Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR U. JtJNÍ 1985
Ida Christiansen og Gísli Holgerson í verslun sinni.
Ný ljósa og raf-
tækjaverslun
Vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins
Dregið 15. júní
22 glæsilegir ferdavinningar
að verðmæti kr. 940.000.-
Vinsamlega gerið skii á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiðsla happdrættisins í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Sími 82900, opið í dag kl. 10 til 17 og á morgun kl. 13 til 17.
Sækjum — Sendum
Sjálfstæðisflokkurinn.
GH HEILDVERSLUN sf. sem
áður var staðsett að Móaflöt 12
í Garðabæ hefur opnað nýja
Ijósa- og raftækjaverslun við
Garðatorg 3 í miðbæ Garða-
bæjar.
Flestar gerðir flúorlampa
eru á boðstólum ásamt há-
loftaljósum, garðljósum, úti-
Ijósum og neyðarlýsingum
ýmiskonar.
Verslunin verður opin á
venjulegum búðartíma en
jafnframt stendur til að hafa
opið við og við á sunnudögum
í sumar.
Eigendur verslunarinnar
eru Ida Christiansen og Gísli
Holgerson.
Fyrirlestur á
vegum Geðhjálpar
FÉLAGIÐ Geðhjálp stendur fyrir
fyrirlestri fimmtudaginn 13. júní
kl. 20.30. Ragna Ólafsdóttir sál-
fræðingur talar um sálarástand
kvenna tengt meðgöngu og fæð-
ingu. Fyrirlesturinn er haldinn á
geðdeild Landspitalans í kennslu-
stofu á 3. hæð. Aðgangur er öllum
heimill.
(Frctlatilkynninfr.)
Þetta er mjög uppörvandi og ber
að þakka það og virða.
Þegar áðurgreind mál hefur
borið á góma hafa konur á vinnu-
markaðnum oft sagt, að ekkert
réttlæti sé í því, að þær fari að
greiða þeim konum laun, sem væru
„bara“ heima, og eins, að með
þessu sé verið að ýta konum aftur
inn á heimilin.
í fyrsta lagi þarf það ekkert að
koma fjárhagslega við útivinnandi
konur þó leiðréttingar fáist á mál-
um heimavinnandi húsmæðra. í
öðru lagi er ekkert sem heitir
„bara“ heima. Það er ekkert
„bara“ að annazt uppeldi barna
sinna og stuðla að farsælla fjöl-
skyldulífi, enda teljum við það
koma öllu þjóðfélaginu til góða. —
Og með leiðréttingu þessara mála
verður fleiri konum, sem þess óska
gert það kleift að vera heimavinn-
andi.
Þessu mikilvæga máli verða
ekki gerð nein tæmandi skil í einni
blaðagrein. En vonandi hvetur
hún til umhugsunar.
En umfram allt. Hefjum heimilin
til vegs og virðingar með húsmæð-
ur í forsæti. Gleðjumst yfir hverri
þeirri móður, sem getur og vill
vera heima. Hún á heiður skilinn.
Gerum sem flestum það kleift
að geta valið hvort þær séu heima-
eða útivinnandi.
/ hagsmunanefnd heimarinnandi
husmæðra eru: Helga fíuðmunds-
dóttir, Dóra fíuómundsdóttir, Haii-
dóra Steinsdóttir. Ragna Jóns-
dóttir og Sigríður Bergmann.
Hvort sem þú vilt ræða viðskipti yfir léttri
máltíð eða eiga ánægjulega stund
með vinnufélögum eða vinum,
þá geturðu gengið að því sem vísu að á
Arnarhóli sé maturinn fyrsta flokks og
þjónustan ekki síðri.
KOMDU í HÁDEGINU OG NJÓTTU ÞESS BESTA,
ÞAÐ KOSTAR F.KKl MEIRA EN
HVERSDAGSLEG MÁLTÍÐ ANNARS STAÐAR.
Við slðum hvergi af kröfunum — létt-franska linan
ó Annurihóli __ í hóHonlnn
Hvort sem þú velur þér tvíréttaða máltíð
af matseðli dagsins fyrir 420 krónur
eða dýrustu rétti af aðal-matseðli,
þá veistu ávallt að við
munum einungis bera þér það besta.
ARNARHÓLL
VEITl NGAHÚS
HverFisgötu 8-10 Sími: 188.^3