
verið viðriöinn morðið á Darlan,
en La Chapelle hefði verið óþægi-
legt vitni, sem bezt hefði verið að
losna við.
VIÐRIÐINN
MORÐIÐ?
Síðar kom í ljós að La Chapelle
var einn úr hópi fimm ungra
franskra samsærismanna, sem
voru andstæðingar nazista og höl-
luðust að konungssinnum. Samsæ-
rismennirnir létu hlutkesti ráða
því hverjum þeirra skyldi áskotn-
ast sá heiður að myrða Darlan
flotaforingja. La Chapelle vann
hlutkestið, gekk upp að Darlan og
skaut hann til bana.
Tilræðismaðurinn bjóst við því
að hann yrði þjóðhetja og að hon-
um yrði bjargað. Greifinn talaði
máli hans við Giraud og reyndi að
fá hann náðaðan, en án árangurs.
Tilræðismanninum til mikillar
furðu lét Giraud dæma hann og
taka hann af lífi innan tveggja
sólarhringa.
Morðinginn sagði í játningu
sinni, sem var haldið leyndri, að
hann hefði farið á morðstaðinn í
bifreið lögreglustjórans í Al-
geirsborg, d’Astier, sem var bróðir
sendimanns de Gaulles og skipu-
lagði samsærið. Morövopnið hafði
hann fengið hjá kaþólskum presti,
Cordier, sem stóð í nánum tengsl-
um við konungssinna.
Jafnvel i ítarlegri bók um morð-
ið eftir Peter Tomlins (1965) kem-
ur ekki fram lokasönnun um það
hverjir það voru sem stóðu á bak
við það, en hins vegar er það stað-
reynd að bæði gaullistar og kon-
ungssinnar tóku þátt í samsærinu.
Við húsleit á heimili d’Astier
lögreglustjóra fannst síða úr
dagblaði, sem átti að dreifa, og
þar bar mest á svohljóðandi yfir-
íýsingu frá greifanum:
„Samkvæmt áskorun frá þrem-
ur frönskum héruðum, sem ennþá
eru frjáls, og með stuðningi hers-
ins, tek ég öll völd i mínar hendur.
Frakkar! Ég er hafinn yfir
gamlar deilur og væringar. Ég
berst aðeins undir einu merki, því
sem tilheyrir sameiginlegu föður-
landi okkar, sem nú er í sárum og
hefur verið brotið á bak aftur.
Ég er hér til að sameina alla,
sem vinna að frelsi föðurlandsins
undan hernámsveldinu. Ég er per-
sónugervingur allrar franskrar at-
orku, sannrar franskrar föður-
landsástar, allra óska um fransk-
an mikilleik..."
Þessi áskorun var aldrei birt og
d’Astier var handtekinn. Morðið á
Darlan bjargaði framtíð sam-
skipta Bandamanna, en konungs-
sinnar græddu ekkert á því og
greifinn kom lítið sem ekkert við
sögu frelsunar Frakklands.
Éinu ári eftir aftöku La Chap-
elle var haldin minningarathöfn
við gröf hans. Þar mættu bak-
tjaldapaurar þeir úr röðum gaull-
ista og konungssinna, sem tóku
þátt í samsærinu um aö myrða
Darlan, þeirra á meðal d’Astier.
Daginn eftir sæmdi de Gaulle
d’Astier „frelsisorðunni” og Cor-
dier ábóta „stríðskrossinum"
(Croix de Guerre).
LEYFÐ BÚSETA
Einum mánuði eftir fali Parísar
í ágúst 1944 sendi greifinn fulltrúa
sinn, Napoleon prins, sem hafði
getið sér gott orð í andspyrnu-
hreyfingunni og var höfuðsmaður
í Alpasveitunum, á fund de Gaull-
es til þess að bjóða honum stuðn-
ing. En greifinn var hunzaður í
stríðslok, þrátt fyrir vinsamleg
orð de Gaulles í hans garð í strfðs-
endurminningum sínum.
Útlegðarlögin voru felld úr gildi
1950 og greifanum var leyfð bú-
seta í Frakklandi. Síðan hefur
hann aldrei dulið þá von sfna að
honum megi auðnast að verða
Hinrik VI af Frakklandi. Á þess-
um tíma hefur hann ritað nokkrar
bækur um stjórnmál og þjóðfé-
lagsmál.
Greifinn erfði mikil auðæfi og
hefur aukið þau til muna með
skynsamlegum fjárfestingum.
