Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 25

Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR U. JÚNÍ1985 25 inn af sparifé innlánsstofnana er í eigu launþega eins og kunnugt er. Hins vegar er bönkum, spari- sjóðum og lífeyrissjóðum vor- kunnarlaust að sýna lántakendum lipurð þegar til þeirra er leitað og ekki síst við jafn erfiðar aðstæður og efnahagsleg skakkaföll síðustu ára hafa skapað húsbyggjendum og íbúðarkaupendum. Framlag skattgreiðenda En lánamál húsbyggjenda og ibúðarkaupenda eru flóknari en hér hefur verið lýst. Útlán Bygg- ingarsjóðs ríkisins eru reist á fe, sem kemur úr þremur áttum, eins og nú standa sakir. Fyrst er að telja fé það, sem lífeyrissjóðir lána sjóðnum og í annan stað ber að telja erlent lánsfé, sem nemur rúmlega hálfum milljarði króna í ár. Þetta fé er lánað út með niður- greiddum vöxtum, enda eru hæstu vextir á lánum Byggingarsjóðs 3,5% á meðan sjóðurinn greiðir 6—10% vexti af því lánsfé, sem hann tekur vegna starfsemi sinnar. Skattgreiðendur borga mismuninn, sem líta verður á sem beinan styrk til lántakenda. Þriðja stoðin undir útlánum Bygg- ingarsjóðs er sérstakt framlag ríkissjóðs. Skattgreiðendur styrkja sjóðinn á þennan hátt með 622 milljóna króna framlagi af fjárlögum þessa árs, en hér er um þreföldun að ræða frá fyrra ári er framlagið nam 200 milljónum króna. Auk framlags af fjárlögum er gert ráð fyrir, að á árinu verði aflað viðbótarfjármagns í Bygg- ingarsjóð vegna þess fjárskorts, sem hinn sérstaki lánaflokkur vegna greiðsluerfiðleika og greiðslujöfnunin bakar sjóðnum. Hér er um að ræða fjárhæð, sem kemur til með að nema nálega 400 milljónum króna ef að líkum læt- ur, og er ætlað að koma í veg fyrir að fyrrnefnd fyrirgreiðsla til þeirra, sem þegar hafa ráðist í að eignast húsnæði, lami getu sjóðs- ins til að lána nýjum umsækjend- um. Og vel að merkja, þessi fjár- öflun stendur ekki i neinu sam- bandi við endurgreiðslukröfu þá á samfélagið, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. Ef verða ætti við henni þyrfti að afla 5—6 sinnum meira fjármagns. Þann reikning yrðu skattgreið- endur að borga nema menn vilji ganga beint að sparifjáreigendum og ellilífeyrisþegum, því að öðrum er ekki til að dreifa. Séreignarstefnan Verkefnin framundan í húsnæð- ismálum eru mörg og brýn. Nefna má breytta útlánastefnu Bygg- ingarsjóðs ríkisins, aukna sam- keppni í byggingariðnaði til að lækka byggingarkostnað og loks lækkun útborgunarhlutfalls í fast- eignaviðskiptum. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um húsnæð- issparnaðarreikninga í bönkum og sparisjóðum, sem felur í sér mjög merka nýjung. Einskis má láta ófreistað að koma fram séreign- arstefnunni í húsnæðismálum, enda vilja flestir Islendingar njóta þess öryggis og sjálfstæðis, sem fylgir því að búa í eigin húsnæði. Höfundur er hagfræðingur. Flutningsmenn og fleiri full- trúar minnihlutaflokkanna, lögðu á það áherslu að ekki væri verið að drepa málinu á dreif. Þörf væri skjótra úrbóta og besta leiðin til þess væri að skipa nú þegar samstarfsnefnd borgarfulltrúa, fóstra og for- eldra, eins og gert væri ráð fyrir í tillögunni. Með því að vísa málinu til borgarráðs væri verið að reyna að svæfa það. Eftir alllangar umræður var gengið til atkvæða um tillögu borgarstjóra. Var hún sam- þykkt, eins og áður er fram komið, að viðhöfðu nafnakalli, með 12 atkvæðum sjálfstæð- ismanna gegn 8 atkvæðum full- trúa minnihlutaflokkanna, annarra en Sigurðar E. Guð- mundssonar, fulltrúa Alþýðu- flokksins, sem sat hjá. V Afgreiöslutimar í xvi J í sumar Eiöistorgi 11: Ármúla 1a: 1 Mánud. kl. 9.00—18.00 Þriöjud. kl. 9.00—18.00 Miðvikud. ki. 9.00—18.00 Fimmtud. kl. 9.00—19.00 Föstud. kl. 9.00—21.00 Laugard. Lokaö Vorumarkaðurinnhl. Armu;a 1a, s 686111. Vorumarkaðurinn hf. Liöislorgi 11. s. 622200. Mánud. kl. I o o o> -19.00 ÞriÖjud. kl. co o o I 19.00 Miðvikud. kl. I o o o> -19.00 Fimmtud. kl. 9.00— 20.00 Föstud. kl. <0 • o o I -21.00 | Laugard. Lokaö Ath. Bakaríið er opið laugardag kl. 10.00—16.00. Lokað sunnudaga. Dýr eða ódýr? Við vitum fullvel að Opel er ekki ódýrasti bíllinn á markaðinum. Eða hvað? Hvað er dýrt og hvað er ódýrt þegar um fasteign er að ræða? Hvor fasteignin er til dæmis ódýrari - vel með farin sérhæð á góðum stað í vesturbænum á fjórar milljónir eða þriggja herbergja íbúð ( úthverfi á þrjár milljónir? Svarið liggur ekki ( augum uppi. Ibúðarverðið er nefnilega ekki óskeikull mælikvarði. Pað segir þér ekki hver viðhaldskostnaður verður. Pað segir þér Iftið um endursöluverð og nýtingu - um það hvað húseignin kostar þig þegar upp er staðið. Nákvæmlega það sama gildir um bíla. Þegar OPEL var valinn bíll ársins í Evrópu fyrir árið 1985 var niðurstaða dómaranna einmitt sú að hlutfall gæða OPEL bílsins miðað við verð hans væri hagstæðara en hjá öðrum bílum. Með öðrum orðum - þeir komust að þv( að OPEL væri ( raun ódýrasti bíll sem völ er á. Við vissum að OPEL er ekki ódýrasti bíllinn á markaðinum. En nú veist þú jafn vel og við að OPEL er væntanlega sá bíll sem þú gerir bestu kaupin í. Og svo er líka alveg frábært að keyra hann! BÍLL ÁRSINS 1985 BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.