Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR H. JÚNÍ 1985
Átak í byggingamál-
um aldraðra á ísafirði
ísanrdi, 23. maí.
„ÉG VIL að ísafjörður nái aftur forystu í öldrunarmálum á íslandi eins og
hann hafði 1920 þegar hér var fyrst á landinu stofnað til sérstakt heimilis
fyrir aldraða og aðra þá sem ekki gátu sjálfir séð fyrir sér.
Það var Hjálpræðisherinn sem í upphafi samdi við bteinn um að reka
heimili fyrir þetta fólk, en 1925 þegar nýtt og glæsilegt sjúkrahús tók til
starfa á ísafirði fluttist fólkið í gamla sjúkrahúsið. Það hefur síðan verið
elliheimili og hafa ekki miklar breytingar verið gerðar á því síðan. Það er svo
ekki fyrr en 1982 að Hlíf (íbúðir aldraðra) tekur til starfa á ísafirði að
einhver breyting verður á öldrunarþjónustunni í bænum. Þar eru 30 íbúðir
með 40 íbúum, en 30 einstaklingar eru nú á biðlista eftir ibúð þar, svo áfram
verður að halda“, sagði Halldór Guðmundsson forstöðumaður Hlífar í viðtali
við fréttaritara Morgunblaðsins.
Nú er búið að stofna bygg-
ingarsamvinnufélagið Hlíf til að
byggja 42 séreignaríbúðir aldr-
aðra við hlið núverandi Hlífar á
Torfnesi. Þeir sem eiga rétt til
kaupa á íbúðum eru einstaklingar
og hjón, bæði ísfirðingar og
brottfluttir 60 ára og eldri, ísa-
fjarðarkaupstaður og hrepparnir
við ísafjarðardjúp. Auk þess bygg-
ir ísafjarðarkaupstaður fyrir eig-
in reikning þjónustumiðstöð sem
verður í tengibyggingu milli hús-
anna og í kjallara nýja hússins.
Allar íbúðirnar eru tveggja her-
bergja með eldhúsi, baðherbergi
og geymslu, auk annarrar geymslu
í kjallara eða risi. íbúðirnar eru af
fjórum stærðum, 55, 65, 70 og 90
fm., og kosta þær 1591—2111 þús-
undir króna fullgerðar miðað við
byggingarvísitölu i apríl sl. Byrjað
verður á smíðinni í sumar en
Séætlað er að þeim verði skilað
fullfrágengnum í sept.—okt. 1987.
Helmingur kaupverðsins greið-
ist á byggingartimanum þó þannig
að meirihlutinn kemur á seinni
hluta tímans þannig að fólk geti
selt sínar húseignir skömmu áður
en flutt er inn. Hinn helmingurinn
greiðist eftir ósk eigenda, stað-
greiðslu eða lána til 31 árs afborg-
unarlaust fyrstu tvö árin. Er það
að þakka nýrri tegund lána sem
Húsnæðismálastjórn er nú að
byrja að veita og hefur fyrsta út-
hlutunin þegar verið ákveðin til
þessara framkvæmda.
Þetta er í samræmi við marg-
umtalaða húsnýtingarstefnu sem
stjórnmálamenn hafa mikið talað
um undanfarin ár og á að vera
m.a. til þess að gera fólki kleift að
kaupa eldri íbúðir með svipuðum
lánum frá Húsnæðismáiastjórn og
þegar um nýbyggingar er að ræða.
„Þessi stefna hefur gríðarlega
mikið gildi bæði fyrir einstaklinga
og bæjarfélög," sagði Halldór.
„Með tilkomu þessara 42 íbúða má
reikna með að svipað magn íbúða
losni annars staðar og þá dregur
mjög úr nauðsyn á byggingu nýrra
Hjónin Helena Jóhannsdóttir og Jóhannes Jónsson una hag sínum vel í íbúð
sinni í Hlíf.
byggðarhverfa og ungt fólk á
betra með að byrja með kaup á
eldri íbúðum en að byggja. Þá hef-
ur einnig verið mikil eftirspurn
eftir íbúðum á ísafirði undanfarin
ár og gæti þessi framkvæmd því
átt þátt í fjölgun bæjarbúa."
Ákveðið er að íbúðaverð fylgi al-
mennri verðlagsþróun á fasteigna-
markaði þannig að fjárfesting ein-
staklinganna ætti ekki að rýrna.
„Ég lagði á það áherslu í upp-
hafi starfs míns, að íbúarnir
tækju virkan þátt í að gæta örygg-
is hvors annars, þannig að íbúar
hverra fjögurra íbúða hafa dagl-
egt samband og hefur þetta reynst
mjög vel. Því er nýja byggingin
hönnuð þannig að gott er að koma
þessu við. Þó er þess gætt að
einkalíf hvers sé virt og óþarfa
átroðsla af hendi annarra er ekki
til staðar.
Hagkvæmni þessa rekstrar
fyrir heildina er ekki síður mikil.
Þarna getur fólk búið mikið leng-
ur óháð öðrum og á eigin ábyrgð,
en vistun á hjúkrunarstofnunum
aldraðra mun kosta samfélagið
um 20—25 þúsund krónur á mann
á mánuði.
