Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3,1. JÚNl 1985 63 • VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI ' TIL FÖSTUDAGS W(/JMTW*-UM-0 tr Raunasaga gæludýraeiganda Stebbi skrifar: Ég er alveg yfir mig sár og reið- ur og er satt að segja búinn að vera það síðan um áramótin. Það eru þessi bölvuð lög sem fara svona í taugarnar á mér og ég spyr: Er það forsvaranlegt að skipta þjóðinni svona í tvennt með löggjöf og það í lýðræðisþjóðfé- lagi? Þannig er mál með vexti að ég, eins og fleiri, á mér gæludýr sem ég hef haft með mér nánast hvert sem ég fer og líður satt að segja ekkert vel að þurfa að skilja við það nema þá stutt í einu. Þó læt ég það vera eftir heima þá sjaldan ég fer í kirkju, sem er að vísu ekki nema við jarðarfarir, og hef svo sem alveg þolað við á meðan, það skal viðurkennt. Eins hefur ekki mátt taka þetta gæludýr með sér í strætó, af hverju sem það nú er, en það snertir mig ekki, því ég á bíl. Yfirleitt hef ég þó getað haft Þebba litla með mér hvert sem er í fullum rétti og hef látið sem vind um eyrun þjóta þó að einhverjir nöldrarar væru að finna að því við mann að það sé ólykt af honum. Ég hef alltaf litið svo á og lít enn svo á að þetta sé mitt einkamál, auk þess sem ég finn alls ekki þennan ódaun sem sumir eru að fjargviðrast yfir. Svo var það rétt eftir áramótin að ég fór í banka og tók vininn með, að einhver kom og sagðist vera starfsmaður og benti mér á að ég mætti ekki hafa „svona dýr“ með mér inn í bankann. Ég spurði hvað hann væri að meina og hann sagði að það væri út af þessum nýju lögum. Hvaða helv. ... lög- um, sagði ég. Nú, lögunum sem banna að koma með þessa dýra- tegund inn á afgreiðslustaði og verslanir, sagði hann. Svo að mað- ur er bara ekki velkominn lengur, sagði ég með þjósti en hann svar- aði því til að víst væri ég velkom- inn og meira en það, bara ef ég vildi skilja „skepnuna" eftir fyrir utan bankann. Ég hélt mér kæmu ekki svona ólög við og fór rakleitt með vininn og stillti honum upp á afgreiðsluborð eins og ég var van- ur að gera. Stúlkan sem kom að afgreiða mig sagðist þá vinsam- legast (!) benda mér á að ég yrði að fara með hann útfyrir, hún þyrfti ekki lengur að sætta sig við svona „sóðaskap" eins og hún orðaði það því að nú væri loksins búið að banna þetta með lögum. Það hljóp að sjálfsögðu ofsalega í mig og ég rauk út í fússi. Eins og ég sagði þá er ég varla búinn að ná mér ennþá. Enda hefur maður verið nærri því að segja hundeltur þessa síðustu mánuði bara fyrir það eitt að eiga þetta umrædda dýr. Ég tek undir það sem einhver sagði að það er verið að gera menn að annars eða gott ef ekki þriðja flokks borgara í sínu eigin landi og ég vil að endingu skora á aðra þefdýraeigendur í landinu að láta til sín heyra í þessu máli. U2 f sjónvarpið og til landsins Halla og Hjördís skrifa: Kæri Velvakandi: Við erum hér tvær algjörir U2 aðdáendur og viljum endilega taka undir það sem aðrir U2 aðdáendur hafa skrifað hér í þennan dálk. Við viljum einnig þakka fyrir hönd þeirra sem áhuga hafa á Duran Duran og þvíliku (þó að við séum ekki í þeirra hópi) fyrir þá tónleika sem komið hafa í sjón- varpinu með þeim. En eitthvað ætti að vera fyrir alla svo