Morgunblaðið - 16.12.1984, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Minnisverð tíðindi
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Steinar J. Lúðvíksson: ÁRBÓK ÍS-
LANDS 1983. 341 bls. Bókaútg. Örn
og Örlygur hf. Reykjavík, 1984.
Sá mikli annálaritari þessara
ára, Steinar J. Lúðvíksson, hefur
tekið saman og sent frá sér sögu
ársins í fyrra — með sama heiti og
útliti og fyrri árbækur. Þetta er að
vanda ríkulega myndskreytt bók
og hefur Gunnar V. Andrésson
annast þá hlið málsins. Hér eru
helstu atburðir ársins 1983 raktir
skipulega og lið fyrir lið og mynd-
efnið látið undirstrika mikilvægi
þeirra. Sem að líkum lætur er
byrjað á stjórnmálunum.
Með fyrstu kaflafyrirsögninni:
Alþingi — stjórnmál, fylgir hálf-
síðumynd af níu þingkonum, þeim
sem kosnar voru til setu á Alþingi
í síðustu kosningum. Fríður flokk-
ur! Vonum að þær eigi einnig ráð
undir rifi hverju. Nokkru síðar
gefur að líta mynd af tveim sigur-
glöðum stjórnmálamönnum: ný-
kjörnum formanni og varafor-
manni Sjálfstæðisflokksins. Póli-
tísku myndirnar í þessari árbók
eru margar líflegar. Þær sýna að
þar skiptast á skin og skúrir,
stundum er brosað, jafnvel hlegið,
en þess á milli breiðist alvaran yf-
ir ásjónuna, og ekki örgrannt að
hún virðist stöku sinnum vonleysi
blandin, heilmikið drama! Stjórn-
málayfirlit Steinars er annars all-
nákvæmt og engu sleppt sem máli
skiptir held ég. Af yfirlitinu má
glöggt ráða að árið hefur verið í
tölu hinna markverðari á vett-
vangi landsmálanna, þótt'skoðan-
ir séu vafalaust skiptar um hvort
stefnt hafi til góðs eður eigi.
Á bókmennta- og listasviðinu
sýnist mér reyndin hafa orðið
önnur, enda þótt kaflinn um þau
málefni fylli heilar fjörutíu blað-
síður. Að vísu komu út margar
bækur á árinu — allt of margar,
sögðu sumir; og áttu þá við hvort
tveggja: að markaðurinn hefði
ekki tekið við slíkum bókafjölda
og í öðru lagi hefðu gæðin alls ekki
staðið í neinu samræmi við magn-
ið.
Dóms- og sakamálakaflinn er
ýtarlegur að vanda. En þeim mál-
um eru gerð hér gleggri skil en
annars staðar er völ á í einu og
sama riti. Þótt blöðin fjalli jafnan
mikið um sakamál er sú umfjöllun
jafnan brotakennd og — þegar
öllu er á botninn hvolft — villandi.
Virðist mér Steinar hafa lagt
geysimikla vinnu í að gera kafia
þennan svo úr garði að ekki sé að-
eins skýrt hlutlægt frá málum
heldur líka svo ljóst og aðgengi-
lega að hver, sem les, geti áttað sig
sem best á raunverulegum mála-
vöxtum.
Efnahags- og atvinnumálum
eru gerð hér viðhlítandi skil. í
fyrra áraði illa í landbúnaði vegna
kulda, t.d. varð kartöfluuppskeran
»fádæma léleg*. Refaskinnafram-
leiðslan var þar á móti í örum
vexti. Varla telst til tíðinda að
eitthvað brann af hraðfrystihús-
um, það er eins og einhver álög
hvíli á þeim annars bráðnauðsyn-
legu þjóðþrifafyrirtækjum.
Menn og málefni heitir langur
kafli. Þar er meðal annars minnst
látinna á árinu. Og þeir voru
býsna margir sem lengi höfðu sett
svip á þjóðlífið en söfnuðust til
feðra sinna þetta árið. Þeirra á
meðal voru skáldin Kristmann
Guðmundsson og Tómas Guð-
mundsson. Hvor um sig var í
fremstu röð á sínu sviði, ljóðskáld-
ið Tómas og skáldsagnahöfundur-
inn Kristmann. Að öðru leyti varð
lífshlaup þeirra með ólíku móti.
