Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1986 4. SIMI 18936 TOM SELLECK wmm/ Splunkuný, hörkuspennandi sakamálamynd meö Tom Selleck (Magnum), Gene Simmons (úr hljómsveitinni KISS), Cynthiu Rhodes (Flashdance, Staying Alive) og G.W. Bailey (Police Academy) í aöalhlutverkum. Tónlist: Jerry Goldsmith — Klipping: Glenn Farr — Kvikmyndun: John A. Alonzo, A.S.C. — Framkvæmdastjóri: Kurt Villadsen — Framleiöandi: Michael Rachmil — Handrit og leikstjórn: Michael Crichton. □□ DOLBY STEREO Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára. Hækkað verð. SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI/Ólafur Ormsson „Ég bið að heilsa sólinni" Sumarið heilsar borgarbúum með dýrlegum dögum, sólskini og veðurblíðu. Rigningin gerir svo sem vart við sig einstaka sinnum, það eru þá gróðurskúrir sem veð- urfræðingar og áhugamenn um veðurfræði eru fyllilega sáttir við. Borgarbragurinn um eða eftir miðjan maímánuð siðastliðinn minnti á baðstrandarlíf á sól- arströnd. Ég neita því ekki að mér brá þegar ég var að snæða pulsu með öllu við pulsuvagninn við Bar- ónstíg rétt hjá Sundhöllinni þegar skyndilega stóð við hlið mér kven- maður á að giska um þrítugt í ljós- um sundbol einum fata og pantaði pulsu með svolítið af sinnep og tómat og hráum lauk. Það voru nokkrir karlmenn þarna við lúgu- opið í hádegi í miðri viku og þeir borðuðu pulsur sínar og drukku kók eða súkkulaði, eiginlega án þess að depla augunum, einstaka sneri sér þó í hring og horföi á eftir stúlkunni þegar hún hafði borðað nægju sína og gekk yfir að Sundhöllinni, tignarleg og minnti í göngulagi á stúlku í úrslita- keppni um titilinn fegurðar- drottning íslands. I sólskini og tæplega tuttugu stiga hita rétt eftir miðjan maí- mánuð gerðust jafnvel ólíklegustu menn einstaklega bjartsýnir, menn sem þekktir eru fyrir annað en takmarkalausa bjartsýni og eru yfirleitt raunsæir. Einn slíkan hitti ég í hádegi á sunnudegi þegar ég hélt uppá daginn á tiltölulega nýjum veitingastað í borginni með því að borða glænýjan lax. Seint á sjöunda áratugnum var Sævar Geirdal hugsjónamaður, verka- lýðssinni og sósíalisti, hann var sjóari í húð og hár, starfaði á bát- um er reru með línu og net. Nokkrum árum síðar gerðist hann landkrabbi, hóf að reka kaffivagn í Hafnarfirði við góðan orðstír, hætti því fyrir um það bil ári og starfar nú sem sölumaður. Hann ferðast um landið með hvers kyns vörur og er sagður meiri sölu- maður en gengur og gerist og ein- mitt þennan sunnudag þegar við spjölluðum saman og gengum um Skólavörðustíginn með sólina í fangið var hann að leggja upp í söluferð um landið og hlakkaði til að hafa sólina sem förunaut. Aldrei þessu vant minntist hann varla á ríkið í austri, hann talaði um sólskinið og hið göfuga starf sölumannsins, kosti starfsins og framtíðarmöguleika fyrir duglega menn. Sævari fylgja góðar óskir um árangursríkt sölustarf á ferða- lagi hans um hringveginn með við- komu í kaupstöðum og kauptún- um. Einstök veðurblíða var í borg- inni, þriðjudaginn 4. júní síðast- iiðinn, heiðskýr himinn og sól á lofti og það hlýtt að úlpa og utan- yfirfatnaður var látinn hanga inni í fataskáp, þess í stað var ljós sumarfatnaður allsráðandi hjá eldri sem yngri borgarbúum og mér fannst ekkert vanta í mið- bæjarstemmninguna nema jazz- grúppu á útipalli í Austurstræti eða í Lækjargötu. Við Nýja köku- húsið við Austurvöll voru stólar og borð utan dyra og viðskiptavinir staðarins snæddu kökur og rúnnstykki og drukku kaffi eða te í sólskininu. Við Tjörnina hjá Iðnó höfðu endurnar hópast saman og bitust um brauðmola sem flutu á yfirborði tjarnarinnar og þegar nokkurn veginn var búið að