Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1985
En flest
er breytt
Það eru nú meiri lætin út af
þessari fegurðarsamkeppni,
liggur við að keppnin sú skyggi á
stórmál á borð við bjórmálið.
Þannig komst ég ekki í vinnuna á
hinum gráa mánudagsmorgni
fyrir aldeilis kostulegum síma-
þætti þar sem þeir morgunút-
varpsmenn Önundur Björnsson og
Guðmundur Árni Stefánsson í
samfylgd tveggja kvennafram-
boðskvenna lyftu tólinu og svör-
uðu spurningum hlustenda varð-
andi annarsvegar fegurðarsam-
keppnina á Broadway (Breiðvangi
= þýð.) og hinsvegar í sölum borg-
arstjórnar. Ég hætti mér ekki
frekar út í umræður um þetta við-
kvæma deilumál Islendinga, en
óhjákvæmilega hljóta þær deilur
er hafa hér blossað upp að hreyfa
við viðteknum hugmyndum
manna um hvað sé fagurt í heimi
hér. Það er til dæmis stór spurn-
ing hvort unnt sé að móta svo
fegurðarsmekk almennings á
hverjum tíma, að sá er þykir fagur
i augnablikinu þyki óiaglegur á
morgun. í þessu sambandi má
minna á að þegar Hugh Hefner
hóf að birta reglulega í Playboy
myndir af brjóstamiklum konum,
þá greip um sig brjóstablásturs-
æði meðal bandarískra kvenna. Sú
kona þótti eigi lengur fögur er bar
ekki belgi mikla við bringubein.
Nú þykja slikar konur eigi lengur
gjaldgengar í fegurðarsamkeppni.
Hafiði annars nokkurntímann séð
ljótt barn? Ég hef aldrei heyrt um
slíkt, kannski vegna þess að þegar
horft er á barn þá er það ekki
vegið og metið samkvæmt ein-
hverjum kvarða eða fegurðar-
mælistiku. En þetta á máski eftir
að breytast i kjölfar voldugri
barnatískuhúsa.
Hin þjóðin
En mál er að linni umræðum
um mál málanna á vordögum
hinnar fyrstu árstíðar í öld
Orwells. Eg hjó eftir því í fyrr-
greindum símatíma þeirra morg-
unútvarpsmanna að einn lands-
byggðarbúinn var ekki par sáttur
við þá staðreynd að öll athyglin
beindist að því er gerðist í Reykja-
vík, rétt einsog fegurðarmótin úti
á landsbyggðinni skiptu engu
máli. Gagnrýndi þessi ágæti mað-
ur ríkisfjölmiðlana fyrir að sýna
menningarlífi landsbyggðarinnar
lítinn áhuga. Auðvitað hefði mátt
sýna í sjónvarpinu frá fegurðar-
mótunum úti á landsbyggðinni, en
það er nú einu sinni svo að menn
sjá gjarnan lítt fram fyrir tærnar
á sér. Ég held persónulega að það
verði engin stórvægileg breyting í
þessu efni fyrr en landshluta-
stöðvar útvarps og síðar sjónvarps
hafa verið efldar. Við sjáum bara
hvað hefir gerst á Ákureyrar-
svæðinu í kjölfar RÚVAKSINS
sem hefir verið byggt upp af
myndarskap undir forystu hins
margreynda útvarpsmanns Jónas-
ar Jónassonar. Nú fylgist lands-
lýður með því sem er að gerast á
Ákureyrarsvæðinu til dæmis í at-
vinnumálum og menningarmálum
rétt einsog hljóðnemarnir séu
staðsettir hér syðra. Ég er ekki
viss um að allir geri sér Ijósa grein
fyrir gildi RÚVAKSINS fyrir höf-
uðborg Norðurlands. Með tilkomu
þess breytist Akureyri úr fremur
tíðindalitlum kaupfélagskaupstað
í borg þar sem ágengir fjölmiðlar
hvetja menn til átaka og nýsköp-
unar. Friðhelgin er rofin en á móti
kemur að: Nú má finna á Akureyri
og við Eyjafjörð alla helztu þætti
stórborgarsamfélagsins á Reykja-
víkursvæðinu og á Suðurnesjum.
Einsog segir í síðasta Reykjavík-
urbréfi. Er ekki þörf á landshluta-
stöðvum víðar?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Umræðuþáttur um
fegurðarsamkeppnir
■i Umræðuþáttur
05 í umsjá Einars
— Arnar Stefáns-
sonar, fréttamanns, verð-
ur á dagskrá sjónvarpsins
klukkan 22.05 í kvöld. Ein-
ar sagðist ætla að taka
fegurðarsamkeppnir fyrir
í þættinum, en eins og
fólk flest veit hafa þær
löngum verið umdeildar.
„Ætlunin er að fá fjóra
í þáttinn til að taka þátt í
umræðunum, tvo á móti
fegurðarsamkeppnum og
tvo með þeim.
Verðir laganna — frumskógafár
■■ Bandaríski
15 framhalds-
myndaflokkur-
inn sívinsæli, „Verðir lag-
anna“, er á dagskrá sjón-
varps klukkan 21.15 og
nefnist þátturinn í kvöld
„Frumskógafár", og er
þetta fyrri hlutinn.
