Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1985
19
sjálft
hann úti. Annars konar andi nær
yfirtökunum, illur andi, sem leiðir
afvega og veldur þjáningu, sorg og
kvöl. Þessi afvegaleiðsla illra afla,
en verum þess fullviss, að ill öfl
andstæð Guði eru til, þessi afvega-
leiðsla þeirra kemur t.d. átakan-
lega fram í því, er menn ánetjast
eiturlyfja- og áfengisneyslu, of
margir um þessa hvítasunnuhelgi
hafa lokað úti heilagan anda og
áhrif hans, vegna þess, að hinn illi
andi áfengistískunnar er boðinn
velkominn í staðinn.
Og illu andarnir geta afvegaleitt
á svo fjölmörgum öðrum sviðum.
Allt það, sem veldur því, að heil-
agur andi er útilokaður frá
mannshjartanu er af hinu illa, það
er andstætt vilja Guðs, og það
hindrar okkur í því, að njóta þess
besta og fegursta, sem lífið gefur.
Við skulum því öll kappkosta að
taka á móti gjöf heilags anda og
láta hana fá rúm í huga og hjarta.
Og þessi blessaða gjöf er alltaf til
reiðu fyrir okkur, og hún birtist í
svo mörgum myndum, og stundum
veist þú naumast af henni, eða
gerir þér naumast grein fyrir
henni.
Mundu það, að hvenær sem
bænin kemur upp í huga þinn og
þú biður Drottinn að umvefja
ástvini þína og samfylgdarmenn,
þá er heilagur andi að starfi hið
innra með þér. Hvenær sem kær-
leikurinn gagntekur huga þinn og
þú vilt fórna einhverju fyrir aðra,
þá er heilagur andi að starfi. Og
alltaf þegar þú gerir eins og sam-
viskan býður þér best að gera, þá
er heilagur andi að starfi. Og
hvenær sem þú finnur fegurðina í
náttúrunni, eins og þú hlýtur að
finna á þessum fagra vordegi, er
sólin skín svo glatt, þegar þú finn-
ur dýrð Guðs í sköpunarverkinu
gagntaka þig og lotningu fyrir líf-
inu, þá er heilagur andi að starfi.
í guðspjalli dagsins (Jóh.
14.23—31a) talar Jesús um hugg-
arann, andann heilaga, sem okkur
muni sendur verða, og hann talar
um friðinn, sem hann gefi, og að
hann sé annars eðlis en það, sem
heimurinn gefur.
Er þarna ekki slegið á strengi^
sem margir þyrftu að heyra
hljómana frá? Eru þeir ekki
margir í dag, sem vantar huggun
og frið í hjarta, margir, sem hafa
tekið á móti gjöfum heimsins og
hlotið eirðarleysi i arf?
Biðjum þess, að hinn heilagi
andi, andi huggunar og friðar,
megi gagntaka hjörtu okkar og
hinnar friðvana kynslóðar, sem
við lifum með, svo að öll börn
þessa heims eignuðust hið innra
frið i hjarta og þann helgidóm,
þar sem Jesús Kristur er konung-
ur. Amen.
Hann er trúarlífíð
Ragnar Fjalar Lárusson
„Heilagur andi á ekki
aö vera kristnum manni
óljóst hugtak, því aö
hann er trúarlífið sjálft,
eða öllu heklur: hann
skapar þaö líf, sem trúin
gefur.“
Prédikun eftir Ragnar Fjalar Lárusson
í Hallgrímskirkju á hvítasunnudag
Prédikun flutt í Hallgrímskirkju á
hvítasunnudag 1985 af sr. Ragnari
Fjalari Lárussyni.
Gleðilega hátíð. Já, það er hátíð
í dag, ein af þremur stórhátíðum
kirkjuársins. En þó er ef til vill
ekki eins mikil hátíð í huga, eins
og á páskamorgun eða jólanótt,
þessi þriðja hátíð kirkjunnar á
ekki sama áhrifavald i hugum
manna og hinar tvær. Ef til vill er
það af því, að tilefnið er óljósara.
Fæðing er auðskilin, hana boða
jólin, jafnvel dauði, upprisa og ei-
líft líf er eitthvað, sem við getum
gert okkur í hugarlund, en heilag-
ur andi, það er eitthvað fjarri
skilningi okkar, eitthvað óljóst,
eitthvað, sem hönd verður naum-
ast fest á.
En við ættum þó að vita og geta
skilið, að hvítasunnan er fæð-
ingarhátíð kristinnar kirkju.
Frásagnir Biblíunnar greina frá
því hvernig kirkjan varð til. Og
þar var heilagur andi að verki.
