Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JtTNÍ 1985
9
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
'Armúla 16 sími 38640
& Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Pinotex
VERNDAR VIÐINN OG GÓÐA SKAPIÐ
PINOTEX NATUR er eina
glœra viðarvörnin sem
tryggir að viðurinn gráni
ekki.
Natur inniheldur Ijóssíur sem
verja viðinn fyrir áhrifum útfjólublárra
sólargeisla. Munið að glœra viðarvörn, að
undanskildu Pinotex Natur, má aldrei nota
eina sem lokameðferð á tréverkinu því það
eru litarefnin í öðrum
tegundum sem verja
viðinn gegn sólar-
geislunum.
4
PELSINN
Kirkjuhvoli-sími 20160
Siglingar á Bandaríkin
„Um ár er nú liöiö síöan bandaríska fyrirtækiö Rainbow
Navigation Inc. hóf siglingar á milli íslands og Bandaríkjanna,
meö vöur fyrir varnarliöiö á Keflavíkurflugvelli. Á sama tíma hafa
flutningar íslenskra skipafélaga fyrir sömu aöila, dregist saman
um áttatíu af hundraði. Sá samdráttur, ásamt veröhækkun
Bandaríkjadals á tímabilinu, hefur haft verulega neikvæö áhrif á
afkomu þeirra íslensku skipafélaga sem halda uppi siglingum á
þessari leiö.“
Fréttabréf Eimskip fjallar um þetta efni í grein eftir Hörö Sigur-
gestsson, forstjóra, sem Staksteinar birta í dag.
„Forréttindi á
kostnað ís-
Iendinga“
Hörður Sigurgestsson
segir í Fréttabréfí Eim-
skips:
„Allt frá því siglingar
Rainbow hófust hefur ís-
lenska utanríkisráðuneytið
unnið að því við bandarísk
stjómvöld, að þau forrétt-
indi sem Rainbow er að-
njótandi verði afnumin, en
án árangurs. Ekkert bendir
til þess að lausn fáist á
næstunni, því bandarísk
stjóravöld hafa ekki enn
getað gefið fslendingum
ákveðin svör við því,. hvort
íslensk skipafélög fái
aukna hlutdeild f þessum
ftutningum í samræmi við
þá þjónustu sem þau veita.
Að sögn bandarískra
stjórnvalda er erfitt að
tryggja jafnan rétt íslensku
skipafélaganna og Rain-
bow til þessara flutninga.
Um flutninga fyrír banda-
ríska herinn gilda verndar-
lög frá árinu 1904 og þau
veita bandarískum skipa-
félögum forgang að öllum
flutningum til bandarískra
herstöðva erlendis. Þar
sem það er hagsmunamál
bandarískra fyrirtækja og
sjómanna, að bandarísk
skip annist þessa flutninga,
virðast þingmenn þar í
landi ekki tilbúnir að
breyta þessum lögum og
beita sér þannig gegn hags-
munum kjósenda sinna.
Kjarninn í þessu deilu-
máli íslendinga og banda-
rískra stjórnvalda er hvort
íslendingar verði að sætta
sig við að bandari.sk lög
veiti bandarískum fyrir-
tækjum forréttindi á kostn-
að Islcndinga, f því skyni
að verada fjárhags- og at-
vinnuhagsmuni banda-
rískra þegna.
Þegar stofnun og rekst-
ur bandaríska skipafélags-
ins Rainbow Navigation er
skoðaður til hlítar, er
tvennt sem hafa verður
sérstaklega í huga. Annars
vegar eru þær forsendur
sem gera fyrírtækinu kleift
að ná og halda uppi sigling-
um á milli íslands og
Bandaríkjanna og hins
vegar þau áhrif bæði bein
og óbein, sem siglingar
Rainbow hafa hér á landi.
Forsendur fyrir starf-
semi Rainbow í þessum
siglingum eru áðurnefnd
verndarlög frá 1904, sem
veita bandarískum fyrir-
tækjum forgang að sjó-
flutningum á vegum varn-
armálaráðuneytis Banda-
ríkjanna. Það er þó skilyrði
að skip þau sem annast
þessa flutninga sigli undir
bandariskum fána, séu
byggð i Bandarikjunum
eða hafi siglt undir banda-
riskum fána í a.m.k. þrjú
ár.