inn- byrða það sem fyrir hendi var þá linnti samt ekki látunum — þær görguðu hver í kapp við aðra og það var líkast því að skyndilega hefði verið boðað til útifundar á þeirra vegum um brýn hagsmuna- mál. í Hljómskálagarðinum var fámennt fyrir hádegi en góð mennt. Þar voru nokkrir ungl- ingar í blómarækt ekki langt frá styttu Jónasar Hallgrímssonar og skyndilega kom eldri maður á hjóli út úr kjarrinu, hann hjólaði í áttina til mín þar sem ég horfði út á Skothúsveg og ég áttaði mig á að þar var kominn góður kunningi, óbreyttur alþýðumaður á nýju Khalkoff-reiðhjóli frá Haraldi G. Haralds í Erninum við Óðinstorg. Þessi óbreytti og látlausi alþýðu- maður steig af hjólinu, tók ofan derhúfuna og bauð góðan daginn. Við spjölluðum um stund um lífið og tilveruna, um veðurblíðuna. Hann er kominn á eftirlaunaald- urinn og man tvenna tíma og telur að ekki hafi þjóðinni betur farnast en á þeim árum þegar viðreisnar- stjórnin var við völd 1959—1971 undir forystu Ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar. — Kaup- máttur launa var meiri á þeim ár- um. Kaupið er ekki nógu hátt hjá fólkinu nú til dags, það þarf að hafa betri laun. Hér skortir þó engan neitt. Hér er enginn fátæk- ur, það er samt brýnt að bæta kjör þeirra lægstlaunuðu. Þú veist það að hvergi er samt betra að lifa en á íslandi, við höfum svo margt sem aðrar þjóðir hafa ekki, við höfum ómengað loft!! Hann hélt áfram að útlista feg- urð landsins og náttúrunnar og það var likast því stundum að gamli maðurinn færi með frumort ljóð í tilefni dagsins og í tilefni af fegurð náttúrunnar. Hann var aft- ur kominn á hjólið áður en við kvöddumst og allt tal hans ljóð- rænt og lét vel í eyrum. Mig minnir að það hafi verið Sigurður Þórðarson, fyrrverandi fasteignasali og verðandi verð- bréfasali, fyrrverandi Æskulýðs- fylkingarfélagi á árunum 1967—70 sem eitt sinn kvað Lenín vera ljós heimsins. Það mun hafa verið um líkt leyti og hann fór austur til Moskvu ásamt fjórum ungum Fylkingarfélögum til náms í marxisma í Moskvu. Sigurð hitti ég á förnum vegi eftir miðnætti snemma í júnímánuði. Hann var á kvöldgöngu, broshýr en svolítið undirförull að mér sýndist þegar fundum okkar bar saman fyrir utan heimili mitt í Norðurmýr- inni. Það líður oft langur tími á milli þess að við hittumst og við höfum því um margt að spjalla. Þegar ég hóf að ræða um hvað það væri nú erfitt að borga af lánum og hvernig skynsamlegast væri að fjárfesta í dag þá var eins og Sig- urður fyndi hjá sér þörf til að út- skýra málin. Hann stökk uppá steinsteyptan vegg við húsið, bað- aði út höndum og fótum um stund og flutti áhrifaríkt erindi um lánamarkaðinn, verðbréfamarkað- inn og peningamarkaðinn al- mennt, bankaviðskipti, ávöxtun fjármagns til skynsamlegra hluta, gott ef hann rakti ekki efna- hagsstefnu ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar lið fyrir lið. Já, það má nú segja. Tímarnir breytast og mennirnir með. Erindi Sigurðar hafði það góð áhrif að það varð að minnsta kosti ekki andvökunótt. Fyrrnefndan þriðjudag, 4. júní síðastliðinn, átti ég erindi í versl- un við Hverfisgötu. Sjálfur versl- unareigandinn, góður kunningi, stóð innanbúðar við afgreiðslu- störf og var eitt sólskinsbros enda lífleg viðskipti og hann að af- greiða vöru sem hann hafði lengi talið óseljanlega og var búinn að liggja með nokkuð lengi. Hann hafði brett upp skyrtuermarnar og þegar inn var komið kvað hann veðrið dásamlegt og næstum óskiljanlegt hvað viðskiptin væru lífieg í búðinni hjá sér. Aður en ég yfirgaf verslunina, kallaði hann til mín og brosti út undir eyru: „Bið að heilsa sólinni" ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.