Hann hefur átt miklar fasteignir f
norðurhluta Parísar og landar-
eignir í Frakklandi, Belgiu, Mar-
okkó, Sikiley og Portúgal.
í París hefur greifinn haft
skrifstofu við hliðina á utanríkis-
ráðuneytinu f Quai d’Orsay, en að-
albækistöð hans hefur verið tutt-
ugu herbergja höll, „Le Coeur Vo-
lant“, í Louveciennes skammt frá
Versölum, sem hann keypti 1955.
Þar á hann mikið og gott bóka-
safn og situr daglega langtfmum
saman, les skýrslur, blöð, bækur
og tímarit hvaðanæva og kynnir
sér frönsk málefni.
SÉRFRÆÐINGAR
Vegna auðs síns hefur greifinn
getað haft marga sérfræðinga í
sinni þjónustu. Hann hefur
ferðazt mikið, en borizt litið á og
forðazt samkvæmislíf. Hann hefur
ekið sjálfur bfl sínum og yfirleitt
lifað eins og auðugur bankaeig-
andi fremur en þjóðhöfðingi.
Lengi vel hafði greifinn ekki
sjónvarp á heimili sínu í Louveci-
ennes, en ef hann langaði til að sjá
einhverja dagskrá ók hann inn í
þorpið, þar sem hann fékk að sjá
hana á heimili prestsins.
Hann neitaði eitt sinn að koma
fram í kvikmynd, sem var tekin f
höll f eigu fjölskyldu hans, og að
láta mynda sig á hestbaki. Hann
kvaðst ekki vilja veita fólki rangar
hugmyndir.
Börn hans eru tíu talsins og sex
þeirra giftust inn í konungsfjöl-
skyldur. Yngst eru tvfburarnir
Jacques prins og Michel prins, sem
eru 42 ára, Chantal prinsessa, 37
ára, og Thibaud prins, 35 ára.
Einn sona hans, Francois prins,
féll í Alsírstríðinu.
Börnin ólust að miklu leyti upp
á útlegðarheimili greifans f
Cintra, skammt frá Lissabon, og
hlutu strangt en vandað uppeldi
undir umsjón færustu kennara.
Fjölskyldan var mjög trúuð og Jó-
hannes páfi XXIII var góður vinur
greifans.
Prinsessurnar hafa varið mikl-
um tíma til góðgerðarstarfa fyrir
kaþólsku kirkjuna og elzta barnið,
ísabella prinsessa, var hjúkrun-
arkona í Frakklandi og New York
þar til hún giftist 1964.
Greifinn lagðist gegn því að
Anna dóttir hans og Carlos de
Bourbon drægju sig saman, þar
sem prinsinn gerði kröfu til „Kon-
ungsríkis hinna tveggja Sikil-
eyja“. En Anna, sem er 35 ára,
giftist prinsinum.
Þegar elzti sonur greifans, Hen-
ri, giftist hertogafrúnni af Wíirt-
emberg 1957 vakti bréf, sem de
Gaulle skrifaði greifanum, mikla
athygli, en þar sagði:
„Þetta hjónaband er sérhverjum
Frakka mikið fagnaðarefni, því að
líf fjölskyldu yðar er samgróið
sögu Frakklands, því að framtið
yðar, Hinriks prins hins unga og
fjölskyldu yðar, fer saman við
vonir Frakklands. Ég fagna þessu
hjónabandi sem miklum þjóðar-
viðburði." •
VIÐURKENNING
DE GAULLES
De Gaulle viðurkenndi greifann
sem höfuð konungsættarinnar og
þegar hann kom til valda lét hann
afnema stjórnarskrárákvæði, sem
meinaði greifanum að bjóða sig
fram i forsetakosningum. Margir
Frakkar þóttust vissir um að de
Gaulle væri konungssinni. Talið
var vfst að forsetinn hefði rætt
hugsanlega endurreisn konung-
dæmis við greifann, þótt ráðu-
nautar forsetans neituðu þvf að
slfk endurreisn kæmi til greina.
Rætt var f alvöru um þann
möguleika að greifinn yrði arftaki
de Gaulles og það virðist a.m.k.
einu sinni hafa komið til tals.
Ástæðan var sú þráhyggja de
Gaulles að tryggja staðfestu og
stöðúgleika i frönskum stjórnmál-
um, því að hann óttaðist hvað við
tæki þegar hann færi frá.
