Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 27

Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR11. JÚNÍ1985 verið í huga sjóslysið sem varð 7. september 1983, þegar bræðurn- ir Þórður og Sigfús Markússynir fórust. Vigfús segist einnig vilja minnast með þakklæti forystu- manna Slysavarnafélags Eyrar- bakka, þeirra Guðlaugs Eggerts- sonar, Gróu Jakobsdóttur og Gests Sigfússonar fyrir fórnfúst starf og áhuga að slysavarna- málum á Eyrarbakka. „Megi slíkur áhugi og ósérhlífni jafnan verða fyrir hendi meðal Eyr- bekkinga og þjóðarinnar allrar," segir Vigfús í gjafabréfi sínu til björgunarsveitarinnar. Styttan stendur fram undan Einarshöfn á lóð Vesturbúðar við hlið líkans af húsum Lefolii- verslunarinnar en Vigfús gerði það líkan einnig. Vigfús hefur haldið skrá yfir alla vélbáta sem gerðir hafa verið út frá Eyrar- bakka og í skrá hans kemur m.a. fram, að um 30 manns hafa far- ist á vélbátum frá Eyrarbakka, þar af tveir bátar með fullri áhöfn. Vigfús sagði hugmyndina að styttunni hafa vaknað í fyrra- sumar. „Mig langaði að gera eft- irlíkingu af sjómanni í skinn- klæðum, þessum gömlu sjóklæð- um. Ég man eftir þessu, þó ég færi aldrei í þau sjálfur," sagði Vigfús í stuttu samtali um tilurð styttunnar. —Sig. Jons. Frá friðar- hreyfingu íslenskra kvenna Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi fréttatilkynning frá Frið- arhreyfingu íslenskra kvenna: Landsfundur Friðarhreyfingar íslenskra kvenna var haldinn laugardaginn 1. júní í Hamra- görðum í Reykjavík. Á fundinum var m.a. samþykkt eftirfarandi ályktun: „Landsfundur Friðarhreyfingar íslenskra kvenna, haldinn 1. júní 1985, fagnar þeirri samstöðu sem náðst hefur á Alþingi um afstöðu fslendinga til afvopnunarmála. Sérstaklega fagnar fundurinn þeirri afstöðu Alþingis að aldrei skuli leyfð kjarnorkuvopn á fs- landi. Fundurinn vekur athygli á þeirri undirskriftasöfnun ís- lenskra kvenna undir friðarávarp, sem fram fer nú í júní. Heitir fundurinn á íslenskar konur að taka þessu vel, sýna hvers þær eru megnugar og hver sé þeirra vilji í þessu brýna hagsmunamáli alls mannkyns. Markmiðið er að fá undirskrift- ir allra íslenskra kvenna, 18 ára og eldri, þó yngri konur séu að sjálf- sögðu velkomnar með. Listarnir verða afhentir á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi i júlí og afrit sent ríkisstjórn fs- lands.“ LAITU ÞAÐ F.KKI HENDA ÞIG AÐ SJÁ EKKISKÓGINN rvnm xuiÁlVf r i tvltv 1 IvJ/VlVi - AÐALATRIÐIÐ ER, AÐ FLUGLEIÐIR BJÓÐA SÉRSTÖK FARGJÖLD Á VILDARKJÖRUM FYRIR FJÖLSKYLDUR, UNGA, ALDNA OG ÖRYRKJA. PU SKALT KANNA VEL HVAÐ FLUGLEIÐIR GETA BOÐIÐ ÞÉR. Fjölskyldufargjald Forsvarsmaður greiðir fullt fargjald. Maki og böm á aldrinum 12-20 ára greiða 50%, en 2-11 ára börn ein- ungis 25%. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands, í allt að 30 daga. APEX Veitturer40% afsláttur af fullu fargjaldi. Börn innan 12 ára aldurs greiða helmingi minna. Bóka þarf með 7 daga fyrirvara. Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands. Gildistími 21 dagur. 12-18 ára fá 30% afslátt af fullu fargjaldi. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða 1. maí til 10. júnf og 20. ágúst til 30. september. þeim sem kjósa frekar að fljúga umhverfis landið en aka hringveginn. Viðkomustaðir eru Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir, Hornafjörður, Reykjavík. Verðið er ákveðið á hverju vori. - Gildir á tímabilinu 1. maí til 30. september, í 30 daga lengst. Aldraöir Aldraðir fá 50% afslátt af fullu fargjaldi þriðjudaga, miðvikudaga og laugardaga. - Gildir til allra áfanga- staða innanlands, í allt að 60 daga. Þeir sem eru 75% öryrkjar eða meira fá 25% afslátt af fullu fargjaldi. Framvísa þarf öryrkjaskírteini. - Gildir til allra áfangastaða innanlands alla daga vikunn- ar, nema föstudaga og sunnudaga. HOPP Óbókaðir farþegar eiga kost á 50% fargjaldi á leiðinni Reykjavík - Akureyri - Reykjavík, þegar sæti eru laus. Taka þarf afgreiðslunúmer á flugvelli klukkustund fyrir brottför. - Gildir til Akureyrar á þriðjUdags-, fimmtu- dags- og laugardagskvöldum. Frá Akureyri á mánu- dags-, miðvikudags- og föstudagsmorgnum. mmm* Sérstök fargjöld eru í boði fyrir farþega á leið í eða úr millilandaflugi. Fargjöldin eru mismunandi, eftir eðli farseðilsins í millilandaflugi, allt að því að vera ókeypis. Einnig eru í boði sérstök fargjöld fyrir þá sem vilja fljúga um Reykjavfk milli staða innanlands. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands árið um kring. Gildistími mismunandi eftir tegund fargjalds Námsmenn á aidrinum 12-26 ára fá 25% afslátt gegn framvísun skólaskírteinis. Gildir á milli lögheimilis og skóla á tímabilinu 1. septembertil 31. maí, ogáöllum leiðum innanlands frá 1. júní til 31. ágúst. ÞETTA ER EKKI FRUMSKÓGUR, HELDUR YFTRLIT UM VÍÐTÆKA WÓNUSTU FLUGLEIÐA INNANLANDS FLUGLEIÐIR Nú eru þættir nr. 9 og 10 komnir á myndbandaleigur um land allt Ladda og Strumpunum bregst ekki bogalistin frekar en á fyrstu átta þáttunum. Emkarét.uráDre,.,ng Strumparnir tala íslensku við börn á öllum aldri. OFJ/fh _______ Góöa skemmtun. ^RÍ/ *Uinofhr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.