Þættir þessir snúast um
lögreglustörf í stórborg
vestur í Bandaríkjunum
og hafa þeir hlotið mjög
góða dóma þar vestra
vegna þess hversu vel þeir
taka á málunum: þættirn-
ir eru taldir mjög raun-
verulegir.
I aðalhlutverkum eru
Daniel J. Travanti, Veron-
ica Hamel og Michael
Conrad.
Þýðandi er Bogi Arnar
Finnbogason.
Útvarp frá Alþingi
■i Útvarpað verð-
00 ur frá Alþingi í
“1 kvöld klukkan
20.00 á rás 1. Almennar
stjórnmálaumræður
verða þá í sameinuðu
þingi (eldhúsdagsumræð-
ur). Umferðir verða tvær
og fær hver þingflokkur
til umráða 15 til 20 mínút-
ur í fyrri umferð og 10 til
15 mínútur í hinni síðari.
„Guðir og hetjur
■i Annar þáttur
25 ástralsk-
“ svissneska
myndaflokksins um guði
og hetjur í grískura sögn-
um er á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld klukkan
19.25.
Alls verða þættir þessir
sex talsins. Þátturinn er
um grískar og rómverskar
goðsagnir og með teikni-
myndum eru raktar ýms-
ar frægustu goðsagnirnar.
Síðan eru kannaðar sögu-
slóðir og lýst síðari tima
rannsóknum á söguefn-
inu.
Þýðandi er Baldur
Hólmgeirsson.
„Kortagerð að
fornu og nýju'
■■■■ „Kortagerð að
OA40 fornu og nýju“
er heiti kanad-
ískrar fræðslumyndar um
í grískum sögnum“
landabréf. i myndinni er
lýst aðferðum Forn-
Grikkja og landkönnuða
fyrri alda og síðan þeirri
tækni sem nú er beitt,
ljósmyndun úr lofti og
tölvuvinnslu.
Myndin sýnir hversu
aðferðir fyrstu landkönn-
uða, svo sem Christophers
Columbus, Samuels de
Champlain og Cooks skip-
stjóra, eru mikilvægar í
dag. Einnig er nákvæm-
lega sýnt hvernig farið er
að því að kortleggja staði.
Þýðandi og þulur er
Bogi Arnar Finnbogason.
Seifur I æsku
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
11. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
timi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnars-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Hróbjartur
Arnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Börn eru besta fólk" eftir
Stefán Jónsson. Þórunn
Hjartardóttir les (15).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 „Man ég það sem löngu
leið." Ragnheiður Viggós-
dóttir sér um þáttinn.
11.15 I fórum mlnum. Umsjón:
Inga Eydal (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Sverrir Guðjónsson.
13.40 Tónleikar.
14.00 „Hákarlarnir" eftir Jens
Björnebo. Dagný Kristjáns-
dóttir þýddi. Kristján Jóhann
Jónsson les (7).
14.30 Miödegistónleikar.
a. „Draumar og ástriður"
þáttur úr „Órahljómkvið-
unni" eftir Hector Berlioz.
Sinfóniuhljómsveitin I Chic-
ago leikur: Georg Solt stjórn-
ar.
b. Sinfónla I C-dúr eftir Igor
Stravinský. Suisse Rom-
ande-hljómsveitin leikur;
Charles Dutoit stjórnar.
15.15 Ut og suður. Endurtekinn
19.25 Guðir og hetjur I fornum
sögnum
Annar þáttur.
Astralsk-svissneskur mynda-
flokkur I sex þáttum um
grlskar og rómverskar goð-
sagnir.
Þýðandi og þulur Baldur
Hólmgeirsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
þáttur Friðriks Páls Jónsson-
ar frá sunnudegi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Upptaktur. — Guð-
mundur Benediktsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 „Sumar á Flambards-
setri" eftir K.M. Peyton. Silja
Aðalsteinsdóttir les þýðingu
sína (4).
17.35 Tónleikar.
17.50 Siðdegisútvarp. —
Sverrir Gauti Diego.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
11. júní
20.40 Kortagerð að fornu og
nýju
Kanadisk fræðslumynd um
landabréf. I myndinni er lýst
aðferðum Forn-Grikkja og
landkönnuöa fyrri alda og
slðan þeirri tækni sem nú er
beitt. Ijósmyndun úr lofti og
tölvuvinnslu.
Þýðandi og þulur Bcy Arnar
Finnbogason.
21.15 Verðir laganna
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.45 Til-
kynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Útvarp frá Alþingi.
Almennar stjórnmálaumræð-
ur I sameinuðu þingi (eld-
húsdagsumræðurj. Umferðir
verða tvær, og fær hver
þingflokkur til umráöa
15—20 minútur I fyrri um-
ferð og 10—15 mlnútur I
hinni slðari.
Veöurfregnir. Tónleikar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Frumskógafár — fyrri hluti
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur um lögreglu-
störf I stórborg.
Aðalhlutverk: Daniel J. Trav-
anti, Veronica Hamel og
Michael Conrad.
Þýðandi Bogi Arnar Finn-
bogason.
22.05 Umræöuþáttur
Umsjón: Einar örn Stefáns-
son, fréttamaður.
23.00 Fréttir I dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
11. júní
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
14.00—15.00 Vagg og velta
Létt lög leikin af hljómplöt-
um.
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Komið við vltt og breitt I
heimi þjóðlagatónlistarinnar.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR