Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985 67 Ferðamannatíminn hafinn á Selfossi FERÐAMANNATÍMABILIÐ svokallaða yfir sumarmánuðina cr hafið hér á Selfossi eins og annars staðar. Ferðamenn með bakpoka sjást á götum og í ferðamannaverslunum raá heyra framandi tungur. Þeir ferðamenn sem hafa viðdvöl á Selfossi nýta sér það flestir að staðurinn er vel í sveit settur með það fyrir augum að fara héðan í dagsferðir til ferða- mannastaða við hálendisbrún- ina. Það eru einkum útlendingar sem koma við á Selfossi þó auð- vitað séu undantekningar þar á. Margir ferðamannanna eru á bílaleigubílum en flestir nýta sér áætlunarferðir Sérleyfisbíla Selfoss frá Reykjavík að Selfossi Selfoss: Margir vilja gista í svefn- pokaplássi Nokkuð um bókanir segir Díana Óskars- dóttir hjá Gistiþjónust- unni ÞEIR FERÐAMENN eru margir sem kjósa að haga ferðum sínum þannig að vera sjálfum sér nógir um flest og leita eftir aðastöðu þar sem þeir geta haft sína hentisemi. í Gagnfræðaskólanum á Selfossi er rekin ferðamannaþjónusta af þessu tagi. Það er Gistiþjónustan á Sel- fossi sem býður gestum upp á svefnpokapláss í Gagnfræða- skólanum. í skólastofunum eru rúm og skilrúm hafa verið sett upp þannig að gestir hafa ekki ónæði hver af öðrum þó margir séu í sömu skólastofu. Þá býðst gestum að elda sjálfir sínar máltíðir og snæða þær í matsal skólans. Gistiþjónustan, sem einnig var starfrækt á sl. ári, opnaði þessa þjónustu formlega 1. júní sl. Díana Óskarsdóttir starfs- maður Gistiþjónustunnar sagði að gestir væru þegar farnir að koma og margir vildu nýta sér þessa þjónustu. Á sl. sumri voru og Gullfossi og Geysi. Ferðamönnum stendur til boða gisting á tveimur stöðum á Selfossi, Hótel Þóristúni, sem opið er allt árið og hjá Gistiþjón- ustunni í Gagnfræðaskólanum, þar sem er svefnpokapláss. Þá eru margir sem nýta sér ágætt tjaldsvæði. Báðir þessir staðir eru tilbúnir að taka við þeim ferðamönnum innlendum sem erlendum sem leggja vilja leið sína um Selfoss. Díana Óskarsdóttir gestir Gistiþjónustunnar nær eingöngu útlendingar í hópum eða einir á ferð, en ferðamanna- hópum er veitt matarþjónusta og framreiddur matur í mötu- neyti skólans. Nokkuð var um það á sl. sumri að íþróttahópar gistu hjá Gistiþjónustunni og notfærðu sér hina góðu íþrótta- aðstöðu sem hér er á Selfossi. Díana sagði að nokkuð væri um bókanir fyrir sumarið fyrir hópa en það væri þó mun minna en útlit hefði verið fyrir í vetur þegar ferðaskrifstofur pöntuðu. Afpantanir kæmu inn á vorin. Hún kvaðst eiga von á því að íþróttahópar kæmu til dvalar líkt og á sl. sumri og að straum- ur ferðamanna yrði nokkur, alla- vega væru þeir fyrr á ferðinni en í fyrra. Gistiþjónustan annast einnig rekstur tjaldsvæðisins og er annað tveggja fyrirtækja sem bjóða ferðamönnum gistingu á Selfossi. Steinunn Hafstað og Hótel Þóristún. Selfoss: „Sumarið leggst alltaf vel í mig“ — segir Steinunn Hafstað í Hótel Þóristúni HÓTEL Þóristún hefur verið starfrækt síðan 1969, að Steinunn Hafstað keypti húsið og hóf hótelrekstur