Ég legg mesta áherslu á þá
stefnubreytingu sem verður með
þessum framkvæmdum. Áður
þótti það meginmálið að sjá fyrir
þeim öldruðu og helst koma þeim
sem kyrfilegast fyrir. Nú leggjum
við megináhersluna á að fólk sé
sem allra lengst sjálfbjarga. Að
það haldi áfram að vera fullgildir
borgarar þar sem með skipulagn-
ingu og samstarfi hafi verið komið
á þeirri þjónustu sem hver og einn
þarf á að halda þegar hann óskar
eftir sjálfur. Mér virðist að með
blokkarforminu hafi verið komist
hjá þeirri óheppilegu einangrun
sem vill verða í sérbýli eða í rað-
húsum sem sums staðar hafa verið
reist fyrir aldraða. Auk þess verð-
ur reksturinn að mörgu leiti ódýr-
ari en það skiptir að sjálfsögðu
miklu máli þegar hver þarf að
borga fyrir sig.
í tengibyggingunni verður
margskonar þjónusta, s.s. verslun
matsalur og býtibúr/eldhús (en
allur tilbúinn matur kemur frá
eldhúsi nýja sjúkrahússins hand-
an götunnar), þvottahús, snyrti-
24 stúdentar
útskrifaðir
á Akranesi
Akraaesi, 6. júní.
SKÓLASLIT FA á vorönn 1985 fóru
fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu
laugardaginn 1. júní. Þá voru
brautskráðir 52 nemendur fram-
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHUSTORGI
haldsskólans og 87 nemendur með
grunnskólapróf 9. bekkjar. Flestir
þeirra er brautskráðust úr fram-
haldsskólanum luku prófum á
tæknisviði eða alls 24. 24 nemendur
luku stúdentsprófi.
Á haustönn voru 510 nemendur
við nám í dagskóla en 90 i öld-
ungadeild en þrír nemendur
brautskráðust frá henni að þessu
sinni. Nokkru færri stunduðu nám
á vorönn enda hafði talsverð rösk-
un orðið á skólastarfi í lok haust-
annar vegna verkfalls BSRB.
Röskun varð einnig í mars vegna
uppsagna kennara í HÍK. Skóla-
starf var meira eða minna lamað í
um 6 vikur vegna kjaradeilna síð-
astliðinn vetur. Kennslutap var að
mestu bætt upp með kennslu á frí-
dögum, lengingu skólaárs og því
að fella niður opna viku á vorönn.
Alls störfuðu 39 kennarar við
skólann á haustönn en 43 á vor-
önn.
f máli Þóris Ólafssonar skóla-
meistara kom m.a. fram að unnið
er að skipulagningu nýrra náms-
brauta við skólann í rafeinda-
virkjun og fataiðn. Viðræður á
milli sveitarfélaga á Vesturlandi
um stofnun Pjölbrautaskóla Vest-
urlands standa nú sem hæst og
hafa nokkur sveitafélög þegar
samþykkt samningsdrög sem
liggja nú fyrir. Fram kom að verk-
efni á sviði byggingarmála eru
mörg og aðkallandi. Næsta við-
fangsefni er að Ijúka heimavistar-
framkvæmd, en 16 2ja manna her-
Þórir Ólafsson, skólameistari, ávarpar nýstúdenta, aðra nemendur, kennara og aðra viðstadda.
bergi í nýrri heimavist voru tekin
í notkun síðastliðið haust. Þörf
fyrir aukið kennsluhúsnæði er
orðin brýn og skrifstofuaðstaða
skólans svo og aðstaða til sam-
komuhalds er alls ófullnægjandi.'
Skólameistari gat þess í ræðu
sinni að leikklúbbur skólans héldi
nú á ári æskunnar til Finnlands
með sýningu á leikritinu Græn-
jöxlum eftir Pétur Gunnarsson
undir leikstjórn Sigríðar Hagalín.
Um síðustu áramót lét Ólafur
Ásgeirsson af störfum skólameist-
ara við Fjölbrautaskólann á Akra-
nesi en hann hafði gegnt því starfi
frá stofnun skólans árið 1977 og
átt stóran þátt i því að byggja upp
skóla á nýjum grunni á Ákranesi.
Viðurkenningar fyrir bestan
árangur á stúdentsprófi að þessu
sinni hlaut Guðrún Garðarsdóttir,
stúdent á viðskiptabraut. Einnig
voru veittar nokkrar viðurkenn-
ingar fyrir góðan árangur í ein-
stökum greinum. Regína Eiríks-
dóttir hlaut verðlaun úr minn-
ingarsjóði Elínar írisar Jónas-
dóttur fyrir góðan árangur í rit-
gerðarsmíð. Guðrún Elsa Gunn-
arsdóttir fékk viðurkenningu skól-
ans fyrir gott framlag í þágu fé-
lagslífs nemenda á skólaárinu en
Guðrún var formaður leiklist-
arklúbbs nemendafélags FA.
Kristinn Reimarsson nýstúdent
flutti ávarp fyrir hönd útskrift-
arnema.
Kór FA undir stjórn Jensínu
Waage söng nokkur lög við at-
höfnina er lauk á því að viðstaddir
tóku undir í laginu ísland ögrum
skorið. Var þar með lokið 8. skóla-
slitum FA að vori.
J.G.