Tilefni þess að Rainbow
hóf siglingar til fslands á
síðasta árí, var að banda-
risk stjóravöld buðu fyrir-
tækinu á leigu með kaup-
rétti, skipið Antilla. Skipið
var byggt i Bandaríkjunum
árið 1979, og styrktu
bandarísk stjórnvöld bygg-
ingu skipsins. Vegna gjald-
þrots þess skipafélags sem
áður rak skipið, urðu band-
arísk stjórnvöld að taka við
því aftur, og buðu það til
leigu eða sölu fyrir rúmu
ári. Rainbow leigði skipið,
og gerði jafnframt kaup-
samning um það á mjög
lágu verði, og er þvi Ijóst
að skipið er verulega niður
greitt til Rainbow af
bandarískum stjóravöld-
um.“
„Megum ekki
og getum ekki
sætt okkur
við“ misrétti
„Forráðamenn islensku
skipafélaganna, hafa marg
ítrekað kröfuna um eðli-
lega samkeppni í siglingum
milli fslands og Bandarikj-
anna. Þegar Ijóst var fyrir
ári síðan að Rainbow hæfi
flutninga varnarliðsvöru til
fslands, lá fyrír að Rain-
bow hefði forgang að veru-
legum hhita allra flutninga
milli fslands og Bandarikj-
anna. Létu forráðamenn is-
lensku skipafélaganna í
Ijós þá skoðun að þar með
væri fyrirtækinu tryggð yf-
irburðasamkeppnisstaða,
varðandi aðra flutninga til
og frá landinu. Þessar
áhyggjur hafa reynst á rök-
um reistar. Rainbow hefur
þegar notfært sér þessa að-
stöðu, til að ná til sín flutn-
ingum fyrír íslenska aðila
með undirboðum á mark-
aðnum. Slík ..samkeppni"
er ójafn leikur sem íslensk
skipafélög eiga enga mögu-
ieika á að taka þátt i.
Ef ekki verður breyting
hér á mjög fljótlega, er
Ijóst að íslensku skipafé-
lögin verða að fækka skip-
um í siglingum á milli ls-
lands og Bandaríkjanna.
Það er hagsmunamál is-
lenskra sjómanna að slíkt
gerist ekki. Það er einnig
réttlætismál starfsmanna
skipafélaganna í landi, að
fá að sitja við sama borð og
þeir bandarísku þegnar
sem nú annast þessa flutn-
inga.
Rétt er að vekja athygli
á að síðustu tólf mánuðina
hafa tekjur fslendinga og
íslenskra skipafélaga dreg-
ist saman um átta milljónir
Bandaríkjadala, eða um
þrjú hundruð milljónir is-
lenskra króna, vegna sigÞ
inga Rainbow. Þessi mikla
rýrnun á tekjum íslensku
skipafélaganna á þessari
siglingaleið, hlýtur að þýða
versnandi afkomu og þjón-
ustu þeirra, nema til komi
hækkun flutningsgjalda.
Ef fram heldur sem
horfir, kann Rainbow, í
skjóli forréttinda sinna,
einnig að geta tekið yfir
stóran hhita flutninga fyrir
fslendinga til og frá
Bandaríkjunum. Ef það
gerist, mun tekjutap ís-
lenskra skipafélaga enn
aukast Við fslendingar
getum ekki, og megum
ekki sætta okkur við, að
bandarísk stjórnvöld veiti
þegnum sínum forréttindi
með þessum hætti á kostn-
að okkar. Því megum við
aldrei fallast á það að er-
lend skipafélög hafi for-
réttindi í siglingum til og
frá fslandi.
Verndarákvæði í banda-
rískum lögum ásamt niður-
greiddum skipum banda-
rískra stjórnvalda til Rain-
bow, eru forsendur þess að
Rainbow getur nú haldið
uppi siglingum á milli ís-
lands og Bandaríkjanna.
Þau forréttindi og sú fyrir-
greiðsla sem Rainbow nýt-
ur, skapar þvi þá sérstöðu
að geta yfirtekið stærstan
hluta flutninga milli fs-
lands og Bandaríkjanna,
án þess að íslensku skipa-
félögin geti keppt þar um á
jafnréttisgrundvelli. Það er
óviðunandi ástand.
Eigum fyrirliggjandi
YAMAHA utanborðsmótora
í stærðum frá 4—40 hestöfl.
Útvegum allar stærðir
með 3—5 vikna fyrirvara.
Sérlega hagstætt verð.
Smiðshðfða 23. S. 81299
73iHamatl:a2utinn
AMC EAGLE 1983
Blár, ekinn 12 þús. milur. 6 cyl., beinskiptur,
loftræsting o.fl. Innfluttur frá USA. Verö 750
þús.
Toyota Tercel 1983
Grásans, ekinn 43 þ. km. 5 gírar, útvarp,
snjó- og sumardekk. Veró 320 þús.
TOYOTA CARINA DX 1982
Ekinn 38 þús. Verö 340 bús.
MAZDA 626 1600 1982
Ekinn 38 þús. Verö 270.
TOYOTA COROLLA GT
TWIN CAM 16 1984
Rauður, ekinn 16 þús. 1600 vél. 16 ventlar, 5
girar, splittað drif. Verö 530 þús.
MAZDA 929 1982
Ekinn 20 þús. Veró 385 þús.
VW GOLF GL 1984
Ekinn 13 þús. Verö 380 þús.
VW BUS DIESEL 1982
Brúnn. ekinn 81 þús. km. Lltvarp. segul-
band, ferðabíll m/svetnplássi f. 2—4. Olíu-
kynding, sæti f. 8. Westfala-toppur. Verö
580 þus.
TOYOTA GROWN 1981
Super Saloon. Grásans. ekinn 66 þús.
Sjálfskiptur. vökvastýri, útvarp, segulband.
rafm. i rúóum, dekurbill. Verö 1.460 þús.