Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985 fc "é I fclk í fréttum „Barnaútvarpiða Ibyrjun júní var opnað í hljóðvarpi á rás 1 fyrir nýjan dagskrárlið sem hlotið hefur nafnið „Barna- útvarpið" sem verður á dagskrá framvegis á miðviku- dögum, fimmtudögum, föstudögum og á laugardögum kallast það „Helgarútvarp barnanna". Þessi dagskrárliður er fyrir börn á aldrinum tíu til fjórtán ára og er honum ætlað að sjá börnunum fyrir efni hvað viðkemur skemmtun og afþreyingu sem fræðslu og upplýsingum. Börn eiga einnig að láta sem mest frá sér heyra og taka þátt í dagskrárgerð. Mbl. fylgdist með upptöku í útvarpinu sl. fimmtudag en þar var nokkur fjöldi unglinga og barna saman kominn og á milli atriða gæddu börnin sér á gómsætum veitingum. LILY í LACE- MYNDINNI GYÐA SVERRISDÓTTIR Leikur Mary Sunshine í Chicago- söngleiknum í söngieiknum „Chicago“ sem ver- ið er að sýna í Þjóð- leikhúsinu kemur við sögu persóna sem nefnd er Mary Sunshine. Það er Gyða Sverrisdóttir sem er í hlutverk- inu og vekur hún jafnan mikla eftir- tekt á sviðinu. Þar sem blm. kannaðist ekki við að hafa séð Gyðu áður á fjölum leikhúsanna hér í borg eða annars staðar heimsóttum við hana eftir sýn- ingu og spurðum hvað hún hefði ver- ið að aðhafast und- anfarin ár. Þessi hljómsveit lék gömul jazz- lög eins og Billy Holliday og t.d. Ella Fitzgerald og fleiri álíka sungu. Það er svo eitt kvöldið þegar við erum að leika á stað sem heitir „Wet corner“ að Eurico Smith einn af frægustu tenórum Ítalíu heiðrar okkur með nærveru sinni. í lok kvöldsins kemur hann að máli við mig og vill endilega fá mig til Sikileyjar, en þar hafa hann og kona hans Giullia Russolo Smith sem stundum gengur undir nafninu „Big Mama“ aðsetur. Ég dreif mig með honum suðureftir og Giullia sem er talin kennari á heimsmælikvarða kenndi mér I Það blæs á móti hjá Brigitte Bardot Þegar ég var um tvítugt ákvað ég og systir mín Hulda að leggja land undir fót og freista gæfunnar í Hollandi. Ég hafði um tíma lagt stund á söngnám hér heima og brýnt raust mína með kórum af og til, en draumurinn var að komast út og fá vinnu við sönginn. Strax á flugvellinum í Amsterdam hitti ég fyrir til- viljun píanista úr mjög mjög góðu djassbandi og þegar við erum búin að spjalla dágóða stund fer ég að segja honum frá söngferli mínum og hann bauð mér að koma og prófa að vinna með sínu bandi. Það varð úr að ég ílengdist með þessum strákum og við lékum á ýmsum „búllum" í tvö ár. Hulda greyið fékk líka vinnu sem trúður hljómsveitarinnar þ.e. hún fylgdi okkur hvert fótmál og fékk að leika t.d. á „tamburinu" er við átti. þau tíu ár sem ég bjó þama, en auk þess söng ég af og til fyrir ítalskt hástéttarfólk eins og t.d. eiganda Ferrari-bílaverk- smiðjanna. Eftir því sem tíminn leið kom löngun yfir mig að fara að breyta til og takast á við ný verkefni. Ég kvaddi því Sikiley með hálfgerð- um trega og tók tilboði sem ég fékk um að syngja titilhlutverkið í „Lucia di Lammermoor" í Chic- ago-óperunni og þetta var tæki- færi sem ég gat ekki látið ganga mér úr greipum. Einskonar eldri systir Frelsisstyttunnar þekktu í New York-borg, þ.e. sú franska, þarf nú brátt á andlitslyftingu að halda. Marianne nefnist sú franska og hefur allt frá miðri 19. öld verið nær heilagt tákn um lýðveldistöku Frakka. Síðastliðin tuttugu ár hefur Brigitte Bardot verið fyrirmyndin að gyðjunni, en nú hafa skoðanakannanir í Frakk- landi leitt í ljós að almenn- ingur vill skipta um fyrir- mynd og kýs leikkonuna Catherine Deneuve 41 árs frekar en Bardot. Kallar franska blaðið Le Monde þetta afturhvarf til hins sí- stæða. Er nú verið að velja myndhöggvara til verksins. En það er fleira sem angr- ar Brigitte Bardot en að verða að lúta í lægra haldi fyrir Deneuve. Þessa dagana er að koma út bók eftir fyrrverandi vin Brigitte, Sacha Distel, þar sem hann uppljóstrar flestu úr einka- lífi þeirra á sínum tíma og vinkonan er ekkert ýkja hrif- in. Brigitte Bardot verður að sætta sig við ýmislegt þessa dagana. Nýja fyrirmyndin Caterine Deneuve Tilboðunum rignir yfir hana Phoebe Cates eða öllu heldur „Lili“ í myndinni Lace var ljósmyndafyrirsæta hér á árum áður. Ferill hennar byrjaði nokkurnveginn þannig að er hún sá að CBS-samsteypan ætlaði að gera mynd eftir skáldsögunni Lace, sá hún sig strax í anda sem Lily og var staðráðin í að beita öllum tiltækum ráðum til að öðlast það hlutverk. Það tók tímana tvo að sannfæra framleið- endur um að hún væri sú rétta í hlutverkið og það var ýmislegt sem Phoebe þurfti að breyta í útliti og framkomu. En er henni tókst að lokum að sannfæra forráðamenn samsteypunnar þá kom hún, sá og sigraði og nú rignir tílboðunum yfir hana ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.