þar. í hótelinu eru 17 herbergi, 9 í húsinu sjálfu og 8 í garðhúsi sem reist var 1973. Hótel Þóristún stendur steinsnar frá Ölfusárbökkum og frá því er fagurt útsýni yfir ána til fjalla. í hótelinu er aðbúnað- ur gesta góður. Þeim býðst morgunverður auk gistingar og í húsinu er setustofa fyrir gesti og sjónvarpsherbergi. Að koma inn á hótelið er Hkt og að koma inn á hlýlegt heimili en það er einmitt það sem gestir hafa rómað. Steinunn Hafstað, eigandi hótelsins, sagði að mikið væri um svonefnda „stop over“-gesti sem kæmu og færu í stutta skoð- unarferðir á bílaleigubílum um nágrennið. Þá væri nokkuð um að fólk hringdi beint frá útlönd- um og pantaði gistingu. Um hlutfallið milli innlendra og er- lendra gesta sagði Steinunn að mun meira væri af útlendingum að sumrinu en nærri eingöngu íslendingar að vetrinum. Komið hefði fyrir að hótelið fylltist á vetrum þegar Hellisheiði teppt- ist fyrirvaralaust. Við eitt slíkt tilfelli hefði hún sjálf teppst í Reykjavík og þurfti að stjórna hótelinu í gegnum síma, en einn gestanna tók á móti fólkinu og gaf því kaffi eftir tilsögn Stein- unnar. Síðan sagðist hún hafa mætt fólkinu í Þrengslunum morguninn eftir. Aðspurð um komandi sumar sagði Steinunn: „Það leggst allt- af vel í mig að búa mig undir sumarið á vorin, sem er yndis- legur tími.“ Hún sagði að frá nóvember til febrúar hefði stefnt í það að hótelið væri yfirbókað í verulegum mæli, en afpantanir dyndu nú yfir frá ferðaskrifstof- unum. „Mér finnt það ætti að vera hægt að hafa betri stjórn á þessum hóppöntunum en ferða- skrifstofurnar sýna,“ sagði Steinunn. Hún sagði að í fjöl- miðlum væri það blásið upp að aðsókn ferðamanna yrði mikil yfir sumartímann. Þetta gerðist að vetri en svo að vori sæist að lítið væri að marka þetta, a.m.k. hjá okkur úti á landsbyggðinni. Um væri að ræða áætlanir í kolli ferðarskrifstofufólks, hugmynd- ir sem ekki stæðust þegar á reyndi. Steinunn sagði einnig að er- lendir ferðamenn kvörtuðu gjarnan yfir að fá ekki upplýs- ingar um hótel úti á landi. „Það er fjöldi manns,“ sagði Steinunn, „sem hefur komið til mín og spurt hvernig standi á því að það fái ekki upplýsingar á flugaf- greiðslum erlendis um staði úti á landi. Það eru dæmi um að fólk fær þær upplýsingar að aðeins tvö hótel í Reykjavík taki á móti erlendum ferðamönnum. Fólkið segir gjarna þegar þetta ber á góma: „Við erum ekki komin til Islands til þess að dvelja í Reykjavík, við viljum sjá land- ið.“ Ég spurði Steinunni að því hvað það væri sem gerði það að verkum að hún hefði starfað svo lengi við hótelrekstur, en slík störf hefur hún stundað síðan 1944. „Þetta er svo skemmtileg vinna,“ sagði Steinunn og leit út um glugga hótelsins, „að ég hef ekki getað slitið mig frá henni.“ Texti og myndir: SIGURÐUR JÓNSSON Pú færð gjaldeyrinn í utanlandsferðina hjá okkur. Ef eitthvað er eftir (aegar heim kemur er tilvalið að opna gjaldeyrisreikning og geyma afganginn á vöxtum til seinni tíma. Iðnaöarfaankinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.