Tómas öðlaðist snemma fádæma
vinsældir. Og óhætt mun að segja
að hann hafi haldið þeim til
hinstu stundar þótt allt önnur
ljóðlistarviðhorf væru þá löngu
orðin ríkjandi og unga kynslóðin
hefði þá skipað ljóðum hans á
bekk með öðrum klassískum
bókmenntum sem teljast til þess
sem er búið og gert og óumdeilt.
Nálin á vinsældaioftvog Krist-
manns hvikaði á hinn bóginn á
milli hæða og lægða svo varla
munu dæmi til annars eins.
Fyrir bragðið hygg ég að þjóðin
hafi naumst enn áttað sig á hvers
konar verk Kristmann lét eftir sig
og hvar beri að skipa þeim á bekk.
Steinar J. Lúðvíksson
Það var eins og hver önnur ólukka
örlaganna að skáldskapur Krist-
manns Guðmundssonar skyldi á
efri árum hans dragast inn í póii-
tískar umræður af verra taginu.
Það held ég að þau hafi allra síst
átt skilið. Og sjálfur stóð Krist-
mann illa berskjaldaður frammi
fyrir þess háttar uppákomu.
Athyglisvert er að bæði þessi
skáld, Tómas og Kristmann,
sömdu bestu verk sín um 1930 —
fyrir rösklega hálfri öld. Það var
þeirra tími.
Meðal annarra þekktra borgara,
sem létust á árinu, var Agnar
Bogason blaðamaður. Hversu
lengi munum við eftir Mánudags-
blaðinu hans? Hér er minnt á að
hann hafi stofnað það 1948 og »var
ritstjóri þess og útgefandi til
dauðadags.« Agnar þótti í fyrst-
unni nokkuð harður blaðamaður,
og víst fór hann ómjúkum höndum
um það sem hann taldi miður fara.
En þannig var blaðamennskan
forðum; hún er orðin silkihanska-
vinna nú hjá því sem maður sér að
verið hefur í gamla daga. Þó virð-
ist sem menn hafi lítt — þá sem
nú — óttast það sem stóð á prenti
en huggað sig við að á þeim vett-
vanginum getur hið sama gerst
sem í Valhöll: Menn falla, en rísa
svo á fætur næsta dag og halda
baráttunni áfram.
Margt fleira er í þessari ágætu
bók, t.d. viðamikil! kafli um
íþróttir (sem undirrituðum gengur
fremur báglega að ná á bylgju-
lengd sína), bjarganir og slysfarir,
kjaramál og fleira.
Sem fyrr er bókin afarásjáleg
útlits. T.d. hefur tekist mjög vel
með myndprentun, en myndprent-
unin felur í sér langmestu fram-
farir sem orðið hafa hjá íslenskum
prentiðnaði nú á seinni árum. Er
ég smeykur um að þá verði marg-
ar bækur frá því herrans ári 1983
fallnar í varanlega gleymsku þeg-
ar ekki verður lengur munað eftir
þessari veglegu og skilmerkilegu
árbók. Raunar gegnir sama máli
um hana og vínið og hunangskök-
urnar: hún verður meira virði með
aldrinum.
ISúerkáttí
jóiatrésskemmu)-.
Það verður sannkölluð fjölskylduhátíð í
jólatrésskemmunni okkar við Miklatorg í dag.
Fjölskyldan úr fjöllunum, Grýla, Leppalúði og strákarnir
þeirra, koma í jólatrésskemmuna kl. 4.30.
Það er heitt á könnunni handa mömmu og pabba og
Egils appelsín handa ykkur, krakkar.
Jólasveinarnir leika við hvurn sinn fingurog finna rétta
jólatréð handa þér.
Normannsþinur
á sama verði
og í fyrra.
70-100 cmkr. 685
101-125 cmkr. 835
126-150 cm kr. 1.010
151-175 cm kr. 1.275
176-200 cm kr. 1.875
201-250 cm kr. 2.175
Opið öll kvöld til
kl. 22.00.
Full skenuna
af jólatojam
íslensk jólatré:
Reuðgreni og Fura
Dönsk jólatré:
Normannsgreni, Nobilis og Fura
VAW
VIÐ MIKLATORG