Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 4

Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985 Skákmótinu í Eyjum lýkur í kvöld: Lein keppir við Helga og Jóhann um efsta sætið ÞRETTÁNDA og síðasta umferð al- þjóðlega skákmótsins í Vestmanna- eyjum verður tefld í dag. Lein var efstur eftir tólftu umferð í gærkvöld með 9/i vinning. Hann mun því væntanlega keppa um efsta sætið við þá Helga Ólafsson og Jóhann Hjart- Bogdan Wodiczko látinn BOGDAN Wodiczko, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar íslands á árun- um 1965—68, lést í Krakow í Pól- landi 12. maí sl. Wodiczko var kom- inn á eftirlaun en síðustu ár starfs- ævinnar kenndi hann hljómsveitar- stjórum við tónlistarháskólann í Varsjá. Wodiczko var tvígiftur og fráskilinn, og lætur eftir sig tvo syni. Bogdan Wodiczko fæddist 5. júlí 1911 í Varsjá. Hann stundaði nám við marga af bestu tónlistarskól- um landsins. í seinni heimstyrj- öldinni var hann tekinn til fanga og sat í fangabúðum nazista í Þýskalandi. Eftir stríðið kenndi arson. Helgi var í gærkvöld með HV2 vinning og Jóhann með IVi vinning og unna biðskák. Úrslit í 12. umferð voru þau, að Jón L. Árnason vann Tisdall, Helgi vann Ásgeir Þ. Árnason og Lein vann Eyjapeyjann Björn Karlssoh. Short og Guðmundur Sigurjónsson gerðu jafntefli. Þrjár skákir fóru í bið: skák Ingv- ars og Jóhanns, og er Jóhann tal- inn vera með unnið tafl, skák Plasketts og Braga Kristjánssonar og skák Karls og Lombardys og er Karl talinn vera með unnið tafl. Þessar skákir voru tefldar í gærkvöld og átti þá einnig að ljúka biöskák þeirra Shorts og Ingvars úr miðju mótinu. Staðan í mótinu að öðru leyti en því sem að framan greinir er sú, að Guðmundur og Jón L. eru með 7 ’/fe vinning hvor, Karl og Short eru með 6 'k vinning og unnar biðskákir, og Lombardy er með 6 vinninga. Morgunblaðið/Ulfar Agústsson Nýkjörin stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna: Þórunn Gestsdóttir fremst til vinstri og við blið hennar er Anna Borg, framkvæmdastjóri LS. Landsþing sjálfstæðiskvenna: Oflugt starf framundan hjá félög- um sjálfstæðiskvenna um allt land — segir Þórunn Gestsdóttir, nýkjörinn formaður Á landsþingi sjálfstæðiskvenna, sem haldið var á ísafirði um síðustu helgi var Þórunn Gestsdóttir, Reykjavík, kjörin formaður landssambands sjálf- stæðiskvenna og tekur hún við af fráfarandi formanni, Halldóru Rafnar, Reykjavík, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. „Ég veit ekki hversu góður kvæmdastjórn um þrjá og sitja í Bogdan Wodiczko hann við ýmsa tónlistarháskóla, var hljómsveitarstjóri, þ.á m. að- alstjórnandi við Ríkisóperuna í Prag. Hann ferðaðist vítt og breytt og var stjórnandi í flestum löndum Evrópu. Wodiczko kom í fyrsta skipti til íslands árið 1960 og stjórnaði einum tónleikum Sin- fóníuhljómsveitarinnar, en árið 1965 gerðist hann aðalstjórnandi hennar og var það fram til ársins 1968. Wodiczko var mjög annt um íslenskt tónlistarlíf, og stuðlaði mjög að framgangi hljómsveitar- innar sem var í örri þróun á þess- um árum. sporgöngumaður ég er en mér er ijúft að ganga í spor þeirra mætu kvenna, sem hafa verið á undan mér og um leið vona ég að mér takist að marka mín eigin spor,“ sagði