Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JtJNÍ 1985 fflMMtt „ $ly5a-try9^'in^in KonS rcnnur át cftir fiVrjmtcwi m'mLitur. " ásí er ... ... að bœta ráð sitt TM Reg. U.S. Pat. Off.-all rights reserved C1985 tos Angeles Times Syndicate 'íé- Ég er viss um að þér fellur betur þessi opna gerð af hjálmunum? HÖGNI HREKKVÍSI Lítið hugsað um öryrkja JJ. skrifar: Mig langar að skrifa um öryrkja og aldraða. Hvernig er hægt að ætlast til að við lifum á 11.000 þegar aðrir fá 20—70.000 krónur á mánuði. Þarna finnst mér að ríkið ætti að koma til móts við fólkið, sem er á stofnunum. Hvers vegna er ekki farið eftir lögum í sambandi við húsnæði fyrir okkur? Sumir byggja og byggja og gera ekki ráð fyrir okkur sem erum með hækjur og eru í hjólastólum. Ég get nefnt fjölda dæma hjá ríki og borg þar sem ekki er gert ráð fyrir okkur: Þjóðleikhúsið, Borgarbókasafnið, ÁTVR, Borgartún 7 og fleiri hús- byggingar. Nú, síðan eru það allir veitingastaðirnir til dæmis Broad- way, Hollywood, Þórskaffi, Klúbb- urinn, Safarí og fleiri staðir. Mig langar því að vita hvort starfsfólk þessara staða og stofnana sé til- búið til að bera okkur tvisvar til þrisvar upp og niður stigana. Það mætti halda að þið hugsið lítið nema um sjálfa ykkur. Forðist þjófa Jón Sigurðsson hringdi: Það er víst faraldur erlendis að verið sé að ræna fólk og finnst mér allt í lagi að benda fólki á að til eru veski, sem eru svokölluð innanklæðaveski fyrir peninga og eru þessi veski seld í bönkum. Það er alveg ástæðu- laust að láta slíkt óhapp koma fyrir. Það er bæði óþægilegt og bagalegt í alla staði. Til dæmis var verið að tala um að strákarnir, sem fóru í hjól- reiðakeppnina erlendis fyrir stuttu, voru rændir sínu fé. Hefðu þeir verið með slíkt veski, hefði þetta líklega ekki komið fyrir. Köttur í óskilum Klsa Dragen hringdi: Ég er með kött í óskilum, sem ég hefði viljað koma heim til sín eða vita hvort einhver góðhjartaður myndi vilja taka hann að sér. Ég bý við Bergstaðastrætið og þann 20. maí sl. kom þessi köttur og bankaði upp hjá mér. Hann er svartur fressköttur með hvítar loppur og hvítan háls og upp að neðri vör vinstra megin. Hann er líka hvítur undir kviði og er með hvít veiðihár. Þetta er ungur og vel vaninn köttur, blíður og góður. Upplýsingar um kisu eru hjá Kattavinafélag- inu, Dýraspítalanum eða í síma 10539. Meðfylgjandi mynd er af ketti þessum. Rás 2 reynir að gera öllum til hæfis Þorsteinn hringdi: Það hafa margir skrifað í dálk þinn og tjáð sig um hvað rás 2 sé leiðinleg og t.d. á miðvikudaginn síðasta sá ég fyrirsögn er sagði „Er eitthvað að í Efstaleitinu?" Ég fór strax að lesa greinina og fannst mér hún meiri vitleysan og bréfritarinn kvartar yfir því að hann heyri ekki þá tónlist sem honum finnst góð. Hann segir m.a. að það sé martröð að hlusta á rás 2. Ég á mína uppá- haldshljómsveit, sem heitir „Tears for Fears" og hef ég ekki heyrt mikið í henni á rás 2, en þrátt fyrir það fer ég ekki að kvarta í blöðum út af því. Ég er alveg viss um að um- sjónarmenn rásar 2 reyna að gera öllum hlustendum til hæfis og finnst mér að rás 2 eigi mikið lof skilið. Ásgeir og Páll eiga mikið lof skilið fyrir vinsælda- listann svo og fleiri góðir menn þarna í Efstaleitinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.