Flestir brostu aðeins að hug-
myndinni um endurreisn konung-
dæmisins og kærðu sig ekkert um
það. De Gaulle kynti sjálfur undir
sögurnar um að greifinn tæki við
með því að bjóða honum í hádegis-
verð í Elysée-höll, en kvað þær svo
niður þegar hann sagði: „Greifinn
yrði ágætur forseti Rauða kross-
ins.“
De Gaulle sendi greifann í sér-
stökum erindagerðum til við-
ræðna við arabaleiðtoga og greif-
inn var mikill aðdáandi forsetans.
Greifinn studdi de Gaulle í Alsfr-
deiiunni og skoraði á Frakka í Al-
sír að styðja forsetann.
Árið 1965 lýsti greifinn yfir
stuðningi við stefnu de Gaulles í
innanrfkis- og utanríkismálum f
mánaðarlegu fréttabréfi. Haft var
á orði að hann mundi lfklega
stjórna Frakklandi á Ifkan hátt og
de Gaulle, ef hann kæmist til
valda.
1 fréttabréfinu kom oft fram að
skoðanir greifans og de Gaulles
voru keimlfkar. Greifinn hrósaði
honum fyrir að efla ríkisvaldið,
koma á styrkri stjórn, aöskilja
greinar rfkisvaldsins og koma á
þjóðaratkvæði. Hins vegar gagn-
rýndi hann tilraunir stjórnmála-
flokka til að ná aftur áhrifum og
varaði við þeirri hættu að Frakkar
klofnuðu í tvær öfgafylkingar, til
hægri og vinstri.
KVIKMYND
Um þetta leyti talaði greifinn
inn á fréttamynd, sem var sýnd
með samþykki de Gaulles í öllum
kvikmyndahúsum Frakklands.
Hann var mjög ánægður með að
fá þetta tækifæri til að skýra
málstað sinn og afstöðu sfna og
hélt þvf fram að þar sem sýning
kvikmyndarinnar hefði ekki leitt
til óeirða sannaði það að þjóðin
væri ekki andsnúin endurreisn
konungdæmis.
Kvikmyndin sýndi að greifinn
hafði breytt um aðferð. Fram að
þeim tíma hafði hann ekki viljað
reka áróður fyrir sér opinberlega,
en rætt í kyrrþei við stjórnmála-
menn, verkalýðsleiðtoga og aðra
áhrifamenn. Eftir þetta reyndi
hann að vinna hylli venjulegra
borgara, a.m.k. meðan de Gaulle
var við völd.
„Staða mín í Frakklandi er ein-
stök,“ sagði hann í kvikmyndinni.
„Ég er hvorki hægrisinnaður né
vinstrisinnaður. Eg er hvorki
tengdur hagsmunum verkalýðsfé-
laga né vinnuveitenda. Það eru að-
eins allsherjarhagsmunir Frakk-
lands og velferð frönsku þjóðar-
innar, sem skipta mig máli. Kynni
mín af öllu þvf fólki, sem ég hef
hitt, hafa verið mér hvatning,
hverjar sem skoðanir þess eru á
þjóðmálum."
Greifinn er ekki kreddufastur,
margar skoðanir hans hafa ekki
þótt óskynsamlegar og hann hefur
verið virtur af stjórnmálaleiðtog-
um. En síðan de Gaulle féll frá
hefur hann haft tiltölulega hægt
um sig og áratuga barátta hans
fyrir þvf að að gera endurreisn
konungdæmis vinsæla í Frakk-
landi hefur engan árangur borið.
Hann hefur alltaf lagt áherzlu á
að hann sé ópólitfskur og muni
ekki berjast til valda með venju-
legum hætti heldur biða þess aö
þjóðin leiti til hans til að varð-
veita einingu. Hann hefur sagt að
hann muni aðeins taka kjöri
meirihluta þjóðarinnar.
En Fimmta lýðveldið stendur
traustum fótum, jafnvel traustari
en de Gaulle þorði að vona. Bar-
átta greifans hefur verið vonlaus
frá upphafi og ólíklegt er að hann
eða afkomendur hans setjist f há-
sætið. Lfkurnar á endurreisn kon-
ungdæmisins dvína stöðugt og
deilur þær sem komnar eru upp i
fjölskyldu greifans veikja stöðu
konungssinna enn meir.
gb. Sunkvæmt Obaerver og fíeirí
heimildum.