Þórunn. „Með mér í stjórn- inni er valinn hópur og ekki vafa- mál að eftir svona gott þing er öflugt starf framundan hjá félög- um sjálfstæðiskvenna um allt land því ég trúi ekki öðru en að svona þing smiti út frá sér. Við í stjórn- inni vonumst til að okkar framlag verði til að efla pólitíska vitund sjálfstæðiskvenna, landi og þjóð til góðs." í tíð fráfarandi stjórnar var tekin upp sú nýbreytni að skipa fimm manna framkvæmdastjórn, sem í áttu sæti hluti af fjórtán manna aðalstjórn. Þetta fyrir- komulag gafst vel, sem sést á þvi að haldnir voru rúmlega 30 fundir í framkvæmdastjórn á síðasta kjörtímabili. Nýkjörna stjórnin hefur ákveðið að fjölga í fram- henni á þessu kjörtímabili þær Þórunn Gestsdóttir, formaður, Reykjavík, Erna Mathiesen, vara- formaður, Hafnarfirði, Ragn- heiður Ólafsdóttir, ritari, Akran- esi, og var hún einnig kjörin rit- stjóri fréttabréfs landsambands- ins, Anna Pálsdóttir, gjaldkeri, Reykjavík, Bergþóra Grétarsdótt- ir, Reykjavík, Steinunn Ásthildur Sigurðardóttir, Kópavogi, Vigdís Pálsdóttir, Keflavík, og Hulda Guðbjörnsdóttir, Selfossi. Aðrar í aðalstjórn eru Birna Guðjónsdótt- ir, Sauðárkróki, Jósefína Gísla- dóttir, ísafirði, Svanhildur Björgvinsdóttir, Dalvík, Svava Gunnlaugsdóttir, Borgarnesi, Þór- unn Sigurbjörnsdóttir, Akureyri, og Hanna Birna Jóhannsdóttir, Vestmannaeyjum. Frummælendur um aðalmál þingsins, „Nútímakonan, heima og heiman", voru þær Esther Guð- mundsdóttir, Reykjavík, sem tal- aði um konur í forystu, Ragnhild- ur Ólafsdóttir, Akranesi, sem tal- aði um rétt heimavinnandi kvenna, Oddrún Kristjánsdóttir, Reykjavík, sem talaði um konur og vinnumarkaðinn og Geirþrúður Charlesdóttir, ísafirði, sem talaði um menntunarmöguleika kvenna. Að sögn Þórunnar Gestsdóttur kom fram í erindunum og þeim umræðum, sem spunnust á eftir, að þrátt fyrir baráttu kvenna á undanförnum árum fyrir sínum málefnum, þá sé það í raun hænu- fet, sem hefur verið stigið og nú í lok kvennaáratugar eru enn mikil verkefni framundan. Meginverk- efni landsambandsins verður að halda til streitu baráttunni fyrir auknu jafnrétti hvar sem er í þjóðfélaginu. Erindin sem flutt voru á ráðstefnunni verða gefin út í „Þingtíðindum" síðar og þar verða einnig raktir aðrir viðburðir þingsins. Landsþingið, sem haldið er á tveggja ára fresti, sóttu 90 sjálf- stæðiskonur af öllu landinu og stóð það í þrjá daga að þessu sinni. Þetta í fyrsta skipti, sem þingið er haldið er utan Faxaflóasvæðisins og sá sjálfstæðiskvennafélagið á ísafirði um allan undirbúning. Formaður þess er Sigrún Hall- dórsdóttir. Sveitarfélög íhuga inn- lenda lántöku með útgáfu skuldabréfa ÍSLENSK sveitarfélög íhuga nú möguleika á því að afla lánsfjár inn- anlands með útgáfu skuldabréfa. Þetta kom fram á fundi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga á Þingvöllum í gær. Þar flutti Þor- Tómas Árnason seðlabankastjóri: „Grundvallarmunur á tillögu og lagasetningu EKKERT liggur fyrir um að framkvæmdum við Seðlabankahúsið verði hætt þrátt fyrir tillögu þá sem samþykkt var í efri deild Alþingis nú fyrir helgi. Tillagan gerir ráð fyrir að Aiþingi feli ríkisstjórninni að athuga hvernig æskilegast sé að nýta svonefnt Seðlabankahús og þá sérstaklega