Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985 m Davíð með laxinn sinn, 9 punda hrygnu. pé |§i* - *'*■ Morgunblaðið/OI.K.Mag. 3 úr Elliðaánum fyrir hádegið Davíð Oddsson borgarstjóri fékk einn lax i Sjávarfossinum, 9 punda hrygnu, á maðk í gær- morgun, nánar tiltekið klukkan tvær mínútur yfir sjö. Davíð missti annan fisk og Haukur Pálmarsson rafmagnsstjóri einnig og framan af morgninum var það það eina sem veiðimenn gátu státað af í aflabrögðum. Síðla morguns sýndu þeir þau hyggindi að leita laxins ofan teljara, enda höfðu 90 laxar „skráð“ sig í kistunni og voru einhvers staðar þar efra. Hauk- ur fann nokkra og veiddi tvo, 7 og 8 punda, í Þrepunum. Tals- verður lax er genginn í árnar og kom nokkuð á óvart hversu fáir laxar veiddust i opnuninni að þessu sinni með hliðsjón af því. Minkur hefur verið að spóka sig að kvöldlagi, synt um Breiðuna fyrir neðan gömlu brú og laxar hafa sést forða sér hver um ann- an þveran undan þeim vágesti. Þá hafa vakið athygli nokkrir hoplaxar sem hafa verið heldur seinir á sér niður úr ánni eftir að hafa sýnt það þrek að lifa vetur- inn af. Þeir hafa haldið til við teljaragrindina síðustu vikurn- Jón Sveinsson á harðahlaupum ásamt aðstoðarmanni á eftir sprækum laxi í Kjósinni. Morgun blaðiö/gg. ar, það er ekkert til ráða fyrir þá, lengra komast þeir ekki, þökk sé mannshöndinni. Sýnist lítið verk að ná þessum löxum og sleppa þeim niður fyrir grind, en verði ekkert að gert munu þessir þrekmiklu laxar bera beinin þarna. Þokkalegt í Kjósinni „Þetta hefði svo sem getað gengið betur ef skoðað er í heild, en verður samt að teljast ágætt. Það komu 9 laxar á land fyrir hádegið, allir 8—12 punda utan einn 14 punda sem ég veiddi sjálfur frammi f Pokafossi. Hann var með halalús þótt langt væri kominn. Ég sá eitthvað af fiski þarna í Fossinum, en varð ekki meira var. Þá veiddist líka einn lax í Bugðu, Garðar H. Svavarsson veiddi hann á flugu,“ sagði Karl Björnsson i veiðihús- inu i Kjósinni í gærdag. Veiðimenn sáu nokkuð af laxi, mest niður frá Laxfossi og þar veiddust flestir laxarnir. Ymsir töldu að betur hefði getað gengið ef ekki hefði verið kalt um nótt- ina og um morguninn. Sæmilegt vatn er i ánni, ekki mjög lftið eins og viða, ekki þannig að veiðimenn telji laxinn setja slfkt fyrir sig. Hallgrímur Dalberg með tvo væna úr Laxfossinum sem sést í baksýn. Arni Þorvaldarson með tvo fallega laxa úr Laxá I Kjós. „Ekki nógu margir“ í Laxá í Þing. „Ég kíkti niður á Bjarg til þeirra og skoðaði aflann," sagði Þórður Pétursson leiðsögumaður og veiðivörður við Laxá í Aðaldal í samtali við Mbl. í gær og bætti síðan við: „Nei, það var ekki mik- ill afli, þeir voru ekki nógu margir laxarnir, en betra þó en ekki neitt. Þeir fengu 5 laxa fyrir hádegið, 7—11 punda. Allt grá- lúsugir fiskar. Þeir fengu einn á Breiðunni, einn í Miðfossi og hina í Kistukvísl. Þeir misstu auk þess tvo fiska í Kvíslinni og urðu tveggja annarra varir.