Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. JÚNl 1985
17
*
Frá blaðamannafundinum um eiturúöun: F.v. Skúli Johnsen borgarlæknir,
Katrín Fjeldsted formaður heilbrigdisriðs, Oddur Rúnar Hjartarson fram-
kvæmdastj. Heilbrigdiseftirlits Reykjavíkursvæðis og Tryggvi Þórðarson
líffræðingur.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur:
Varar við notkun sterkra
eiturefna við garðaúðun
HEILBRIGÐISRÁÐ og Umhverfismálarád Reykjavíkur efndu í liðinni viku
til blaðamannafundar til að vekja athygli á óhóflegri úðun garða í Reykjavík
með sterkum eiturefnum.
Á fundinum kom fram að þessi
aðilar vilja einkum vara við efn-
inu Egodan Parathion 35EC, sem
sé baneitrað, en hafi til skamms
tíma verið mikið notað við úðun
garða í borginni. Notkun þess hafi
hins vegar minnkað mjög undan-
farin ár, í kjölfar mikillar um-
ræðu um skaðsemi þess, enda hafi
komið í ljós að önnur efni, sem
ekki séu eins hættuleg fólki, geri
sama gagn í baráttunni við meind-
ýr á gróðri. Einnig kom fram að
oft á tíðum láti fólk úða garða sína
að nauðsynjalausu, því margar
pöddur, sem lifa í görðum, séu
skaðlausar með öllu og ætti fólk
því að snúa sér til sérfróðra
manna, áður en ákvörðun er tekin
um úðun.
Eitt þeirra meindýra, sem miklu
tjóni valda á gróðri, er grenilús,
sem nú herjar á skóglendi sunnan
lands og austan. Vildu fundarboð-
endur koma því á framfæri að fólk
hefði samband við garðyrkju-
stjóra eða skógræktarmenn, ef
það telur sig verða vart við hana.
Fundarboðendur vildu enn
fremur vekja athygli á bæklingi,
sem gefinn var út árið 1983 og
nefnist ,Um skordýravarnir; eit-
urúðun og aðrar leiðir". Þar sé að
finna ýmsar handhægar upplýs-
ingar um þessi mál. Bæklingurinn
fæst ókeypis hjá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkursvæðisins á
Barónsstíg 47.
Stj ómunarfélagið er flutt
úr Múlanum í Naustið.
Nýja heimilisfangið er: Ánanaust 15
og nýja símanúmerið okkar er: 621066
STJÓRNUNARFÉLAG
víSLANDS s!mÍ621066M15
-Jt
Hliðið að Ölpunum
Zurich er stærsta borg í Sviss og hefur margt að bjóða ferðamönnum
Zurich er tilvalinn staður til að
heQa ferðalag um Sviss. En auk
þess að vera hliðið að Ölpunum
og hinum fögru Qallahéruðum,
er Zúrich stærsta borgin í Sviss
og vel pess virði að heimsækja
hana sérstaklega. Zúrich á sér
langa sögu. Hún var rómversk
tollgæslustöð löngu fyór Krists
g burð og þar hefur verið byggð
æ síðan. Þótt ekki sjáist nú mikil
ummerki um rómverska tímabil-
ið eru í borginni margar stór-
brotnar byggingar frá miðöldum
og í nágrenninu eru tignarlegir
kastalar. Zúrich stendur við
stærsta stöðuvatn sem er alger-
lega innan landamæra Sviss og
um það sigla kostuleg gömul
hjólaskip með ferðamenn. í
Lágmúla 7, sími 84477.
Verð frá kr. 16.771.
Arnarflug flýgur
vikulega til Zúrich í sumar.
Nánari upplýsingar hjá ferða-
skrifstofunum og á söluskrifstofu
Arnarflugs.
ARNARFLUG
borginní er mikið af vönduðum
verslunum, þar eru ekki færri en
1300 veitingahús og gisting er
allt frá yaldstæðum til lúxus-
hótela. í Zúrich eru yfir 20 söfn
af ýmsu tagi, 100 galleri', tón-
leikahöll, ópera og fjölmörg
leikhús. Zúrich er því tilvalinn
staður til að fá dálítinn forsmekk
af svissneskri menninguáðuren
haldið er af stað um Qallahéruð- ^
in fögru.