Morgunblaðið - 16.12.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
43 .
stærðfræði, mál, sögu eða hvað-
eina.
Tölvuleikir
Bn það er ekki aðeins þáttur
tölvunnar í menntakerfinu sem
gerir unglingana betur i stakk
búna til að tileinka sér hina nýju
tækni. Ekki öllum börnum þykir
skemmtilegt að læra, eins og
kennarar og uppalendur vita
manna best. En það er skemmti-
legt að leika sér, og þegar tölvur
eru annars vegar er hægt að slá
tvær flugur í einu höggi, leika sér
og læra jafnframt.
Tölvuleikir eru til í margvísleg-
um stærðum og útgáfum. í
Reykjavík eru sjö eða átta spila-
salir með stórum leiktölvum, sem
eru eins konar eðlilegt áframhald
af kúluspilunum gömlu. í slíkum
sal er þriðja heimsstyrjöldin háð í
tilraunaskyni, skothljóð og
sprengingar kveða við úr öllum
hornum, og leiftur og glæringar
frá skermunum lýsa upp annars
myrkvaðan salinn. Þetta er „act-
ion“ og það er það sem ungling-
arnir vilja.
Það er hægt að fá keyptar í búð-
um smærri útgáfur af þessum
„action“-leikjum, en þeir sem eiga
tölvur geta látið sér nægja að
kaupa forrit, og geta þá dundað
sér við að skjóta niður geimflaug-
ar á sjónvarpsskerminum heima
hjá sér.
Það er enginn vafi á því að
tölvuleikirnir vekja áhuga ungl-
inganna á tölvunni sem slíkri, og
við getum búist við því að „tölvu-
hausar" framtíðarinnar hafi flest-
ir hverjir byrjað feril sinn á því að
skjóta niður óvinaeldflaugar með
leisergeisla. Það er ekki verri
byrjun en hver önnur.
GPA
Morgunbladið/Júlíus
Guðmundur Haukur Magnason innan um hluta af tölvubúnaði sínum.
nokkra fimmkallana i því að eiga
þínar eigin tölvur. En eitthvað kosta
nú öll þessi tæki; er þetta ekki dýrt
áhugamál?
„Það þarf alls ekki að vera þaö. í
rauninni kostar þaö ekki mikið
meira en tíu þúsund krónur að
koma sér upp viðunandi græjum.
Á flestum heimilum er til sjón-
varp og segulbandstæki, sem hægt
er að nota, og þá þarf ekki að
kaupa annað en sjálfa tölvuna,
stýripinna og nokkra leiki. Ódýr-
ustu tölvurnar eru á sex til sjö
þúsund, svo það er augljóslega
ekkert æðisgengið fyrirtæki að
byrja á þessu.“
— Þú átt sjálfur fjórar tölvur,
ertu að hugsa um að stækka enn við
Þig?
„Mig vantar ennþá diskettu og
prentara. Ég stefni að því að fá
mér þetta tvennt hið fyrsta."
— Hvar hefurðu lært að með-
höndla tölvur. Sóttirðu námskeið?
„Ég fór í nokkra tíma þegar ég
var að byrja, en annars hef ég lært
mest af því að skrifa inn á tölvuna
forrit úr tölvublöðum og pæla síð-
an í þeim. Það er hægt að læra
þetta allt saman af tölvublöðum."
— Hvað með félaga þína, hafa
þeir allir ódrepandi áhuga á tölvum
eins og þú?
„Allir mínir félagar eru á kafi í
þessu, og ég held að flestir krakk-
ar hafi mikinn áhuga á tölvum.
Þess vegna finnst mér skítt hvað
skólarnir gera lítið af því að nota
tölvurnar sem kennslutæki. Tölv-
urnar eru frábærir kennarar.
Sjálfur tel ég mig til dæmis hafa
lært mikið í ensku af því að glíma
við ævintýraleikina og pæla i
gegnum tölvublöð.“
— Hvað eyðirðu miklum tíma yfir
tölvunni og því sem henni viðkem-
ur?
„Undanfarna daga hef ég legið
yfir bókhaldsforritinu frá morgni
til kvölds, en almennt, þegar mað-
ur er að leika sér? — Ja, satt að
segja fer eiginlega allur dagurinn
í þetta. Það liggur við að stýri-
pinninn sé orðinn gróinn við lóf-
ann.“
ÁVÖXTUNSf^j/
KAUPHALLARVIÐSKIPTI
Leitið ekki langt
yfir skammt!
Sparifjáreigendur
Fjárvarsla Ávöxtunar sf.
er rétta leiðin
Verðtryggð
veðskuldabréf
-Óverðtryggð —
veðskuldabréf
Ár
1.
2
3
4
5
Avk
7,00
8,00
9,00
10,00
11,00
20%
74.8
66,1
59,2
53.8
49,5
28%
79,8
72,5
66,7
62,0
58,2
Ar Avk 6% 7% 9% 10%
1. 12,00 96,0 98,0 )
2. 12,50 93,1 96,3
3.13,00 91,5 95,8
4. 13,50 88,6 93,9
5. 14,00 85,7 91,9
6.14,50 82,8 89,7
7.15,00 79,8 87,5
8.15,50 76,9 85,2
9.16,00 74,1 82,8
10.16,50 71,3 80,5 J
Óskum eftir spariskírteinum ríkissjóðs til
sölu. Verðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu.
óverðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu.
Ávöxtun ávaxtar fé þitt betur
ÁVÖXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - SÍMI 28815 OPIÐ FRÁ10 - 17
Bladburðarfólk
óskast!
■ Austurbær
Lindargata 40—63 Bergstaðastræti 1—57.
Grettisgata 37—98 Hverfisgata 63—120.
Miöbær I
I