Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 44
44
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1985
Fullkomin
ÞÆGINDI
BYRK. Sfðumúla 37, Reykjavík
Slippfélagið, Mýrargötu 2. Reyttjavík.
Dröfn, Strandgótu 75, Hafnarfirðt
Hiti sf., Draupnísgötu 2, Akureyri.
J.Á. Byggingavörur,
Baldursgðtu 14, Keflavfk.
Ráðstefna um atvinnumál
í dreifbýli í Laugarborg
Akureyri, 7. júní.
Fjórðungssamband Norðlend-
inga, Stéttarsamband benda og
Byggðadeild Framkvæmdastofn-
unar ríkisins gengust fyrir ráð-
stefnu í Laugarborg í dag um
atvinnumál í dreifbýli.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, ávarpaði
ráðstefnuna, og flutt voru erindi
m.a. um byggðarlega stöðu sveit-
anna, þjóðhagsstöðu landbúnað-
ar og viðhorf stjórnvalda í land-
búnaðarmálum. Síðan gafst ráð-
stefnugestum kostur á fyrir-
spurnum til frummælenda.
Einnig var rætt um nýjar at-
vinnugreinar í sveitum, s.s. loð-
dýrarækt, fiskirækt, hlunninda-
búskap, ferðaþjónustu, sauma-
stofur og skógrækt. Ráðstefnan
var fjölsótt og þótti takast hið
besta. Eftirfarandi tillaga var
samþykkt á ráðstefnunni.
Tillaga til ályktunar frá
strjálbýlisnefnd Fjórðungs-
sambands Norðlendinga
Ráðstefna um atvinnumál i
dreifbýli haldin að Laugaborg í
Eyjafirði, föstudaginn 7. júní
1985, telur mikilvægt að efla
byggð í sveitum og tryggja þar
búsetu.
Ráðstefnan leggur megin-
áherslu á eftirtalin atriði:
1. Hefðbundinn landbúnaður
verði treystur, enda er hann
undirstaða byggðar í sveitum.
2. Áætlun verði gerð um upp-
byggingu nýbúgreina og mörkuð
skýr stefna ríkisvalds um ótví-
ræðan fjárstuðning við þær.
3. Efldur verði smáiðnaður í
sveitum. Ráðstefnan átelur
harðlega að áætlun sem Fram-
kvæmdastofnun ríkisins gerði
fyrir nokkrum árum um smá-
iðnað í sveitum hefur ekki hlotið
eðlilega umfjöllun og komið til
framkvæmda.
Ráðstefnan varar við því að
lögfest verði frumvarp um verð-
lagningu og sölu á búvörum án
ítarlegrar umræðu meðal
bænda.
Ráðstefnan felur strjálbýlis-
nefnd að vinna fyllri tillögur um
þessi mál og leggja fyrir næsta
fjórðungsþing.
VEiFJ U !
Viðskiptavinir Heklu!
Vid bendum á hagstætt
verd á kveikjuhlutum.
Komið og gerið góð kaup.
Kerti: Platínur: Kveikjulok:
Golf .. . .44 kr 80 kr 150kr
Jetta . ..44- 80- 150-
Passat ..44- 80- 150-
Colt .. ..44- 80- 150-
Lancer ..44- 80- 150-
Galant ..44- 80- 150-
VIÐURKENND VARA
MEÐ ÁBYRGÐ
SAMA VERÐ
UM LANDALLT!
i A <^j)
Þættir frá sundlaugum
— eftir Guðjón F.
Teitsson
I. Skammt öfganna
á milli
Á síðari árum hefir aukizt
gagnrýni út af því, að fatlaðir með
þörf fyrir hjólastóla ættu víða
ógreiðan aðgang að ýmsum húsa-
kynnum og mannvirkjum, einkum
þeim, sem veita eiga ýmiss konar
opinbera þjónustu, svo sem
sjúkrahús, sundlaugar, skólar,
söfn, leikhús o.fl.
En leitt er, að tillitssemi í þessu
sambandi hefir sumstaðar leitt til
slæmra öfga eða verið án skiljan-
legrar stefnu, og skal nefna breyt-
ingar, sem fyrir fáum árum voru
gerðar á Sundhöll Reykjavíkur við
Barónsstíg. Þar var aflagt annað
af tveimur . vatnssalernum við
sturtusal karla, án gildra raka í
tengslum við það, að hitt salernið
fékk svigrúm fyrir mann á hjóla-
stól.
I Sundhöllina kemur oft fjöldi
manns samtímis og margir með
knappan tima til umráða, enda
ekki af öðrum ástæðum öllum
hent og alltaf að bíða verulega eft-
ir að komast á salerni.