Á þessu er gefin lýsing í öðrum
kapítula Postulasögunnar: Þá er
upp var runninn hvítasunnudagur
voru postularnir allir saman
komnir. Varð þá skyndilega gnýr
af himni eins og aðdynjanda
sterkviðris og fyllti allt húsið, þar
sem þeir voru. Þeim birtust tung-
ur, eins og af eldi væru, er hvísluð-
ust og settust á hvern og einn
þeirra. Þeir fylltust allir heilögum
anda og tóku að tala öðrum tung-
um, eins og andinn gaf þeim að
mæla. Er þetta hljóð heyrðist
dreif að fjölda manns. Þeim brá
mjög við því að hver og einn
heyrði postulana mæla á sína
tungu, þó að þeir væru af ýinsu
þjóðerni. Og þeir sögðu: Vér heyr-
um þá tala á vorum tungum um
stórmerki Guðs. Og þá steig Pétur
fram og þeir ellefu og hann hóf
upp rödd sína og talaði til þeirra.
Og það var mikil ræða sem hann
flutti, ræða flutt af eldmóði, ræða
flutt með heilögum anda. Og það
svaf enginn undir þeirri ræðu.
Hún barst frá manni til manns,
frá hjarta til hjarta. En aðalinn-
tak hennar var þetta: „Með ör-
uggri vissu viti öll Israelsætt, að
þennan Jesúm, sem þér krossfest-
uð, hefur Guð gert að Drottni og
Kristi. Gjörið iðrun og látið skír-
ast hver og einn í nafni Jesú
Krists til fyrirgefningar synda yð-
ar, og þá munuð þér öðlast að gjöf
heilagan anda og látið frelsast frá
þessari rangsnúnu kynslóð." En
þeir, sem veittu viðtöku orði hans
voru skírðir, og þann dag bættust
við um þrjú þúsund sálir.
Þannig er í fáum orðum sagt frá
stofnun kristinnar kirkju, en orðið
kirkja merkir nánast það, sem
Drottinn á. Já, Drottinn átti huga
og hjörtu þessa hóps, sem gekk
honum á hönd hinn fyrsta hvíta-
sunnudag.
Pétur sagði í ræðu sinni: Gjörið
iðrun. Já, við þurfum öll að beygja
kné okkar fyrir Drottni, rétta
fram okkar titrandi og tómu hönd
og biðja hann um hjálp, þá kemur
hann, andinn heilagi og vinnur
sitt verk í hjörtum okkar. Heilagur
andi er andi Guðs, sem hefir áhrif á
hjörtu mannanna.
Eitt skáldið okkar segir f fögr-
um sálmi:
Þinn andi Guð, mitt helgi og betri
hjarta/ og hreinsi það frá allri
villu og synd/ og höll þar inni
byggi dýra og bjarta,/ er'blíða sí-
fellt geyrai Jesú mynd.
Heilagur andi á því ekki að vera
kristnum manni óljóst hugtak, því
að hann er trúarlífið sjálft, eða
öllu heldur: hann skapar það líf,
sem trúin gefur. Hann á að gagn-
taka hjarta þitt og það hefir
breytingu í för með sér hið innra
hjá þér. Hann tekur á brott eig-
ingirnina, en skilur eftir hjá þér
kærleika, skilning og góðvild til
samferðamanna þinna, og lof-
gjörðin til Drottins fyllir hjarta
þitt, Jesúmyndin á að vera í önd-
vegi í musteri hjarta þíns.
Eða átt þú ekki einhverja trú-
arreynslu? Bæn beðna á erfiðri
stundu, þegar svartnættið grúfði
yfir og fokið virtist í flest skjól?
En svo kom bænheyrslan eins og
hinn bjartasti vormorgunn með yl
og líf og nægtir. Fyllti þá ekki
lofgjörðin til Drottins hugann?
Fór þá ekki andinn helgi eins og
eldur um hugskot þitt og ómarnir
liðu til hæða? „Ó, hvað þú, Guð,
ert góður, þín gæsla og miskunn
aldrei dvin."
Eða höfum við of oft vísað hon-
um frá, hinum heilaga anda Guðs?
Og lokað hugskotinu fyrir honum?
Pétur postuli talaði í hvíta-
sunnuræðu sinni um rangsnúna
kynslóð. Og ég spyr: Hafa ekki
slíkir menn verið til á öllum tím-
um? Og eru þeir ekki máttugir í
dag?
I sjálfu sér vil ég ekki dæma
nokkurn mann, og víst er um það,
að allir menn eiga eitthvað gott i
hjarta sinu, og hæfileika að ein-
hverju leyti til að taka á móti heil-
ögum anda, en það eru svo margir,
sem ekki vilja gera það og loka
l&j&ðg I ' :
mmmmm
Duglegir smábílar
frá PEUGEOT
205 GL og GR
Vélar 11243 - 50 HA og 13603 - 60 HA
Framhjóladrifinn
Sjálfstæð fjöðrun
Tvöfalt hemlakerfi
4 og 5 gírar og samhæfðir
Samba LS
Vél 11243 — 50 HA
Framhjóladrifinn
Sjálfstæð fjöðrun
Tvöfalt hemlakerfi
4 og 5 gírar og gamhæfðir
Sérstök aksturshæfni, sterkir, sparneytnir,
léttir og liprir í bæjarakstri og á þjóðvegum
Umboð á Akureyri:
Víkingur s.f.
F’uruvöllum 11
sími 21670
HAFRAFELL
Vagnhöfða 7
símar 685211 og 685537
f'- *