“ Þórður sagði að lax hefði sést i Bjargstreng fyrir nokkru og væri eigi óhugsandi að lax væri kominn eitthvað fram í ána. Veitt var á eina stöng á Mjó- sundum og varð hún eigi laxa vör, hins vegar veiddust þar 9 fallegar bleikjur. Þórður sagði ána með allra minnsta móti, „enda snjóaði aldrei neitt í vet- ur“. Veiði er einnig hafin á sil- ungssvæðunum i Laxárdal og í Mývatnssveit. Þórður sagðist hafa heyrt góðar fréttir af fyrr- nefnda svæðinu, hitt tvo kappa sem höfðu veitt 40 væna urriða frá því eftir hádegi á föstudag og fram yfir helgi. Einnig höfðu veiðst 12 bleikjur, upp í 3 pund hver, en það er óvenjulegt á þessum slóðum. Dauft í Borgarfirði Léleg veiði hefur verið í Norð- urá svo ekki sé meira sagt, þar voru á hádegi í gær komnir um 25 laxar á land og hafði hópur- inn sem lauk veiðum varla séð fisk og voru þó á ferðinni þaul- vanar aflaklær og má nefna þá feðga Kristján Sigurmundsson og Snæbjörn Kristjánsson. Halldór Vilhjálmsson í veiði- húsinu við Þverá sagði 47 laxa vera komna á land er Mbl. sló á þráðinn í gærdag, veiðin hefði verið róleg en þó sæist svolítið af fiski hér og þar og lúsugir fiskar veiddust jafnt og þétt. Mest hafa Kirkjustrengur og Kaðalstaða- hylur gefið. Stærsti laxinn var 18 pund en í fyrrakvöld var einn 16 punda dreginn á þurrt. Lax- inn í Þverá er rokvænn. Þá sagði Halldór 7 laxa hafa verið komna á land úr Kjarrá í fyrrakvöld og sæju menn heldur lítið líf { ánni. Farandsýning hjá Pósti og síma Blönduós: Nýtt skip bættist í flotann Blonduósi, 10. júní. FISKISKIPAFLOTI Blönduósinga stækkaði allverulega á sunnudaginn þegar Gissur hvíti, 165 lesta stálbát- ur, kom til heimahafnar. Það er út- gerðarfyrirtækið Særún hf. sem keypti bátinn frá Hornafirði fyrir 36 milijónir króna. Fyrir voru í eigu Særúnar hf. bátarnir Nökkvi, 30 lestir, og Sæborg, 66 lestir. Ætlunin er að Gissur hvíti stundi úthafs- rækjuveiðar fyrst um sinn. Skipstjóri á Gissuri hvíta er Ásgeir Blöndal. Með tilkomu þessa báts er unnt að veita um 40 manns atvinnu en áður hafa um 30 manns haft at- vinnu af rækju- og hörpuskels- vinnslu hjá Særúnu hf. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að hafn- araðstaða á Blönduósi er afar slæm og þurfa Blönduósingar að landa aflanum f nágrannabyggða- lögunum. Vegna þessa er hafin undirskriftasöfnun þar sem skor- að er á hreppsfélagið að leggja meira fjármagn i höfnina. Þess skal og getið að Særún hf. tók ný- lega í notkun 200 fermetra viðbót- arhúsnæði, sem bætir mjög alla aðstöðu við vinnslu rækjunnar og skelfisksins. Framkvæmdastjóri Særúnar hf. er Kári Snorrason. „SÍMABÚNAÐUR ’85“ nefnist farandsýning sem Póst- og símamálastofnunin gengst fyrir um þessar mund- ir. Á sýningu þessari geta viðskiptavinir kynnt sér fjar- skiptatækni og búnað sem Póst- og símamálastofnunin hefur til sölu. Viðskiptavinum gefst kostur á að prófa tækin. Á sýningunni eru gefnar upplýsingar um hið nýja tölvu- net sem tekið verður í notkun síðari hluta árs. Ennfremur er kynnt bíla- símakerfi. Sjálfvirk bílasíma- þjónusta hefst á næsta ári. Sýningin er farandsýning. Sýnt verður næst í Vestmanna- eyjum laugardaginn 15. júní og í Stykkishólmi laugardaginn 22. júní. (flr fréttatilkynningu.) Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! inftargtmMitfcifr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.