Gera verður ráð fyrir, að fatlað-
ur maður sé að jafnaði lengur að
athafna sig á salerni en ófatlaður,
og svo er það, að skolbúnaður sal-
erna reynist oft í ólagi, og er því af
margþættum ástæðum óverjandi
að hafa aðeins eitt vatnssalerni á
slíkum þrifa- og heilsuræktarstað,
sem um er rætt. Sama er að segja
um þá óskiljanlegu breytingu, sem
gerð var samtímis, að fækka piss-
stæðum á nefndum stað úr 4 í að-
eins 1. Eru breytingar þessar
ámælisverðar og óíeyfilegar gagn-
vart hinum látna höfundi bygg-
ingarinnar.
Áthyglisvert er, að hinar um-
ræddu skyssur í Sundhöll Reykja-
víkur virðast hafa smitað nokkuð
frá sér samanber hina nýju sund-
laug á Seltjarnarnesi.
Um sama leyti og áðurgreindar
breytingar voru gerðar á Sundhöll
Reykjavíkur var komið fyrir utan
við suðausturgafl byggingarinnar
tveimur ágætum setkerum fyrir
heitt vatn og nuddstreymi, ásamt
nokkurri annarri aðstöðu til þæg-
inda, en með hliðsjón af áður-
nefndri tillitssemi við fatlaða í
Guðjón F. Teitsson
„Algengt er að sjá
margar sturtur samtímis
skildar eftir með fullu
rennsli án þess að nokk-
ur sé að nota þær.“
sambandi við vatnssalerni má
telja undarlegt, að til þess að kom-
ast í hin nýju vinsælu setker þarf
að ganga upp þröngan 7-þrepa
stiga, þar sem yfirfallsvatn úr
kerunum rennur niður.
Sannast því hér málshátturinn:
Skammt er öfganna á milli.
II. Sóun heita vatnsins
í sundlaugunum
Allir munu skilja, að íslend-
ingar eiga fólginn mikinn auð í
hinu heita jarðvatni, en ýmsir
virðast álíta að þessi auðlind sé
nánast ótæmandi og skipti því
litlu máli hvernig með hana sé
farið. I því sambandi er þó um
mikinn misskilning að ræða á
svipaðan hátt og var, þegar menn
héldu, að því væru varla takmörk
sett hversu mikinn fisk mætti
veiða í hafinu kringum landið.
Með þeirri útþenslu, sem orðin
er á kerfi til húsahitunar í
Reykjavík og þéttbýlinu í kring, er
talið að lokið sé að mestu að virkja
það heita jarðvatn, sem borgi sig
að taka á Reykjavíkursvæðinu og í
Mosfellssveit, en næstu fyrirhug-
aðar virkjanir jarðvarma fyrir
höfuðborgarsvæðið eru nú tengdar
Nesjavöllum við Hengil.
Til nánari hliðsjónar í þessu
sambandi skal bent á, að talið er
að lækkun á meginyfirborði hins
heita jarðvatns frá sumri til vetr-
ar sé á Laugarnes/Laugardals-
svæðinu 40—50 metrar, en föst
lækkun á síðustu 25 árum kring-
um 150 metrar. En á Mosfells-
sveitarsvæðinu er lækkunin frá
sumri til vetrar talin 30—35 metr-
ar, en föst lækkun á síðastliðnum
15 árum 70—80 metrar.
Það er því augljóst, að sú auð-
lind, sem um er rætt, er langt frá
því að vera ótæmandi og því
ástæða að hvetja fólk til að fara
vel með hana og forðast beina
sóun, eins og því miður á sér víða
stað, t.d. á sundstöðunum, þar sem
algengt er að sjá margar sturtur
samtímis skildar eftir með fullu
rennsli án þess nokkur sé að nota
þær.
III. Fótsveppir á
sundfólki
Flestir kannast við hina hvim-
leiðu fótsveppi, sem taldir eru
þrífast sérstaklega vel í volgu
vatni, vera smitandi og sækja ein-
kum á táneglur og húð milli táa
sundlaugagesta.
Eru ýmis lyf gegn sveppum
þessum, en duga iila. Til bóta er
talið að nota baðskó við laugarnar
og skola fætur með köldu vatni
áður en farið er í sokka eftir bað.
En í þessu sambandi er vert að
vekja athygli á þeirri óaðgæzlu
og/eða tillitsleysi sumra sund-
laugagesta að klippa neglur eða
sverfa sumpart sveppasýkta húð
niður á gólf við sundlaugarnar,
svo að aðrir hljóti að troða á þessu
með fylgjandi smithættu.
Guðjón F. Teitsson.
MALLORKA
UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST
Brottfarardagar:
í júní: 17. í september: 9., 30.
í júlí: 8., 30. í október: 21.
í ágúst: 19.
Ath: Alltaf beint dagflug.