að við viljum allra náðarsamlegast biðja um tónleika með U2 í sjónvarpi því að hljómsveit sú á sér mjög marga aðdáendur hér á landi. U2 hefur haldið marga tónleika og flestir ef ekki allir hafa verið mjög góðir og það hlýtur að vera hægt að fá upptöku frá einhverj- um þeirra. Við viljum beina þessai tillögu til dagskrárgerðarmanna sjónvarps og vonum að hún verði Ein þreytt á ruglinu í aðdáendum Duran Duran skrifar: Kæri Velvakandi: I grein sinni þann 4. júní sl. var enn einn Duran Duran-aðdáandi að biðja um hljómsveitina á Lista- hátíð. Er ekki búið að segja þeim það hundrað sinnum að hljóm- sveitin sé búin að ráðstafa ferðum sínum þetta árið? Einnig er ég ósammála G.T. og S.R. um að lagið „Some Like It Hot“ og „Save a Prayer" hafi ekki komist neitt áfram á vinsældalist- Kaffi ekki fáanlegt á matmálstímum Athugasemd frá frönskum ferða- löngum: Skrýtið finnst okkur að ekki sé hægt að setjast niður hvenær sem er, á þessum annars góðu veit- ingastöðum hér á landi, og panta það sem manni helst langar í. Til dæmis á þessum hefðbundnu mat- málstímum Islendinga er ansi erf- itt að fá kaffi eða te og slappa aðeins af. Helst þarf maður að panta sér „rétt dagsins“ eða eitthvað slíkt þó maður hafi litla lyst á öðru en smá kaffisopa og hvíld. Á matmálstímum þýðir lítið að koma inn á þessa staði. Ein- göngu fæst þá matur og finnst okkur þetta tóm peningagræðgi. Svona lagað er ekki góð land- kynning. Talað er um að laða ferðamenn til landsins og finnst okkur að Islendingar ættu að gera betur en þetta og láta ekki svona mikið bera á peningagræðginni. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagiiir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér f dálkunum. Allt á skrifstofuna ★ Skrifborð ★ Tölvuboró 1 ★ Norsk gæðavara ★ Skjalaskápar ★ Veggeiningar ★ Ráðgjöf við skipulagningu J tekin til greina. Síðan viljum við endilega að kannaðir verði mögu- leikar á að fá U2 til landsins. Skrifið um annað efni anum. Ég veit ekki betur en „Save a Prayer" sé nú búið að gera það gott á listanum og „Some Like It Hot“ líka. Kæru Duran-aðdáendur, reynið að finna eitthvað annað til að skrifa en þetta rugl. Ég er sam- mála Ara um að Duran Duran-að- dáendur séu eitthvað meiriháttar ruglaðir. E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888 MEMOREX Diskettur - Tölvusegulbönd Þeir sem gera kröfur um hámarksöryggi gagna nota einungis MEMOREX. Fyrirliggjandi fyrir flestar gerðir tölva. Allar MEMOREX diskettur og tölvusegulbönd eru gæðaprófuð frá verksmiðju. Biðjið um MEMOREX á næsta smásölustað. MEMOREX er hágæða vara á góðu verði. Heildsala, smásala Umboðsmenn óskast víða um land. Hafið samband við sölumenn í síma 27333. acohf Laugavegi 168, S 27333. Fjölhœfo grasafellan Enginn rakstur! Grasinu breytt í áburð! ★ Tvöfaldur hnífur, sem slær grasið svo smátt að það fellur ofan í grassvörðinn og nýtist þar sem besti áburður. ★ 2,5—5,5 cm sláttarhæð, sem er stillt með léttu fótstigi. ★ Stjórnbúnaður fyrir mótor í handfanginu. ★ Góð varahluta- og viðgerðarþjónusta. ★ Árs ábyrgð ásamt leiðbeiningum um geymslu og notkun, sem tryggja langa endingu. ★ Verð aðeins kr. 13.450,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.