Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 13

Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR11. JÚNl 1985 13 íslendingar og íslandsvinir í París mæU á vorblóti. Dr. Sigurður Frá vorblóti íslandsvinafélagsins í París. Gunnar Morgunblaíið/Anna Jónsson (sá sem keypti Gaimard-bókina) á miðri mynd. Hermannsson arkitekt ásamt dóttur sinni. Hann Hljómsveitin Ásdís og hrútspungarnir lék á vorblótinu í París. kveðst ekki hafa verið heima á íslandi síðan 1959. FRANCE — ISLANDE LÍFLEGT STARF í PARÍS Frá Önnu Nissels, frétUritara Mbl. í París. í fljótu bragði virðist nafnið benda til fótboltaleiks á milli land- anna, en svo er ekki. Heldur er þetta félagið France- Islande, sem leit dagsins Ijós á síð- asta ári. Forseti og stjórnandi félagsins er Jean Pierre Fourré þingmaður. Áður en félagið var stofnað var Fourré í vináttufélagi milli franska og íslenska þingsins. Eftir Islandsför hans kom þessi ágæta hugmynd upp og fé- lagið var stofnsett. Það gefur út rit sem kemur út mánaðarlega á frönsku í hundr- að og fimmtíu eintökum, sem dreift er í háskóla og bókasöfn, auk þess sem íslendingar búsett- ir í Frakklandi og aðrir ís- landsvinir fá blaðið heim. Ritið fær að mestu sínar upplýsingar frá sendiráði íslands í París. Gunnar Snorri Gunnarsson sendiráðsfulltrúi sendir félaginu fréttapistla einu sinni í viku, sem hann fær frá ráðuneytinu og ríkisútvarpinu. Þessar fréttir eru það helsta sem er að gerast í íslensku þjóðlífi í dag, og ekki má gleyma fréttum af veðrinu. Blaðið hefur að geyma margvís- legt efni, fréttir af íslenskum listamönnum búsettum í Frakk- landi, hvaða íslenskar bækur eru fáanlegar á frönsku, smáauglýs- ingar og margt fleira. Ekki læt- ur félagið þar við sitja við kynn- ingu landsins. Nýlega var haldin kvikmyndasýning, og fyrsta mynd á dagskrá var mynd Os- valds Knudsen SURTSEY, fræð- andi og stórbrotin og sannur gullmoli við kynningu landsins. Sömu sögu get ég ekki sagt um seinni myndina, Land íss og elds. Sannarlega ekki barn síns tíma og ekki nothæf við kynningu landsins, gefur óljósa og eigin- lega ranga mynd af íslandi i dag. Væri ekki hægt að gera kvik- mynd um ísland eins og það er í dag, og senda í öll íslensk sendi- ráð erlendis? (Sendiráðið lánaöi þessar tvær myndir sem félagið sýndi.) Ef þetta væri hægt þá myndi nýja mynd ekki ryðga niðri í skúffu í sendiráði íslands í Par- ís, því mjög mikill áhugi er á íslandi í Frakklandi í dag. Forseti okkar, frú Vigdís Finnbogadóttir, á þar stóran hlut að máli eftir komu sína hingað, ullin, fiskurinn, eldgosin og síðast en ekki síst spurnir um okkar einstaka hreina og góða loft, í þessum mengunarheimi. Eftir kvikmyndasýninguna fóru margir erlendir gestir og Is- lendingar á vorblót sem íslenskir námsmenn stóðu fyrir. Fyrirhugað var að halda þorrablót, en þar sem húsnæði fannst ekki i tíma endaði þetta í vorblóti, en með öllu tilheyrandi eins og góðu þorrabióti sæmir. Hangikjöt, slátur, hrútspungar og brennivín og fleira íslenskt góðmeti var á boðstólum, og allt var borðað upp til agna því helmingi fleiri komu en búist var við, og ekki voru Frakkar í mikl- um minnihluta við að borða hangikjötið og uppstúfinn og ekki bar á neinni matvendni. Hljómsveitin Ásdís og hrúts- pungarnir sungu og léku fyrir dansi gömul og góð íslensk lög eins og „Komdu í kvöld út í kof- ann til mín“ og „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“. Dansað var fram eftir nóttu og hef ég sjaldan farið á vel- heppnaðri skemmtun í París ... Heimsreisa III endurtekin Brottför 11. október 3 vikur Ævintýraferö Útsýnar KENYA HJARTA AFRIKU Flogiö beint til Nairobi um London. Þessi safarihöfuöborg heimsins í um 2.000 m hæö er meö fögrum byggingum, litríkum gróöri og loftslagi, sem er meö því dásamlegasta á jöröinni. Spennandi safariferö um frægustu villidýrasvæöi Af- ríku — Amboseli og Tsavo, niöur aö strönd Indlandshafsins. ÆVINTÝRAFERÐIR ÚTSÝNAR Á FJAR- ^MIV I LÆGA STAÐI — FERÐIR í ALGJÖRUM WBk&i i SÉRFLOKKI Land óviðjafnanlegrar____________ náttúrufeguröar og fjölbreytni við miöbaug jaröar Gisting: Nairobi: — Hótel Intercontinental Mombasa: Hótel Diani Reef VERÐ KR. 69.500 Feróaáætlun: Nairobi — 2 dagar — gisting og morgun- verður Safari — 5 dagar um Amboseli og Tsavo — fullt faeöi. Mombasa — 12 dagar — hálft fæöi Aukagjald f. einbýli kr. 9.215 Viðbótarvika á Diani Reef kr. 9.300 (meö hálfu fæðil HEIMSREISU- KLÚBBURINN Feróaskrifstofan UTSÝN MT. Kilimanjaro Tanzania OMBASA OIANI r Austurstræti 17, símar 26611 — 23510

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.