Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 68
ttgnnfrlfifetfe
HL DAfiLEGRA NOTA
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-00.30
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Kollafjarðarstöðin:
Ráðherra leyfir
sleppingu seiða
(.andbúnaðarrádherra hefur
ákveðið að heimila Laxeldisstöð
ríkisins í Kollafirði að sleppa í haf-
beit þeim gönguseiðum sem í stöð-
inni eru. Búist er við að fyrstu seiö-
unum verði sleppt í dag. Eins og
kunnugt er kom nýrnaveiki upp í
stöðinni í vetur. Stöðin var þá sett í
sóttkví og sölubann og síðan var
ákveðið að farga öllum ungseiðum í
stöðinni.
í rannsóknum sem síðan hafa
verið gerðar á gönguseiðum í stöð-
inni fundust engin merki um
nýrnaveiki, og var því ákveðið að
sleppa þeim í hafbeit frá stöðinni.
Verður stöðin sótthreinsuð í
sumar og gerðar sérstakar varúð-
arráðstafanir við hrognatöku í
haust.
Vegna sölubanns stöðvarinnar
verður sleppt um 200 þúsund seið-
um í hafbeit frá henni í sumar en
það eru þrisvar sinnum fleiri seiði
en í fyrra. Aftur á móti verður
engum seiðum sleppt frá stöðinni
á næsta ári þar sem búið er að
farga öllum ungseiðum í stöðinni.
Sjö togarar
eru á veiðum
SJÖ TOÍiARAR úr Reykjavík eru að
veiðum þrátt fyrir verkfall undir-
manna á litlu togurunum og samúð-
arverkfall undirmanna í Sjómanna-
, félagi Reykjavíkur á stærri togurun-
um. Sáttafundur í deilunni hefur
ekki verið boðaður og virðist hún
vera í nær óleysanlegum hnút.
Togarinn Keilir RE 37, sem
gerður er út af íslensku umboðs-
sölunni hf., lét úr höfn í Hafnar-
firði á sunnudaginn með yfirmenn
eina um borð, sex af 8—10 manna
áhöfn. Skráning skipverja var
færð frá Reykjavík til Hafnar-
fjarðar í fyrri viku og telur Sjó-
mannafélag Reykjavíkur að þann-
ig sé útgerðarfélagið að fara á
skjön við lög um stéttarfélög og
vinnudeilur. Hefur félagið í
hyggju að kæra útgerðina vegna
þessa. Bjarni V. Magnússon, for-
stjóri útgerðarinnar, sagðist
reikna með að Keilir yrði viku eða
tíu daga í veiðiferðinni en kvaðst
ekki reikna með að aflanum yrði
landað erlendis.
Þá er Reykjavíkurtogarinn
Karlsefni nýlega farinn á veiðar á
nýjan leik eftir að hafa selt afla
sinn í Þýskalandi sl. fimmtudag.
Ragnar Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Karlsefnis, sagði í
gær að líklegast myndi togarinn
snúa til Reykjavíkur að lokinni
þessari veiðiferð en útilokaði ekki
að aflinn yrði aftur seldur ytra.
„Sjómenn á Karlsefni eru ekki í
verkfalli fyrr en togarinn er kom-
inn í höfn,“ sagði hann og játaði
því, að með þessari tilhögun væri
útgerðin að komast hjá því að
skipið stöðvaðist vegna verkfalls
sjómanna í Reykjavík.
Fimm aðrir togarar eru enn að
veiðum. Þeir höfðu látið úr höfn
áður en til samúðarverkfallsins
kom.
Til móts við sumar og sól
MorgunblaAid/ÚL.K.M.
Bjórfrumvarpið fer
á ný til neðri deildar
Efri deild Alþingis samþykkti þjóðaratkvæðagreiðslu í nótt
en tillaga þess efnis var fyrir nokkru felld í neðri deild
MEIRIHLUTI efri deildar Alþingis samþykkti um kl. I í nótt að
þjóðaratkvæðagreiðsla skuli fara fram um bjórfrumvarpið eins og
það var samþykkt í neðri deild Alþingis. Þetta hefur það í Fór með
sér að málið þarf á nýjan leik að fara fyrir neðri deiid Alþingis,
þar sem þegar hefur verið felld breytingartillaga Karvels Pálma-
sonar í þá veru að frumvarpið skuli ekki öðlast lagagildi fyrr en
að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem meirihluti
þjóðarinnar lýsi sig samþykkan frumvarpinu.
Áheyrendapallar efri deildar
Alþingis voru þéttsetnir í allt
gærkveldi, þegar önnur umræða
fór fram um bjórfrumvarpið.
Eyjólfur Konráð Jónsson mælti
fyrir meirihlutaáliti allsherjar-
nefndar efri deildar sem var í
þá veru að hann samþykkti
frumvarpið. Ragnar Arnalds
mælti hins vegar fyrir breyt-
ingartillögu um þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Tillaga um að vísa málinu til
ríkisstjórnarinnar var felld með
11 atkvæðum gegn 6, 1 sat hjá,
en tillagan um þjóðaratkvæða-
Reynt til þrautar að
finna samningaleið
FRAMKVÆMDASTJÓRN Vinnuveitendasambands íslands fundaði í
gærmorgun og ræddi stöóu samningamálanna. Var þar ákveðió að reyna til
þrautar að finna leið sem gæti borið árangur í samningum við verkalýðs-
hreyfinguna.
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í gær: „Á
fundi framkvæmdastjórnarinnar í
morgun var staða samningamál-
anna rædd, eftir viðræður samn-
ingaráðsins og fulltrúa VSÍ við öll
landssamböndin. Á þessum fundi
var farið yfir það sem fram hefur
komið í þessum viðræðum, auk
þess sem samþykkt var að fela
samningaráðinu að reyna til
þrautar hvort ekki væri unnt að
finna leið sem gæti borið árangur
í samningum við verkalýðshreyf-
inguna."
Hefur nú verið ákveðið að full-
trúar VSÍ og fulltrúar ASÍ og
formenn landssambanda hittist á
fundi kl. 16 síðdegis í dag.
greiðslu var samþykkt með 12
atkvæðum gegn 6, 2 voru fjar-
verandi. Viðhaft var nafnakall
við atkvæðagreiðslu, og þegar
Jón Helgason dómsmálaráð-
herra gerði grein fyrir sínu at-
kvæði, lýsti hann því yfir að
hann liti þannig á að þingdeild-
in vildi ekki heimila það sem í
frumvarpinu fælist, og því segði
hann já. Ragnar Arnalds gerði
jafnframt grein fyrir sínu at-
kvæði, en greindi þá frá því að
þetta væri rangur skilningur
dómsmálaráðherra. Ekkert
væri hægt að segja til um af-
stöðu einstakra þingmanna til
bjórfrumvarpsins, þótt þeir
greiddu þjóðaratkvæðistillög-
unni atkvæði sitt. Tillagan um
þjóðaratkvæðagreiðslu gerir
ráð fyrir að slík atkvæða-
greiðsla fari fram á þessu ári.
Þeir sem voru tillögunni um
þjóðaratkvæði samþykkir voru
Árni Johnsen (S), Davíð Aðal-
steinsson (F), Egill Jónsson (S),
Eiður Guðnason (A), Haraldur
Ólafsson (F), Helgi Seljan
(Abl.), Jón Helgason (F), Karl
Steinar Guðnason (Á), Ragnar
Arnalds (Abl.), Kristín Ást-
geirsdóttir (Kvennalisti), og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
(S). Andvígir voru: Björn Dag-
bjartsson (S), Eyjólfur Konráð
Jónsson (S), Jón Kristjánsson
(F), Kolbrún Jónsdóttir (BJ),
Stefán Benediktsson (BJ) og
Valdimar Indriðason. Fjar-
staddir voru þingmennirnir Al-
bert Guðmundsson (S) og Sal-
ome Þorkelsdóttir (S).
Mikil fækkun
lánsumsókna
LÁNSUMSÓKNUM hjá Lifeyris-
sjóði verslunarmanna hefur fækkað
verulega það sera af er þessu ári
miðað við sama tíma í fyrra. í maí-
mánuði á þessu ári bárust sjóðnum
116 beiðnir um lán en í maí 1984
voru lánsbciðnir hjá Lífeyrissjóði
verslunamanna um 170 talsins.
Guðmundur H. Garðarsson,
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
verslunarmanna, sagði í samtali
við Morgunblaðið að lán úr sjóðn-
um væru að mestu leyti veitt til
fólks sem stæði í íbúðarkaupum
eða húsbyggingu og því mætti
ætla að verulegur samdráttur
hefði orðið á slikum framkvæmd-
um hjá verslunarfólki. Auk þess
samanburðar sem gerður var á
lánaumsóknum í mái nefndi Guð-
mundur H. Garðarsson einnig að í
mars í fyrra hefðu umsóknir verið
um 190 en hefðu verið um 120 í
mars á þessu ári. Lífeyrissjóður
verslunarmanna er stærsti lífeyr-
issjóður landsins en í hann greiða
um 16 þúsund manns allt árið og
rúmlega 30 þúsund yfir sumartím-
ann.