hvort það hentaði Stjórnarráði íslands. Gerði tillagan einnig ráð fyrir því að ósamn- ingsbundnar framkvæmdir væru stöðvaðar, unz ákveðið hefði verið hvernig húsið skyldi nýtt. Tómas Árnason seðlabanka- stjóri var í gær spurður hvort for- svarsmenn Seðlabankans litu þannig á að Alþingi gæti sagt þeim fyrir verkum, varðandi nýt- ingu á Seðlabankahúsinu: „Al- þingi getur auðvitað ekki sagt okkur fyrir verkum, en Alþingi getur sett lög, sem við verðum að sjálfsögðu að hlýta. Hérna er ekki um að ræða lagasetningu, heldur tillögu til þingsályktunar. Á þessu tvennu er auðvitað grundvallar- munur." Tómas sagðist ekki vita betur en búið væri að fullskipa í bygging- una, sem ætti eftir að verða vinnu- staður 225 til 230 manna. í Seðla- bankanum störfuðu um 130 manns. Auk þess flytti Reikni- stofa bankanna í Seðlabankahús- ið, þar sem um 70 manns starfa. Þar að auki ætti Þjóðhagsstofnun að flytja þarna inn, þar sem um 25 manns störfuðu. Stefán Þórarinsson, starfs- mannastjóri Seðlabankans, sagð- ist ekki sjá hvernig þetta hús ætti að nýtast annarri starfsemi en starfsemi Seðlabankans. Húsið væri sérhannað fyrir þá starfsemi, og dýrustu verkþættirnir eins og fjárgeymslur og húsnæði sem ætti að hýsa alla starfsemi í kringum það, væru einmitt vegna starfsemi bankans. „Lokaáfangi byggingar- innar er raunverulega hafinn," sagði Stefán, „og það er stefnt að því að Reiknistofa bankanna flytji inn 1. apríl á næsta ári og starf- semi Seðlabankans og Þjóðhags- stofnunar flytjist í nýju bygging- una um áramótin eftir hálft annað ár.“ Að sögn Baldurs Jóhannssonar, byggingastjóra, starfa nú um 70 manns við Seðlabankabygginguna. Nú er unnið að múrverki, pípu- lögnum, raflögnum, málningu, lyftuuppsetningu og lagningu loftræstikerfis. Auk þess er verið að leggja lokahönd á frágang ým- islegs utandyra, svo sem bifreiða- plön og þök. steinn Guðnason viðskiptafræð- ingur ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir stöðunni á verðbréfa- markaðnum hérlendis og þróun síðustu ára. Lýsti hann í stórum dráttum helstu leiðum sem til greina kæmu fyrir sveitarfélögin í þessu máli og hvernig best væri að standa að slíkri fjármögnun ef til kæmi. Hann benti á að reynsla undanfarinna ára sýndi að inn- lend lán hafi reynst hagstæðari en erlend. Taldi hann þá reynslu, sem þegar er komin á svona lántökur hérlendis vera það góða að sveit- arfélögin ættu tvímælalaust að at- huga þennan kost vel og marka sér ákveðna stefnu í þessu máli á næstu mánuðum. Björn Friðfinnsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði að erlend lán, einkum í doll- urum, hefðu á undanförnum árum reynst ýmsum sveitarfélögum, sem staðið hefðu í miklum fram- kvæmdum, afar þungur baggi. Nefndi hann Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og Hitaveitu Ak- ureyrar í þessu sambandi. Því væru menn nú að leita nýrra og hagkvæmari leiða til fjáröflunar og hefði sambandið fengið Þor- stein til að kynna sveitarstjórnar- mönnum þessa leið. „Enn sem komið er hefur þó ekkert sveitar- félag ákveðið að ráðast í slíka skuldabréfaútgáfu, svo mér sé kunnugt um, en þessi mál eru í athugun," sagði Björn Friðfinns- son.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.