Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR11. JÚNl 1985
57 r
Það er ótrúlegt en ég komst þó
aldrei svo langt að geta sungið
með óperunni því eftir fyrstu æf-
inguna var hætt við sýninguna og
leikhúsinu bókstaflega lokað
vegna heiftarlegra deilna milli
miðasölustjórans og tæknimanna
leikhússins. Þarna voru nú góð ráð
dýr og ég ákvað að koma við hjá
Huldu greyinu á Fróni og reyna að
jafna mig áður en ég færi í sviðs-
ljósið á ný.
Ég er svo bara rétt komin inn úr
dyrunum hjá henni Huldu systur
þegar spyrst út að ég sé á landinu
og síminn fer að loga. Eftir langar
fortölur lét ég svo tilleiðast að
fara í prufu fyrir þetta hlutverk í
Chicago en það höfðu auðvitað
margir reynt við það og ekki þótt
passa í það. Þetta var auðvitað létt
fyrir mig og ég sló til fyrir þá í
Þjóðleikhúsinu. Að vísu varð ég að
taka á honum stóra mínum og bíta
á jaxlinn yfir því að mér skyldi
ekki vera boðið aðalhlutverkið í
söngleiknum sem ég hefði auðvit-
að ekki viljað því þetta hlutverk,
Mary Sunshine, hentar mér miklu
betur."
— Hvernig líkar þér svo að
vinna hér heima?
„Eg hef neitað hverju einasta
tilboði sem mér hefur verið gert
síðan ég kom til hennar Huldu
minnar en ég verð að segja að
Mary Sunshine er mjög heillandi
persóna og ég fær þarna tækifæri
til að nýta rödd mína til hins ýtr-
asta. Tónlistin í Chicago er líka
skemmtileg og rosalega lífleg.
Graham Smith sagði um daginn
að þessi tónlist slægi tónlistina í
Gæjum og píum alveg út, svo þú
sérð að þetta hlýtur að vera
spennandi."
— Hvað tekur við að þessu
loknu?
„Ég veit ekki. Ég er að hugsa
um að fara út á landsbyggðina
með börnin mín tvö og njóta þess
að vera í skugga frægðarinnar í
smá stund. Það er svo furðulegt að
ég verð alltaf að fara á afskekktan
stað til að fá frið fyrir aðdáendum
og forvitnu fólki þannig að nú fer
ég og anda að mér fersku lofti og
finn gróandann."
Mbl. lét sér nægja þessi gull-
vægu ummæli af vörum þessarar
frægu manneskju sem þrátt fyrir
að vera umsetin aðdáendum og
hástéttarfólki hafði áf alkunnu
lítillæti gefið sér tíma um stund
til að seðja forvitni lesenda.
Hfl&ttíft MorgunblaSii/Þorkell
þessu jarmi
Gerið þið það fyrir mig að hætta þessu
jarmi. Það er löngu kominn háttatími hjá
mér.
— Furðulegt. Hann borðar þetta.
Pinotex
VERNDAR VIÐINN OG GÓÐA SKAPIÐ
NÚ
SPÖKCJMVEÐ
PENINGA
og smíðum sjálf!
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, limtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hjá okkur.
"—%/
Og nú erum við í Borgartúni 28